Réttur - 01.10.1950, Side 65
RETTUR
305
eyrinum er orðin refsiverð eftir því að dæma, hvernig ríkið með-
höndlar aðal framleiðendur hans, en eign gjaldeyrisins hið eftir-
sóknarverðasta hnoss, sem einokunarherrarnir nota ríkisvaldið
til að úthluta sjálfum sér og sínum nánustu í réttu hlutfalli við
pólitíska þægð og peningaleg framlög. Hin magnaðasta siðspilling
opinbers lífs er hinn eðlilegi fylgifiskur þessarar einokunar.
Þessi einokun hefur þegar fyrir ofstæki og skammsýni einokun-
arherranna glatað sumum beztu mörkuðum íslendinga, fyrst og
fremst mörkuðunum í Sovétríkjunum.
Þessi einokun hefur minnkað freðfiskframleiðslu landsbúa um
helming.
Þessi einokun hefur lækkað verðið á íslenzka saltfiskinum og
síldarlýsinu niður fyrir það, sem Norðmenn selja fyrir.
Þessi einokun hefur með því að hindra framleiðslu á miklu
verðmæti, sem hægt var að selja erlendis og kaupa vörur fyrir,
valdið vaxandi vöruskorti, svartamarkaði og dýrtíð, — en allt er
þetta í samræmi við hagsmuni valdaklíkunnar, sem sjálf græðir
á svarta markaðnum og þykir gott, að dýrtíð dragi úr kaupgetu
almennings.
Þessi einokun lamar svo vélbátaútveginn með því að svifta hann
nauðsynlegum gjaldeyri og vöruinnflutningi, að stefnt er í bráðan
voða efnahag útgerðarstaðanna út um land, sem byggja atvinnu-
líf sitt og afkomu á vélbátaútgerð. Þannig sogast arðurinn af at-
höfnum framleiðslustöðvanna úti um landsbyggðina í hít fámennr-
ar arðránsklíku í Reykjavík.
Þessi einokun hefur bundið samvinnufélögin á klafa einokunar-
skipulagsins, svift þau frelsinu til að skipuleggja samtök fram-
leiðenda um útflutning og neytenda um innflutning og samstarf
beggja. Svo herfilega hefur Framsókn svikið samvinnufélögin
eftir síðustu kosningar, að síðustu gjaldeyrisleyfi þeirra hafa
einnig verið af þeim tekin og neytendum enginn réttur eftir
skilinn til að velja sjálfir, hvar þeir verzla.
Þessi einokun hefur lamað framtak einstaklinga og samtaka í
landinu, keyrt það í viðjar skriffinnsku og ofurvalds hinna stóru
útvöldu auðmanna Reykjavíkur.
20