Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 94
 14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR58 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HRÓSIÐ ...fá Hjalti Úrsus og Steingrímur Þórðarson en þeir eru með heim- ildarmynd í bígerð um ævi hins þekkta aflraunamanns Jóns Páls Sigmarssonar. Alveg skelfilegt Já, ég fékk nú einhvern tíma kartöflu í skóinn og ég man að það var alveg skelfilegt! Ég man ekkert hvað það var sem ég gerði til þess að eiga kartöfluna skilið en það að fá hana fór beint inn í lang- tímaminnið. Það er sjokkið sem situr eftir og ég held að þetta sé heljarmikið sjokk fyrir barnssálina þó svo að við hinir fullorðnu getum hlegið að þessu. Pétur Einarsson leikari. Var svo góð stelpa Ekki svo ég muni. Ég held ég hafi bara verið svona rosalega góð stelpa, allavega á meðan ég fékk í skóinn. En ég vissi alltaf af þessum möguleika að ef maður hagaði sér ekki vel gæti einhver laumað ljótri kartöflu í skóinn en ég bara man ekki eftir að hafa orðið fyrir þeim óskunda. Sessý söngkona. Aldrei fengið í skóinn Nei, ég hef aldrei fengið kart- öflu í skóinn því ég hef aldrei fengið í skóinn. Þessi siður tíðkaðist ekki á mínu heimili og ég hef því aldrei upplifað þá angist að finna kartöflu í skónum sínum. Ég man að ég öfundaði nú stundum þá sem fengu í skóinn en það voru alls ekkert allir. Ég held ég hafi ekki hlotið neinn meirihátt- ar skaða af því að fá ekki í skóinn. Sif Gunnarsdóttir, verkefnis- stjóri viðburða hjá höfuðborg- arstofu. ÞRÍR SPURÐIR JÓLASVEINARNIR ERU KOMNIR Á KREIK OG ÞVÍ BETRA AÐ HAGA SÉR VEL Hefurðu fengið kartöflu í skóinn? Næsta ár virðist ekki ætla að gefa síðasta ári neitt eftir hvað frægt fólk varðar. Quentin Tarantino mun sem kunnugt er dveljast hér fram yfir áramótin og með honum í för verður þokkagyðjan Vanessa Ferlito. Þó að nafnið hljómi kannski ekki kunnuglega þá er hún rísandi stjarna í kvikmynda- heiminum. Leikkonan hefur verið í föstu hlutverki hjá CSI:New York og hefur auk þess leikið í myndum á borð við 25th Hour og Spider- man 2. Þá mun rapparinn RZA einnig vera hluti af föruneytinu en hann er einhver allra áhrifamesti tónlistamaðurinn í hipphopp heim- inum. Góðvinir á borð við Samuel L. Jackson og Michael Madsen eru því miður ekki líklegir til að fylgja með og missa þeir því af sprengju- óðum Íslendingum sem gæti orðið næsta markaðsvaran fyrir ferða- mannaiðnaðinn. Föruneyti Tarantinos verður þó líklega ekki það eina sem sækir landann heim í kringum jólin. Á annan í jólum verður kvikmynd Baltasars Kormáks, A Little Trip To Heaven, frumsýnd og verður mjög líklega haldin alvöru gala- sýning í Smárabíó af því tilefni. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er Sigurjón Sighvatsson, annar framleiðandi myndarinn- ar, að vinna að því hörðum hönd- um að fá að minnsta kosti tvær stjörnur úr leikarahópnum en meðal þeirra sem koma til greina eru Julia Stiles, Forest Whitaker, Peter Coyote og Jeremy Renner. Í febrúar gæti svo dregið til tíðinda aftur þegar kvikmyndin The World‘s Fastest Indian verð- ur frumsýnd hér á landi. Mynd- in hefur fengið mjög góða dóma erlendis og eru markaðsmenn- irnir á fullu við kynna hana fyrir óskarinn en það styttist óðum í að tilnefningarnar verði tilkynntar. Henni er leikstýrt af Roger Don- aldsson og leikur sjálfur Anthony Hopkins aðalhlutverkið. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins er nú róið að þeim öllum árum að fá leikarann hingað til lands og vera viðstaddan frumsýningu en ljóst er að um gríðarlegan feng væri að ræða ef af yrði. freyrgigja@frettabladid.is Skærar stjörnur á landinu í ár TARANTINO OG VANESSA Leikkonan unga Vanessa og leikstjórinn Tarantino sjást hér saman á tískusýningu sem haldin var fyrr á árinu. Hún hefur hægt og bítandi verið að vinna sig upp í kvikmyndaheiminum. FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES LÁRÉTT 2 jurt 6 skammstöfun 8 umfram 9 knæpa 11 leita að 12 kryddjurt 14 gjálfra 16 skóli 17 kjökur 18 tímabil 20 klukkan 21 tangi. LÓÐRÉTT 1 viðartegund 3 guð 4 brá 5 skjön 7 formlaus hrúga 10 tunnu 13 skammstöf- un 15 óskipt 16 með öðrum orðum 19 tveir eins. LAUSN: LÁRÉTT: 2 gras, 6 eh, 8 auk, 9 krá, 11 gá, 12 kúmen, 14 