Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 6
sími 483 4700
www.hotel-ork.is
Sælulykill
Gisting fyrir 2
Þriggja rétta kvöldverður
Morgunverður af hlaðborði
7.450,- krónur á mann
(Sælulykill fyrir 2 á 14.900,-)
Helgarlykill
Gisting fyrir 2 í tvær nætur
Þriggja rétta kvöldverður tvö kvöld
Morgunverður af hlaðborði tvisvar
13.900,- krónur á mann
(Helgarlykill fyrir 2 á 27.800,-)
Ath. hægt að nota í miðri viku
Fást einnig í Reykjavík
á Hótel Cabin, Borgartúni 32,
sími 511 6030
Sendum í póstkröfu
VISA/Eurocard
Lykill að Hótel Örk
ólagjöf sem gleður!
lyklar_2dalkarx15cm
page 1
Friday, December 09, 2005 11:51
Composite
DANMÖRK „Ég undrast að það virð-
ist vekja meiri athygli að vinna
verðlaun á sundmóti en að við
sláum hvert metið í efnahags-
stjórn á fætur öðru,“ segir Thor
Pedersen, fjármálaráðherra Dan-
merkur.
Hann tilkynnti í gær að danskar
fjölskyldur megi eiga von á að fá
allt að 200 þúsund krónum meira í
sinn vasa á næsta ári vegna skatta-
stefnu ríkisstjórnarinnar. Segir
hann efnahaginn svo sterkan að
stærri verði jólagjafirnar vart
undir dönskum jólatrjám enda sé
atvinnuleysi í lágmarki, útflutn-
ingur í hámarki og verðbólga með
því minnsta sem gerist. ■
Efnahagsstefna stjórnarinnar:
Danska þjóðin
fær jólagjöf
DÓMSMÁL Smokkur sem er sönn-
unargagn í kynferðisbrotamáli
verður sendur til rannsóknar hjá
Réttarmeinafræðistofnuninni í
Ósló. Hæstiréttur staðfesti nýverið
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
þar að lútandi.
Verjandi manns sem grunaður
er um grófa kynferðislega misnotk-
un á dóttur sinni frá því hún var átta
ára fram til fjórtán ára aldurs, frá
1998 til sumarsins 2004, mótmælti
frekari rannsókn á smokki sem lagt
var hald á við rannsókn málsins.
Réttarmeinafræðistofnunin í
Ósló hafði áður rannsakað smokk-
inn og komist að því að DNA-snið
þekjufruma sem fundust utan á
honum samrýmdust DNA-sniði
stúlkunnar. Faðir hennar bar fyrir
dómi að það gæti verið vegna þess
að stúlkan hefði handfjatlað verj-
una.
Ákæruvaldið vildi því fá frekara
álit réttarmeinafræðistofnunarinn-
ar á því hvort magn þekjufrumanna
sem á smokknum fundust sam-
rýmdust því að hann hefði verið
tekinn upp með fingrunum og hvort
hægt væri að ráða af rannsókn-
inni hvaðan úr líkama stúlkunnar
þekjufrumurnar væru. Þessari
framhaldsrannsókn mótmælti
verjandi föðursins. Héraðsdómur
Reykjavíkur heimilaði hana hins
vegar með úrskurði 1. desember síð-
astliðinn og Hæstiréttur staðfesti
þann úrskurð með dómi sínum.
Ríkissaksóknari höfðaði málið á
hendur manninum 18. mars síðast-
liðinn, en hann er sakaður um að
hafa misnotað dóttur sína á mjög
grófan máta, auk þess að hafa sýnt
henni klámmyndir í tölvu þegar
hún var tíu til fjórtán ára gömul.
Í Hæstarétti dæmdu málið
Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Ben-
ediktsdóttir og Ólafur Börkur Þor-
valdsson. - óká
Hæstiréttur staðfestir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í kynferðisbrotamáli:
Smokkur sendur í rannsókn
UMBÚÐIR UTAN AF VERJU Verjandi manns,
sem grunaður er um áralanga misnotkun
á ungri dóttur sinni, mótmælti fyrir hans
hönd frekari rannsókn á smokki sem lagð-
ur er fram sem sönnunargagn í málinu.
