Réttur - 01.10.1950, Síða 22
262
RÉTTUR
þjóðanna sem tæki hlutverk sitt alvarlega. Það hefur einnig verið
hindrað, en hitt tókst ekki að koma í veg fyrir að skjölin hafa verið
birt í hvítri bók Norðurkóreustjórnar. Og þótt afturhaldsblöðin
reyni að þegja þau í hel, mun þeim ekki verða tortímt úr þessu.
Hvað sanna svo þessi skjöl? Fyrst og fremst sanna þau að undir-
búningur þess að leysa Kóreudeiluna með hervaldi hófst þegar
árið 1948. Það var raunar vitað áður, t. d. sagði Syngman
Rhee, hinn kokhrausti forseti Suðurkóreu á blaðamannafundi í
Bandaríkjunum 24. október 1948: „Sóknin til norðurs er mikilvæg-
asta hlutverk vort“, en skjölin sem fundust í Seoul eru miklu ýtar-
legri og óvéfengjanlegri. Meðal þeirra er t. d. trúnaðarbréf frá
ráðgjafa Syngman Rhee í utanríkismálum, Pen Ku En, dagsett 3.
des. 1948. Bréfið er skrifað áður en Sjang Kaisék beið endanlegan
ósigur og skýrir frá hinum sameiginlegu markmiðum í væntan-
legri styrjöld í Asíu:
„Til þess að geta unnið sigur í styrjöld þeirri sem framund-
an er verður að samræma herstyrk Bandaríkjanna, Japans,
Kína og Kóreu og beina þeim að þrem markmiðum, svo sem
hér segir: Japanir eiga að halda til norðausturs, taka Vladi-
vostok og sækja áfram inn í Siberíu. Eftir að herir Kóreu og
Bandaríkjanna hafa frelsað norðurhluta landsins eiga þeir
að sækja yfir Liaotung-skagann (í Mansjúríu) og taka Har-
bin. Hinn endurreisti þjóðernisher Kína taki á ný þau
landsssvæði sem Kína hefur misst, þar á meðal héraðið
Liaotung. Eftir að sigur er unninn eiga herir Kóreu og
Bandaríkjanna að halda Mansjúríu hernuminni, þar til allur
kostnaður við frelsisbaráttuna hefur verið greiddur með
hagnýtingu auðlindanna í þessum hluta Austurasíu og sam-
einuðu fjármagni og vinnuafli Mansjúríu, Kóreu og Banda-
ríkjanna — og þar til komið hefur verið á lýðræðislegum
friði. í þeirri endurskipulagningu Austurasíu sem síðan fer
fram ber að tryggja Japönum veigamikil áhrif, þar sem þeir
fái í sinn hlut Vladivostok og hluta af Síberíu ... • “
í bréfinu er enn fremur sagt að rétt sé að beina útþenslu Japana
á þessar brautir svo að þeir felli niður hinar fornu áætlanir
sínar um yfirráð yfir Kína og Kóreu, og óttinn við Sovétríkin
muni knýja Japan til eðlilegs bandalags við Bandaríkin, Kína
og Kóreu.