Réttur - 01.01.1962, Side 50
50
RÉTTUR
Ný gerð reiknivéla, elektrónískur og sjálfvirkur eftirlilsútbúnaður
er kominn frám. Þessar vélar starfa þúsund og jafnvel mörg milljón
sinnum hraðar en mannsheilinn og munu því hafa djúpstæð áhrif
á mannlega hugsun og vinnu. Ef þær eru á einhvern hátt lagðar til
hliðar, tefur það mjög fyrir vexti framleiðslunnar. A hinn bóginn
mundu þær, ef hagnýttar eru, ekki aðeins gera vinnubrögð við
framleiðslu úrelt, heldur og mikið af yfirbyggingu þjóðfélagsins,
bæði stjórnarathafnir og hugmyndafræði.
Með þeim aðferðum í landhúnaði, sem vér vitum fullkomnastar,
væri nú þegar hægt að fæða allan þann manngrúa, sem byggja mun
kringlu jarðar eftir nokkur hundruð ár. Verður það þó ósegjanlega
miklu fleira fólk, en nú skrimtir, ekki sízt ef gert er ráð fyrir
hraðari fólksfjölgun í framtíðinni. Nú er tímabil geimferða hafið,
og áður en varir, verður unnt að setjast að á öðrum hnöttum.
Sérhver dauðdagi er morð.
Mannkyn horfist nú í augu við það verkefni sitt að efla svo
mjög rannsóknir í læknisvísindum, að öllum sjúkdómum megi
bægja frá, og lengja þannig æfiskeið manna. Segja má með fullum
sanni, að í heimi nútímans sé hver dauðdagi morð. Sérhver sá,
sem deyr í dag, hefur verið drepinn, annað hvort beinlínis fyrir til-
verknað manna eða sökum afskiptaleysis. Fyrir meirihluta mann-
kyns, milljónirnar, sem húa í nýlendum og öðrum vanþróuðum
löndum, eru þetla gagngerð morð. Þar deyr fólk milli þrítugs og
fertugs, þó að það gæti hæglega lifað tvisvar sinnum lengur, rétt
eins og vér. En það á engan kost á nógri næringu og læknisþjón-
ustu,og þess vegna deyr það svona fljótt. Fyrsta skylda vor er að
hinda endi á þessi morð.
En það eru fleiri dauðdagar óeðlilegir, þótt það sé ekki eins aug-
Ijóst. Sá, sem deyr úr sjúkdómi, sem hægt hefði verið að stemma
stigu við, er myrtur. Fátæklingarnir deyja úr herklum — það er
félagslegt fyrirhrigði; fæðuskortur, lélegt húsnæði og vinnuþrælk-
un vinnur hug á mótstöðuafli þeirra. En ríka fólkið er ekki undan-
skilið, það deyr í jafnvel meira mæli en þeir fátæku úr alls kyns
hjartaveilu. Fiörutíu af hundr^ði karlmanna í Randaríkjunum