FRÉTTABLAÐIÐ / AFP
������
�����������
������������
�������������������
�������������������
… enginn ætti að láta
þennan furðufugl
fram hjá sér fara.��
� �����������������������������������
�������������������������
���������������
����������
������������
��������������
������������������
LÖGREGLA Niðurstaða rannsóknar
lögreglu á sjóslysinu á Viðeyj-
arsundi þar sem skemmtibáturinn
Harpa steytti á skeri er að Jónas
Garðarsson, eigandi bátsins,
hafi einn verið við stjórn hans.
Lögregla segir staðfest að hann
hafi verið undir áhrifum áfeng-
is. Í slysinu fórust karl og kona.
Jónas er formaður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur og þekktur fyrir
störf sín að verkalýðsmálum.
Hörður Jóhannesson yfir-
lögregluþjónn segir málið nú á
forræði lögfræðideildar Reykj-
avíkurlögreglunnar. „Næsta skref
er að meta hvort einhver verði
dreginn til ábyrgðar,“
segir hann, en jafnvel
kemur til greina að
málið verði sent rík-
issaksóknara vegna
alvarleika þess. „En þá
aldrei nema með tillög-
um frá okkur,“ bætir
hann við.
Í bátnum sem fórst
var GPS-staðsetning-
arbúnaður sem skráði
staðsetningu, tíma,
stefnu og hraða bátsins. Lögregla
segir ferð bátsins kvöldið sem
slysið varð hafa hafist nokkru
eftir klukkan sjö. Lagt var upp
frá Snarfarahöfn og siglt um ytri
höfnina og inn á Reykjavíkurhöfn,
Gömlu höfnina. „Þaðan var siglt
út á Sundin, m.a. með viðkomu í
Þerney, þar var viðdvöl í 1 klst. og
40 mínútur. Síðar lá leiðin inn Ell-
iðavog þar sem m.a. var lagst að
bryggju í Bryggjuhverfinu um kl.
22.47. Þaðan er siglt af stað aftur
um kl. 00.55,“ segir í tilkynningu
lögreglu, en síðasti hluti sigling-
arinnar var um Viðeyjarsund til
vesturs. „Út
af Laug-
arnesi var
s t e f n u n n i
breytt, snúið
við og siglt
til baka. Þá var klukkan orðin
rúmlega hálf tvö um nóttina,
rigning og myrkur. Eftir að bátn-
um var snúið við var honum siglt
á auknum hraða og samkvæmt
GPS-tækinu var báturinn á 17
hnúta hraða þegar hann lenti á
Skarfaskeri um kl. 01.38.“ Sautján
hnútar jafngilda um 31 kílómetra
hraða á klukkustund.
Eftir að báturinn hafði verið
kyrr við eða á skerinu í 20 mín-
útur var honum siglt frá því og
áfram áleiðis austur Viðeyjar-
sund. „Vegna skemmda sem hlut-
ust af ásiglingunni var kominn
leki að bátnum, honum hvolfdi og
hann sökk, eftir að hafa verið siglt
nokkur hundruð metra í austur
frá Skarfaskeri.“ Þá kemur fram
hjá lögreglu að símasamband hafi
verið við bátinn um GSM-síma frá
klukkan 01.50 um nóttina, um tíu
mínútum eftir áreksturinn, fram
til klukkan 02.28.
Rannsókn málsins hefur tekið
rétt um þrjá mánuði og telur
Hörður það eðlilegan tíma miðað
við umfang þess. Hann segir
rannsóknina þó í eðli sínu þá sömu
og eigi sér stað við bílslys þar sem
grunur leiki á um ölvun við akst-
ur. „En þetta er svolítið þyngra í
vöfum og stærra. Verkferlarnir
eru ekki í jafnföstum skorðum og
í bílslysum og við aðrar stofnanir
að eiga.“
olikr@frettabladid.is
Skipstjórinn sagður
hafa verið drukkinn
Lögregla hefur lokið rannsókn sinni á sjóslysinu á Viðeyjarsundi aðfaranótt
10. september. Karl og kona létust í slysinu. Hjón, eigendur bátsins, björguðust
ásamt syni þeirra á ellefta ári. Leita þurfti að líki mannsins sem drukknaði.
