Réttur - 01.10.1950, Síða 62
302
RÉTTUR
heldur notar hún atvinnuleysið sem kúgunarvald yfir verka-
lýðnum.
Það er höfuðskilyrði þess, að hægt verði að skapa aftur mann-
sæmandi lífskjör alþýðu eftir fjögurra ára afturhalds- og auð-
mannastjórn, að alþýðustéttirnar sameinist um flokk sinn, Sós-
íalistaflokkinn, og taki forystuna í stjórnmálum landsins til þess
að knýja fram atvinnu handa öllum og bætt lífskjör alþýðu með
fullri hagnýtingu framleiðslutækja og með réttlátri skiptingu þjóð-
arauðs og þjóðartekna.
En meðan þessu höfuðskilyrði er ekki fullnægt, vill Sósíalista-
flokkurinn beita áhrifum sínum á Alþingi og í bæjarstjórnum
til þess að knýja fram nú þegar eftirfarandi ráðstafanir með
hverjum þeim, sem að því vill vinna.
1. Atvinnuframkvæmdir — Baráttan gegn atvinnuleysi
Sósíalistaflokkurinn leggur áherzlu á, að það er skylda ríkisins
að tryggja öllum vinnu. Reynslan hefur sýnt, að núverandi aftur-
haldsstjórn notar vald sitt beinlínis til þess að koma á atvinnu-
leysi og viðhalda því. Því meiri nauðsyn er, að í engu verði slakað
frá þeirri almennu kröfu verkalýðsins, að ríkinu beri skylda til að
tryggja öllum vinnu, að sóknin verði hert fyrir hinum frumstæð-
ustu mannréttindum: réttinum til vinnu. Eins og sakir standa verð-
ur flokkurinn að fylkja almenningi um eftirfarandi kröfur til
tryggingar atvinnu:
Sjávarútvegsmál: 1. Að tryggja rekstur bátaútvegsins. Á meðan
ríkisvaldið einokar afurðasöluna og ráðstafar öllum gjaldeyri
útflutningsframleiðslunnar, er óhjákvæmilegt að ábyrgjast báta-
útveginum lágmarksverð fyrir aflann.
Jafnframt verður að tryggja bátaútveginum nægilegt rekstrar-
fé til öruggari reksturs og meiri fjölbreytni í veiðum og vinnslu.
Þegar í stað verði gerðar ráðstafanir til þess að sjómenn á flot-
anum fái kaup sitt greitt að fullu.
2. Að gerá þegar ráðstafanir til að hagnýta að fullu fiskiðjutæki
þjóðarinnar (frystihús, fiskimjölsverksmiðjur, niðursuðuverk-