Réttur


Réttur - 01.02.1937, Side 27

Réttur - 01.02.1937, Side 27
er það, að þeir læri að líta hvor á annan með virð- ingu eins og tveir vinir, sem hafa að vísu tvö hlutverk að inna, en aðeins eitt markmið. Þeim verður að skilj- ast, að það er í þágu beggja, en þó fyrst og fremst í þágu almennings í landinu, lærðra og leikra, að þeir veiti hvor öðrum gagnkvæman stuðning og fylgi, en geri það ekki að hatursmáli sín á milli, þótt þunga- miðja verklýðsbaráttunnar og hreyfiafl flytjist á víxl frá öðrum flokknum til hins, eins og þráfaldlega hefir gerzt á síðustu árum. Þegar svo langt er komið í skiln- ingi milli þessara tveggja flokka, gæti svo farið, að þeir uppgötvuðu að þeir stæðu allt í einu sameinaðir, og að allar frekari bollaleggingar um sameiningu væri óþarfi. Sigurd Hoel: Ossietzby og friðarver^iaunin. Þessi grein eftir hinn alkunna norska rithöfund, Sigurd Hoel, birtist í tímariti jafnaðarmanna „Det 20de Aarhund- rede“ (des. 1936). Frá kommúnistisku sjónarmiði er lítilshátt- ar við ritgerðina að athuga. Það eru ekki allsstaðar tekin fram þau atriði, sem mestu máli skipta, heldur dregin fjöður yfir þau. En greinin veitir ekki einasta miklar upplýsingar um sögu Ossietzkys, hins fræga friðarvinar, sem árum sam- an hefir verið pyndaður í þýzkum fangabúðum og dauðinn vofir nú yfir, heldur sýnir hún líka áþreifanlega getu- og viljaleysi þýzka lýðveldisins að verjast fasismanum. Greinin er sérstaklega lærdómsrík þeim lýðræðissinnum, sem fjarg- viðrast út af dauðadómunum í Sovétríkjunum yfir mönnum, sem setið hafa á svikráðum við lýðveldið þar. Æskja þeir sömu lýðræðissinnar frekar þess réttarfars, er eins og á Þýzkalandi hélt hlífiskildi yfir fjandmönnum lýðræðisins og 155

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.