Réttur - 01.01.1962, Blaðsíða 28
28
lt E T T U R
Á sama tíma hefur nýlenduveldi kapítalismans liðast í sundur
og þrátt fyrir vissa framleiðsluaukningu og herkostnað, hefur hon-
um ekki tekist að sigrast á innri mótsetningum sínum. Þvert á móti
magnast viðnám og sókn verklýðsstéttarinnar um allan auðvalds-
heiminn. Á vesturhveli jarðar blaktir fáni sósíalismans í fyrsta skipti
yfir Jrjóðlandi. Milli auðvaldslandanna hafa veigamiklar breytingar
skeð. Bandaríkin hafa misst algera forystu sína í iðnaði og verzlun,
en Vestur-Þýzkaland og Japan sótt á. Þar með hafa gamlar mótsetn-
ingar blossað upp að nýju.
Hin breiða braut þróunarinnar sýnir, að sósíalisminn er að taka
forystuna á hverju sviðinu á fætur öðru.
Á sviði framleiðslunnar, sem er undirstaða allrar Jjjóðfélags-
framvindu, sjást breytingar, sem sýna glöggt, hvert stefnir.
Miðað við árið 1937 hefur iðnaðarframleiðsla sósíalismans auk-
ist 6.8 sinnum en auðvaldsins 2.5 sinnum.
Hlutur sósíalismans í iðnaðarframleiðslu heimsins hefur vaxið
úr 27% árið 1955 í 36% árið 1960.
Á áratugnum 1950—1960 Jjrefaldaðist innbyrðis verzlun sósíal-
istisku landanna en tvöfaldaðist meðal hinna kapítalisku.
Ávinningar sósíalismans hafa Jjví aðeins verið mögulegir, að
unnt var að varðveita friðinn og slökkva ófriðarbálin hvar sem auð-
valdsöflin reyndu að tendra þau.
Þess vegna hefur varðveizla friðarins í rauninni verið megin-
ávinningur undanfarins árabils.
I Ráðstjórnarríkjunum sjálfum hafa mikil umskipti átt sér stað
að undanförnu.
Eftir 20. Jjing Kommúnistaflokks Ráðstjórnarríkjanna árið 1956,
þar sem framkvæmd voru hin sögulegu reikningsskil við persónu-
dýrkunina og þann skaða, er hún olli, hófst tímabil nýrrar sóknar
á öllum sviðum sovézka ]>jóðlífsins. Þessi nýja alhliða sókn fann
form sitt ekki hvað sízt í sjö-áraáætluninni, er hófst 1958 og sem er
mikilvægur áfangi á leiðinni til uppbyggingar hins kommúnistiska
Jvjóðfélags í Ráðstjórnarríkjunum.
Á árunum 1956—1961 nam fjárfesting í atvinnuvegum Ráð-
stjórnarríkjanna 156 þúsund milljónum rúblna, sem er hærri upp-
hæð en öll fjárfesting þeirra frá 1917 og fram til 1956.
Á sex árum jókst stólframleiðsla Ráðstjórnarríkjanna um 26
milljónir lesta, eða meir en sem svarar ársframleiðslu Bretlands.