Réttur - 01.01.1940, Blaðsíða 1
RETTUR
XXV. ARGANGUR. JANCAR—AGÚST 1940. 1. HEFTI
Veraldarstríð og
verkalýðshreyfíng
1 desembermánuði 1917, nokkrum vikum eftir bylt-
ingu bolsévikka, skrifaði Lenin örstulta tímaritsgrein
Um brauð og frið. Par segir hann svo: „Ef sósíalism-
inn fær ekki borið hærra hlut, mun íriður auðvalds-
ríkjanna ekki verða annað en vopnahlé, stutl setugrið
og undanfari nýrra þjóðmorða”.
Tuttugu árurn eftir að þessi orð voru sögð rættist
spá Lenins. Versalafriðurinn hefur verið rofinn. Hin
pólitíska landaskipan, sem klambrað var saman eftir
lok síðustu heimsstyrjaldar, liggur í fjörbrotunum^ og
þegar þetta er skrifað, á 12. rnánuði stríðsins, liggur
allt meginland Vestur-Evrópu fyrir fótum hins þýzka
nazisma. Hcr Lýzkalands hefur búizt um á allri strand-
lengju meginlandsins, frá Pýreneafjöllum norður að
íshafi og horfist nú í augu við Bretland, sem ætlar
augsýnilega að selja heimsveldi sitt dýru verði. í Afríku
er Italía farin að leggja undir sig lönd Breta. Hið gula
auðvald Asíuheims hugsar sér til hreyfings og hygg-
ur á nýja landvinninga við Kyrrahaf, er hin hvítu
heimsveldi eru mædd af innbyrðis deilum. Bandaríki
Norður-Ameríku eru í óðaönn að leggja undir sig
markaði Vesturálfu og spinna gull úr blóðugum val
Evrópu. Pau eru þessa stundina ein helzta vopnasmiðja
Bretlands og forðabúr. Áður en varir kunna þau að
standa við hlið þess með her sínum og flota. Og á
meðan þessu fer fram i heimahögum auðvaldsins
1