gutla, 16 ma, 17 vol, 18 öld, 20 kl, 21 oddi. LÓÐRÉTT: 1 tekk, 3 ra, 4 augnlok, 5 ská, 7 hrúgald, 10 ámu, 13 etv, 15 allt, 16 möo, 19 dd. FRÉTTIR AF FÓLKI Tilnefningar til Golden Globe-verð-launanna voru tilkynntar í gær. Því miður er enginn Íslendingur á meðal hugsanlegra verðlaunahafa en þar með er ekki sagt að við eigum ekki okkar hlut á hátíðinni. Kvikmynd byggð á handriti Richard Curtis, The Girl in the Café, er tilnefnd til tveggja verðlauna en aðal- leikararnir Bill Nighy og Kelly Macdonald eru hvort um sig tilnefnd. Myndin gerist á leiðtogafundi átta helstu iðnríkja heims í Reykjavík en mikið fát kom á handritshöfundinn þegar uppgötvaðist að hann hafði sett alþjóðaflugvöllinn í Reykjavík í stað Keflavíkur. Hún var síðan framlag Curtis til Live8-tónleikanna sem ætlað var að þrýsta á iðnríkin til að fella niður skuldir ríkja þriðja heims- ins, en það mál- efni var einnig fyrirferðarmikið í kvikmyndinni sjálfri. Í dag verður sýning í Héðinsporti á Seljavegi 2 milli klukkan fimm og sjö á nýrri íslenskri hönnun sem gengur undir nafninu Kind. Um er að ræða kvenfatnað og fylgihluti úr íslensku loðskinni sem eiga að gera konum kleift að klæða af sér íslenska veðráttu með glæsi- legum hætti. „Þetta er ekki beint tískusýning heldur viljum við fá skemmtilegt fólk til að koma og skoða föt í góðri jólastemningu,“ segir María Ólafsdóttir en hún hannar fötin ásamt Sunnevu Vig- fúsdóttur. Þær stöllu hafa nú þegar feng- ið góð viðbrögð við hönnuninni og viðurkennir María að sumt af því sem verður til sýnis í dag hafi þegar verið selt. „Við erum aðallega með mokkajakka og mokkakápur sem við hönnum úr íslensku hráefni,“ útskýrir hún en efnið er sent til Kína þar sem það er saumað. Vörurnar komu til landsins á föstudaginn og María hafði því í nógu að snúast þegar Fréttablaðið náði tali af henni. „Við höfum verið að þróa sérstakt munstur sem við fundum í bókum hjá Þjóðminjasafninu og hand- málum á jakkana,“ segir María en ennfremur er notað fiskiroð sem þær brydda með auk refaskinns í áhneppalega kraga. „Við viljum gera línuna sérstaka þannig að hún varðveiti hinn íslenska arf,“ segir hún. „Þetta eru þó ekki ein- hverjir víkingajakkar heldur eru þeir mjög veraldarvanir samfara því að vera þjóðlegir,“ útskýrir hún. María segist ekki óttast dýra- verndunarsinna en úti í hinum stóra heimi eru þeir iðulega mættir til að mótmæla notkun dýraskinns í föt. „Ég held að við hugsum öðru- vísi hér á landi. Kindinni er líka slátrað til matar þannig að það hlýtur að vera í lagi að nýta skinn- ið,“ segir hún og hlær. Spurð hvort þetta væru ekki dýrar flíkur sagði hún að mokkajakkar og kápur kostuðu alltaf einhvern skilding. Þær reyni þó að halda verðinu sem mest niðri. „Íslenskir textíl-og skinnhönnuðir mættu líka fara að mæta meiri skilningi hjá íslensk- um stjórnvöldum,“ segir María. freyrgigja@frettabladid.is KIND: NÝ ÍSLENSK HÖNNUN LÍTUR DAGSINS LJÓS: Eru hvergi smeykar við dýraverndunarsinna MARÍA OG SUNNEVA Þær stöllur standa fyrir sýningu á nýrri íslenskri hönnun sem gengur undir nafninu Kind. Vörurnar eru hannaðar úr íslensku hráefni en saumaðar í Kína. FRÉTTABLAÐIÐ / E.ÓL OPIÐ ALLA LAUGARDAGA 10-14 STÓR HUMAR RISARÆKJUR HÖRPUSKEL TUNFISKUR SALTSÍLD KRYDDSÍLD 1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9 Árlegir jólatónleikar verða á Nasa við Austurvöll miðvikudaginn 21. desember. Að venju eru það rokk- hundarnir á X-inu 97,7 sem standa fyrir þessum sérstæðu tónleikum en fjöldi tónlistarmanna mun troða upp og spila jólalög, hver með sínu nefi en meðal þeirra sem koma fram eru Hjálmar, Dr. Spock, Rass, Sign og Brain Police. Allur ágóði af miðasölunni rennur til Foreldrahúss „sem hugsar um mikilvægari hluti en gengi hlutabréfa og sterkt gengi krónunnar,“ svo vitnað sé beint í fréttatilkynningu útvarpsstöðv- arinnar en miðaverð er 977 krónur þó mönnum sé frjálst að borga meira. Þá má einnig finna smá pillu á Pál Magn- ússon, útvarpsstjóra RÚV, sem nýverið sagði Rás 2 vera einu útvarpsstöðina sem sinnti íslenskri rokktónlist. Segir í fréttatilkynningunni að áhugi hans á jaðartónlist hafi vakið athygli tónlistar- áhugamanna út fyrir landsteinana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.