Réttur - 01.10.1950, Page 27
RÉTTUR
267
fyrirætlanirnar höfðu mistekizt. í syðstu héruðunum hafði komið
til mjög víðtækra bændauppreisna. í maí hafði tilfinnanlegur hluti
hersins við 38. breiddarbaug hlaupizt yfir til norðurmanna. Þeir
neituðu að berjast gegn alþýðuhernum og löndum sínum fyrir
norðan. Hin fyrirhugaða árás hafði breytzt í innri átök.
Engu að síður kom til átaka við landamærin, sökum þess að
ekki tókst að hemja þá sem æstastir höfðu beðið árásarinnar. Þær
fréttir bárust út um allan heim að Suðurkóreumenn hefðu 25. júlí
1949 hertekið fjallasvæði fyrir norðan 38. breiddarbaug. Og 5.
ágúst skýrði herstjórn Suðurkóreu frá því að her Norðurkóreu
hefði tekið tvo staði „fyrir norðan 38. breiddarbaug,“ sem sunn-
anmenn höfðu þannig tekið áður. Um þessa bardaga var einnig
fjallað í skýrslu sem Kóreunefnd sameinuðu þjóðanna sendi til
aðalstöðvanna.
En árásin rann í heild út í sandinn. Bandaríkin töldu hana von-
lausa og kröfðust þess að hætt yrði við fyrirætlanirnar þar til
tekizt hefði að koma á ró í Suðurkóreu sjálfri. Það varð einnig
að hreinsa til í hernum. Næstu vikur á eftir voru 55 suðurkóreskir
herforingjar og hermenn skotnir fyrir samband við „fjandmenn-
ina“ — og meira en 15.000 hermenn voru sendir heim úr hernum,
þar sem þeir væru „ónothæfir". 15. ágúst var komið á 20 kílómetra
breiðu lokuðu bannsvæði við 38. breiddarbraug á meðan undir-
búin var sókn til að „útrýma“ bændaskæruliðunum í Suður-
kóreu. Þar með var lokið fyrsta áfanga í árásarundirbúningi
Syngman Rhee og klíkubræðra hans. En áætlanirnar voru geymd-
ar en ekki gleymdar.
Undirbúningur hafinn á ný
Eftir að tekizt hafði að koma á sæmilegri ró innanlands með
gegndarlausum morðum og ofbeldi, og endurskipulagningu hers-
ins var lokið, sneri Syngman Rhee sér enn að fyrri áætlun-
um. í Seoul fundust bréf frá haustinu 1949 sem tala sínu skýra
máli. 30. september sendi leppforsetinn bréf um áætlanir sínar
til Bandaríkjamannsins dr. Robert Oliver, sem var meðalgöngu-