Réttur - 01.02.1937, Blaðsíða 23
vítahringir er málaflutningur auðvaldsins, sem gerir
ráð fyrir því fyrirfram, að alþýða sé heimsk og trú-
gjörn. Slíkan munað geta verklýðsmálgögn ekki leyft
sér. í málgögnum verklýðsflokks er vonlaust um, að
hægt sé með árangri að reka andróður gegn fasist-
um, Hitler, herveldisstefnu Japana og blámönnum
Francós í sama orðinu og skorin er upp harör til
krossferðar gegn kommúnistum. Alþýða veit nefni-
lega allt of vel, að fasisminn, Hitler, herveldisstefna
Japana og blámenn Francós er allt í einni óslitinni
krossferð gegn kommúnismanum, og hún veit enn-
fremur að Kommúnistaflokkurinn er nátengdasti
flokkur Alþýðuflokksins, já, hún hefir meira að
segja óútrýmanlegan eðlislægan grun um það, að
hvað sem foringjarnir segja, þá sé Kommúnista-
flokkurinn og Alþýðuflokkurinn í raun og veru sami
flokkurinn, og þessvegna getur enginn kraftur milli
himins og jarðar fengið hana til að sameinast fasist-
um, Hitler eða blámönnum Francós í krossferð gegn
kommúnismanum. Alþýða manna veit það líka allt of
vel, þó ekki sé nema af eðlisávísun stéttar sinnar, að
rússnesku Ráðstjórnarríkin eru undir stjórn Kom-
múnistaflokksins hið sanna skjól og bólverk allrar
jafnaðarstefnu í heiminum, og að öreigum heimsins
er, ef á reynir, lítils skjóls að vænta frá hinum veiku
félögum, sem eru tengd II. Alþjóðasambandinu, í
nokkrum þýðingarlausum smálöndum, auk hins alls
vesæla enska Verkamannaflokks. Á þeim degi, sem
Hitler, Francó, Márar, japanski herinn og aðrir þeir
aðilar, sem sumir Alþýðuflokksforingjar vilja á sín-
um myrkustu augnablikum kveðja íslenzka alþýðu
til fylgis við í krossferð gegn kommúnismanum, hafa
brotið 200-miljóna heimsveldi rússneska verkalýðs-
ins undir yfirráð sín, þá er hætt við, að það verði
ekki mikið lið í danska eða enska alþýðuflokknum
til verndar öreigalýð heimsins. Krossferðaprédikan-
irnar gegn kommúnismanum eru fyrst og fremst bar-
151