Réttur


Réttur - 01.01.1940, Side 10

Réttur - 01.01.1940, Side 10
III. Heimsstyrjöldin 1914—18 var stórkostlegasta afk raun er stórveldi nútímans höfðu þreytt með sér. Á slríðsárunum voru vígbúnar alls um 65 mill. manna. Af þeim féllu um 10 mill., 7 mill. urðu örkumla. Að stríðinu loknu dóu um 10 millj. manna úr drepsóttum og hallæri, er ófriðurinn hafði valdið. 3200 skip, eða 13 mill. tonna, lágu á hafsbotni. „Kostnaður” stríðsins var lalinn 270 milljarðar gulldollara, þótt það raunar gangi ósvífni næst að túlka stríðið í tölum og færa það til verðs. Pað má því með sanni segja, að baráttan fyr- ir „frelsinu” og „menningunni” hafi reynst mönnunum alldýr. Hið vinnandi mannkyn hefur orðið að bera drápsklyfjar heimsófriðarins í tuttugu ár og nú hefur nýju veraldarstríði verið bætt á þess bogna bak.. En það væri þó synd að segja, að allir hefðu farið slyppir og snauðir út úr heimsófriðnum. Sigurvegararnir tryggðu sér álitlegan hluta úr þrotabúinu. Um það fór- ust Loyd George svo orð eftir stríðslokin: „Sannleik- urinn er sá, að við höfum komið fram vilja okkar. Yið höfum fengið flest af því, er við ætluðum okkur.... Pýzki flotinn hefur verið afhentur, bæði herflotinn og verzunarflotinn, og nýlendur I’ýzkalands hafa verið látnar af hendi. Einhver hinn hættulegasti keppinaut- ur okkar í verzlun hefur fengið alvarlega útreið, og bandamenn okkar eru um það bil að verða aðallánar- drottnar hans. Allt þetta er ekki lítill árangur”. Já, þetta var vissulega ekki lítil árangur! Pýzkaland varð að láta af hendi um 3 millj. ferkm. og 12 millj. nýlendu- búa, og fékk England um 2 mill. ferkm. og 6 mill. ibúa. En hitt var þó kannski enn þýðingarmeira, að Þýzkaland var klippt á hæl og tá. Pað missti um 7 mill. ha. af heimalandi sínu og um 6 mill. íbúa. Af- leiðing þessa var sú, að Pjóðverjar misstu um 12% af kornframleiðslu sinni og meira en 12% af búpeningi sínum. Auk þessa misstu þeir 68% af zinkframleiðslu sinni, 26% af blýmálmi, % af járnmálmi og */b af 10

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.