Réttur - 01.10.1950, Page 19
RÉTTUR
259
Kóreustyrjöldixt
— aðdragandi og upphaf
Víðs fjarri íslandi, hinum megin á hnettinum, hefur mánuðum
saman geisað blóðug styrjöld í Kóreu. Þótt styrjaldarvettvangur-
inn gæti varla verið fjarlægari óttast menn að þessi átök kunni
einnig að móta örlög íslands. í huga hvers manns hefur undanfarna
mánuði vakað sú spurning sem öllum öðrum er geigvænlegri:
Eru fallbyssudrunurnar í fjöllum Kóreu forleikur þriðju heims-
styrj aldarinnar.
Bandaríkin hafa fyrirskipað flestum fylgiríkjum sínum að
taka virkan þátt í styrjöldinni í Kóreu. Um allan heim bíða
mæður og eiginkonur skelfdar og örvilnaðar eftir fréttinni um
að nú hafi ástvinur þeirra dáið „hetjudauða.“
Kóreustríðið hefur orðið tilefni margföldunar á vígbúnaði,
æ fleiri æsltumenn eru kallaðir til herþjónustu, æ meiri orka er
notuð til að framleiða vígvélar og morðtól. Nú er ekki lengur
tími til að lækna svöðusár síðustu heimsstyrjaldar — getu þjóð-
anna er beitt til að undirbúa þá næstu.
Enn á ný hækka matvæli í verði dag frá degi, húsnæði og aðrar
lífsnauðsynjar. Að tjaldabaki eru auðugir og voldugir menn öxm-
um kafnir við að skipuleggja gróðann af styrjöldinni — og þeir
græða. Síðan annarri heimsstyrjöldinni lauk hafa þeir aldrei
unað hag sínum eins vel, „friðarhættan" hefur aldrei verið minni,
eins og þeir orða það, en óttinn við frið hefur verið jafn ríkur