Réttur - 01.10.1950, Page 48
288
RÉTTUR
íhlutun og leppstjórn Syngman Rhees. Hinir hraklegu ósigrar
suðurkórverska hersins í upphafi styrjaldarinnar, þessa hers sem
átti að vera hinn bezti og amerískasti á meginlandi Asíu, stöfuðu
fyrst og fremst af því að alþýðan um alla Suðurkóreu reis upp til
baráttu fyrir frelsi sínu. Þegar bandaríski herinn var að koma
sér fyrir syðst í Kóreu neyddist hann til þess að banna Kórverjum
að fara út úr húsum nema samkvæmt ströngum reglum. Svo
hræddir voru velgerðarmennirnir við fólkið sem þeir þóttust vera
að frelsa. í árásum sínum norður landið hefur bandaríski herinn
beitt grimmd sem aðeins jafnast á við framkomu þýzku nazist-
anna í Austurevrópu og hafa jafnvel bandarískir blaðamenn ekki
komizt hjá því að lýsa viðbjóði sínum. Og gereyðingarárásir á
borgir og þorp Kóreu eru óneitanlega sérstætt framlag til frelsis,
sjálfstæðis og farsældar.
ÍSLAND OG KÓREA
Ríkisstjórn íslands er þátttakandi í Kóreustyrjöldinni og hef-
ur lýst yfir fullu fylgi við árás Bandaríkjanna á þessa fjarlægu
þjóð og fulltrúar íslands á þingi sameinuðu þjóðanna eru þæg-
ustu atkvæðatól hinna hláturmildu stríðsherra fyrir vestan haf.
Svo furðuleg hafa orðið örlög þeirrar þjóðar sem fyrir hálfu sjö-
unda ári endurreisti lýðveldi sitt eftir sigursæla frelsisbaráttu
gegn erlendri kúgun, á svo kynlegan hátt minnist íslenzka ríkis-
stjórnin morðs Jóns Arasonar og sona hans.
Öll íslenzku afturhaldsblöðin hafa birt samfellt níð um frelsis-
baráttu kórversku þjóðarinnar á sama hátt og Danir hæddu og
níddu frelsishugsjónir íslendinga. Öll hafa þau hlakkandi og fagn-
andi lýst „sigrum“ Bandaríkjanna og fylgiríkja þeirra: loftárásun-
um, tortímingunni, morðunum. Öllum tiltækum ráðum er beitt til
að lýsa frelsisbaráttu nýlenduþjóðanna sem glæpaverkum fyrir
þeirri þjóð sem fagnar því flestu heitar að hafa framið slík „glæpa-
verk“ sjálf.
En áhrif Kóreustyrjaldarinnar hér innanlands eru ekki aðeins
þau að reynt sé að villa um fyrir þjóðinni og blekkja hana í al-