Réttur


Réttur - 01.02.1937, Side 12

Réttur - 01.02.1937, Side 12
hinn ágæti sósíalistaforingi Spánar, Largo Caballero,. (sem áður hafði verið ráðherra í „vinstri lýðræðis- stjórn“, — eins og J. J. vill hafa hana), lærði af hörmungum þeim, sem spánski verkalýðurinn varð að þola af fasismanum, að einungis sú vinstri stjórn, sem beitir sér harðlega gegn fasismanum og auð- valdinu, en hefir samvinnu við kommúnista, getur orðið alþýðunni heilladrjúg. Þessvegna beitti Caball- ero sér fyrir samfylkinguinni með kommúnistum og: nú er nafn hans blessað á hverju fátæku heimili Spánar, því með samfylkingunni tókst í febrúar 1936 að koma fasismanum frá völdum. En sú lýðræðisstjórn, er þá tók við, hafði samt enn ekki lært það, sem Jónas frá Hriflu heldur ekki vill læra, að sönn lýðræðisstjórn verður, til að vera ör- ugg í sessi, að styðja sig við fjöldann og treysta samband sitt við hann, með því að framkvæma hags- munamál hans, — og þarmeð að þora að koma við kaunin á auðvaldinu og víkja afturhaldsseggjunum úr valdastöðum þjóðfélagsins. Það var þetta, sem kommúnistar vildu að spánska stjórnin gerði, en hún þverskallaðist við, — og tnú verður Spánn að þola blóðuga borgarastyrjöld fasismans, sem að miklu leyti hefði verið hægt að losna við, ef Franco og kumpánum hans hefði í tíma verið vikið úr valda- stöðum hersins. Og nú er svo komið, að Kommúnistaílokkur Spán- ar, sem Jónas spáði fyrir dauða og áhrifaleysi, er orðinn stjórnarflokkur ásamt öðrum verklýðsflokk- um Spánar og á tvo ráðherra í stjórn Caballeros. Og" svo hetjulega berjast kommúnistar Spánar gegn fas- ismanum þar, að blað Jónasar flytur sjálft langar lýsingar á foringjum þeirra og hleður á þá lofi. En það er jafnframt hörmuleg sönnun þess, hve hægt lýðræðissinnum Vestur-Evrópu gengur að skilja hættuna af örþrifaráðum og fantaskap auðvaldsins í mynd fasismans, að lýðræðisríki Vestur-Evrópu skulí 140

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.