Réttur - 01.02.1937, Síða 20
að því skapi, sem tollinum næmi. B. P. notaði að
þessu sinni allt áhrifavald sitt innan Alþýðuflokks-
ins, þar á meðal blöð flokksins, til þess að berjast
gegn verkamönnum, þegar þeir gerðu eitt hið harð-
vítugasta 'verkfall, sem lengi hefir verið háð hér á
landi, til að knýja niður benzínverðið. Eins og kunn-
ugt er, beið B. P. ósigur í þeirri deilu og Alþýðu-
flokkurinn, sem gerður var handbendi olíuhring-
anna í þessu máli, beið hinn mesta hnekki í augum
verkamanna, en olíuhringarnir eru hið mest hataða,
svívirðilegasta og purkunarlausasta glæpaauðvald,
sem til er á jörðinni. Hinn beini pólitíski árangur
þessa ótrúlega atferlis var sá, að þúsundir alþýðu-
manna kröfðust þess að ílokkurinn skipti um stefnu,
sliti sig undan anda og yfirráðum British Petroleum,
en fylkti liði við Kommúnistaflokkinn og tæki hönd-
um saman við hann um verklýðssinnaðar kröfur. Hið
ytra tákn þessara straumhvarfa var hin svokallaða
samfylkingarkröfuganga verkalýðsins í fyrra 1. maí,
hin fjölmennasta verklýðskröfuganga, sem sést hefir
hér á landi. Til þess að leiðrétta stefnu British Petro-
leum innan Alþýðuflokksíns og berja í brestina fyrir
flokkinn, sem um tíma í fyrravor virtist vera að lið-
ast í sundur, greip flokksstjómin góðu heilli til þess
úrræðis að taka upp sem stefnuskrá sína flestar hin-
ar róttæku höfuðkröfur samfyikingarinnar frá í
fyrravor, en þær voru í senn runnar undan rótum
Kommúnistaflokksins og róttækra verkamanna inn-
an Alþýðuflokksins. Heill Alþýðuflokksins og við-
gangur á næstu misserum, er undir því kominn hvort
hann hefir siðferðilegt þrek til þess að fylgja þessari
starfskrá eftir í verki. Takist honum ekki að fram-
kvæma starfskrána eftir þann áróður, sem hann hef-
ir þegar hafið um hana, m. ö. o., reynist starfskráin
aðeins orð, orð innantóm, táknar það í reyndinni víð-
tæk vonbrigði í röðum verkalýðsins, væntanlegt
148