Réttur


Réttur - 01.02.1937, Síða 58

Réttur - 01.02.1937, Síða 58
ari játandi. Að þessu sinni endurtók franska stjórn- in þó ekki sína fyrri villu. Hún fékk þingið til að samþykkja lög, er h e i m i 1 u ð u henni að gefa út bann við brottför sjálfboðaliða frá Frakklandi, e f alþjóðlegt samkomulag næðist um slíkt bann. Sovét- ríkin lögðust í svari sínu gegn þeirri hugmynd, að herskipum hverrar þjóðar yrði fengið ákveðið svæði til eftirlits og stungu upp á því, að hafið yrði sam- eiginlegt eftirlit þeirra þjóða, er þátt tækju í því, meðfram allri strandlengju Spánar. Þessi tillaga kom, eins og vænta mátti, fasistaríkjunum í mikinn vanda. Blöð þeirra svöruðu í gremju sinni, að hún væri fram sett til þess að koma í veg fyrir allt raun- verulegt eftirlit (!). — Yfirleitt voru svör fasistaríkj- anna varajátningar við fyrirspurninni, en full af vífilengjum, til þess ætluðum að draga málið á langinn. Enn hefir ekkert gerzt í málinu, en hlut- leysisnefndin hefir boðað til fundar einhvern næstu daga, til þess að ræða svör hinna ýmsu ríkja. En úr því hlýtur nú að verða skorið á allra næstu tímum, hvort þessum hlutleyaisskrípaleik verður hætt, eða ekki. Hin friðarsinnuðu lýðræðisríki Evrópu hafa' nú teygt sig eins langt til samkomulags við fasistaríkin og auðið er, en öll sú viðleitni hefir sýnt enn áþreifanlegar, að því meiri undanlátssemi sem þeim er sýnd, því ágengari gerast þau í hverju einu. Fasisminn náði völdum í Þýzkalandi fyrir undanláts- semi sósíaldemókrata og vinstri flokkanna. ítalska fasismanum tókst að ræna Abessiníu fyrir undanláts- semi Þjóðabandalagsins. Spánski fasisminn gat hafið uppreisn sína vegna undanlátssemi þeirrar vinstri stjórnar, sem stofnuð var upp úr kosningunum í fyrra. Yerði þessari undanlátssemi haldið áfram, hleypir fasisminn heiminum í ófriðarbál áður en nokkurn varir. Það má ekki verða. B. Fr. 186

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.