Réttur


Réttur - 01.02.1937, Side 31

Réttur - 01.02.1937, Side 31
afleiðingm yrði, ef ekki næðist samkomulag millí þessara tveggja þjóða. Hann vissi frá byrjun, að öll hættan stafaði af víg- búnaðarframleiðslunni og hernaðarsinnunum í báð- um löndunum. Sem Þjóðverji hefði hann getað val- ið sér létt og þakklátt hlutverk, að fletta ofan af hernaðarstefnu Frakka. Ossietzky valdi aðra leið. Hann dró að vísu enga dul á skoðanir sínar um frönsku hernaðarstefnuna; en hann áleit það aðal- hlutverk sitt sem Þjóðverja að afhjúpa hinn þýzka vígbúnað — sem ekki var síður hættulegúr, þó hann yrði að nokkru leyti að fara fram í leyni. Menn af sömu stefnu og Ossietzky háðu baráttu á tvær hendur — móti kommúnistum, sem trúðu þá á byltingu hvern næsta dag og álitu því allar slíkar sáttaumleitanir hlægilegar; og gegn hernaðarsinn- unum, opinberum og leynilegum, sem bjuggust til hefnda að tíu árum liðnum og töldu þessvegna allt samkomulag vera svik. í fyrstu sigraði stefna Ossietzkys. Á ráðherratím- um Stresemanns gekk Þýzkaland í Þjóðabandalagið. Daginn, sem það gerðist, lýsti Stresemann því opin- berlega yfir, að það hefði aldrei áunnizt, ef ekki hefði notið við starfsemi Ossietskys og félaga hans. Því neitar enginn, að árangurinn varð magur. Það er önnur saga að skýra orsökina til þess. 1927 varð Ossietzky ritstjóri að vikublaðinu ,,Die Weltbuhne“. Frá þeim tíma byrjar start' hans fyrir alvöru. Hvað var ,,Die Weltbúhne“? Undir ritstjórn Ossietzkys varð „Weltbiihne“ lang- samlega bezt og merkast hinna pólitísku menningar- legu tímarita Þýzkalands. Það var lítið, fátæklegt hefti, 48 blaðsíður, prentað á ódýran dagblaðapapp- ír. En það var lesið á skrifstofu hvers dagblaðs í Þýzkalandi, í stjórnardeildum og ráðuneytum, í klúbbum og kaffihúsum, leshringum og stjórnmála- 159

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.