REYKJAVÍKURHÖFN AÐFARANÓTT 10. SEPTEMBER Mikill
viðbúnaður var bæði hjá björgunarsveitum og lögreglu þegar
skemmtibáturinn Harpa steytti á Skarfaskeri. Mikael R. Ólafsson
björgunarsveitarmaður og kafari, sést hér taka við búnaði.
HARPA Báturinn sökk eftir að honum var
siglt frá Skarfaskeri.
Krafði eiganda hunds um lausn-
argjald Maður í smábæ í Wisconsin
gerði sér lítið fyrir og nam bolabít á
brott á meðan eigandinn var í kirkju.
Hann setti auglýsingu í blöðin þar sem
tólf þúsund króna lausnargjalds var
krafist en þegar eigandinn hringdi snar-
hækkaði hann gjaldið. Lögregla hefur
handtekið þennan óprúttna hundsþjóf.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EIÐ
A
6 14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
KJÖRKASSINN
Á að setja íslensk lög um kynja-
kvóta?
Já 19,3%
Nei 80,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Viltu að eftirlitsmyndavélar verði
settar upp á Laugaveginum?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
STJÓRNMÁL Magnús Þór Haf-
steinsson, þingmaður Frjálslynda
flokksins, sendi Haraldi Jóhann-
essen ríkislögreglustjóra bréf sið-
astliðinn mánudag þar sem farið
er fram á að rannsakað verði hvað
hæft sé í fullyrðingum Kristins H.
Gunnarssonar, þingmanns Fram-
sóknarflokksins, um störf fyrrver-
andi forstjóra Byggðastofnunar.
Ummæli Kristins komu fram
í viðtali við hann á Útvarpi Sögu
28. nóvember síðastliðinn og snú-
ast um embættisfærslu Theodórs
A. Bjarnasonar, en við hann var
gerður starfslokasamningur eftir
að ráðherra byggðamála hafði
gert honum grein fyrir því að
hann yrði áminntur.
Kristinn segist standa við allt
sem hann sagði í umræddu við-
tali. Hann lét meðal annars þau
orð falla að forstjórinn hefði selt
í heimildarleysi hlutabréf í eigu
stofnunarinnar, ráðið starfsmenn
án heimildar, haldið erindum
frá stjórn og stjórnarformanni
Byggðastofnunar, sem þá var
Kristinn H. Gunnarsson. Auk þess
hefði forstjórinn látið Byggða-
stofnun greiða hlut í húsi sínu á
Sauðárkróki þrátt fyrir að samist
hefði um að hann gerði það sjálfur.
Kristinn segir þetta aðeins nokkur
dæmi. Stjórnvöld gerðu nærri 20
milljóna króna starfslokasamning
við forstjórann í júní 2002.
Magnús Þór sendi ríkislög-
reglustjóra afrit af umræddu
viðtali og biður um rannsókn
málsins. - jh
Þingmaður sendir ríkislögreglustjóra bréf vegna ummæla um Byggðastofnun:
Vill láta rannsaka forstjóra
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON, FRJÁLS-
LYNDA FLOKKNUM Magnúsi finnst ummæli
Kristins H. Gunnarssonar gefa tilefni til
lögreglurannsóknar.
Féfletti fólk á netinu Maður í vest-
urhluta Svíþjóðar hefur verið handtek-
inn fyrir að féfletta fólk. Vefmiðilinn DN
sagði í gær að maðurinn hefði svarað
auglýsingum eftir tónleikamiðum og
ferðagjafakortum á netinu og sagst
myndu senda miðana eða gjafakortin
í pósti eftir að búið væri að millifæra á
reikning sinn. Það gerði hann aldrei.
SVÍÞJÓÐ