Réttur - 01.01.1962, Page 30
30
R E T T U R
Ráðstjórnarríkin skutu fyrst allra gerfitungli á loft. Þau sendu
fyrstu geimflaugarnar út fyrir aðdráttarafl jarðar. Þau urðu fyrst
til að koma fána sínum til tunglsins og ljósmynda bakhlið þess.
Og þau sendu fyrstu mennina til geimflugs.
Sósíalisminn, kommúnisminn, er að lyfta Ráðstjórnarþjóðunum
á nýtt stig mennta og menningar.
Nýjar þjóðfélagsaðstæSur.
En síðasti hálfi áratugur hefur ekki aðeins verið stórstökk Sovét-
þjóðanna á sviði framleiðslu í iðnaði og landhúnaði, í skólamál-
um, tryggingamálum, vísindum og á sviði lífskjara.
í þjóðfélagslegri sambúð mannanna hafa og gerst hin athyglis-
verðustu fyrirbæri.
Einmitt á þessum áruin hafa vaxið upp, dafnað og þróast nýjar
þjóðfélagsaðstæður, nýjar eigindir manna, ný innbyrðis afstaða
Jreira og ný afstaða þeirra til Jrjóðfélagsins, til eigna þess og al-
mennrar velferðar þess. Hinar sósíalistisku Jjjóðfélagsaðstæður eru
að þróast yfir í kommúnistiskar þjóðfélagsaðstæður.
Aðal einkenni þessara hreytinga er í því fólgið, að síaukinn fjöldi
Ráðstjórnarþegnanna tileinkar sér hina jákvæðustu afstöðu lil
starfsins, til vinnunnar. Hún er ekki lengur eingöngu leið til öflunar
lífsviðurværis, heldur er hún að verða liáleit þjóðfélagsköllun, á-
nægjuleg siðferðisskylda. Frægasla dæmi þessarar afstöðu er for-
dæmi Valentínu Gaganóvu, sem fór að eigin frumkvæði úr hátt-
launuðum afkastamiklum vinnuflokki í lágt launaðan vinnuflokk
til þess að rniðla honum af reynslu sinni og hjálpa honum uppávið.
Ut frá þessu og öðrum hliðstæðum fordæmum hefur risið ný hreyf-
ing, sem nær til tuga milljóna sovéskra aljrýðumanna.
Annað einkenni þessara breylinga er fólgið í því, að slærri og
stærri fjöldi Ráðstjórnarborgara lekur virkan Jrátt í stjórn rikisins
og stofnana þess á hinum ýmsu sviðum. Á þennan hátt hafa stétta-
afstæðurnar verið að Jrróast á nýtt og hærra stig. Öreigalýðræðið,
sem tryggði verkalýðsstéttinni forréttindi, er að breytast í sósíal-
istiskt lýðræði allrar Jrjóðarinnar, Jrar sem vinsamlegar stéttir
verkamanna og bænda færast nær og nær hver annari, þar sem
JijóðfélagsJnóunin styrkir jafnt og þétt grundvöllinn undir vinátlu,