Réttur - 01.10.1950, Síða 40
280
RÉTTUR
sífelldum innköllunum í herinn og að morð og ofbeldi séu
daglegir viðburðir, þar sem ríkislögregla Syngman Rhees
lætur til sín taka. Bandarískur blaðamaður kvartaði við
háttsettan embættismann um hina svonefndu „kjötúthlut-
un“ — en það er gamall siður sem merkir að lík manna
sem teknir hafa verið af lífi eru höfð til sýnis fyrir utan
heimili aðstandendanna. Embættismaðurinn lýsti yfir því að
hann sæi ekkert rangt við þetta — „þetta eru bara kommún-
istahræ“, sagði hann.
Sökum sívaxandi óvinsælda hefur stjórn Suðurkóreu í
vaxandi mæli orðið að beita lögreglu sinni. Síðustu tvö
árin hafa verið tímabil stöðugs lögregluofbeldis. í fangels-
um Suðurkóreu voru um 40.000 pólitískir fangar þegar
stríðið skall á. Margir hinna fangelsuðu voru pyndaðir til
dauða, en aðrir voru skotnir „á flótta“ og lík þeirra sett til
aðvörunar fyrir framan hús annarra stjórnmálamanna sem
andstæðir voru stjórninni."
Alþjóðasamband verkalýðsins sendi nefnd til Suðurkóreu og
taldi hún að í fangabúðum væru 87.000 manna. Tala þeirra sem
myrtir hefðu verið var áætluð 150.000 frá 1945 þar til stríðið skall
á. I baráttu sinni „gegn kommúnismanum" notaði stjórnin tæki-
færið og barði niður allt lýðræði, enda er það um allan heim ein-
kenni þeirrar heilögu baráttu. Verklýðsfélög voru bönnuð og
leiðtogar þeirra fangelsaðir. Lífskjör verkamanna urðu því hin
ömurlegustu og vinnutíminn 10—14 stundir á dag. Bændasamtök,
æskulýðssamtök og menningarfélög hafa verið bönnuð. Af 11
flokkum voru 9 bannaðir, meðal þeirra sósíaldemókrataflokkurinn,
en fyrri formaður hans Lyeng Wung Heng var myrtur í síðustu
„kosningum" Syngman Rhees. Núverandi formaður flokksins,
Te Sen Chan, sendi frá leynilegum bækistöðvum sínum ávarp
eftir að stríðið skall á þar sem hann skoraði á flokksbræður sína
um allan heim að koma til hjálpar gegn
„bandarísku heimsveldissinnunum og lepp þeirra Syngman
Rhee sem ætla að gera Suðurkóreu að nýlendu og íbúa
hennar að þrælum."
Dæmi um bandarískt lýðræði
Að sjálfsögðu varð leppurinn Syngman Hhee að halda kosningar