Réttur


Réttur - 01.01.1940, Page 14

Réttur - 01.01.1940, Page 14
á undan heimskreppunni fóru. En eftir aS hún var byrjuð tók þó út yfir allan þjófabálk. StjómleysiS og andhælisskapurinn í atvinnulegu efnum gengu svo úr hófi fram, aS sjálfir æSstuprestar auSvaldsskipulagsins tóku aS efast um, hvort þaS myndi vera meS réttu ráSi. PaS þarf því engan aS furSa orS hins enska stjórnmála- manns Stanley Baldwins, þau er hann sagSi viS Frí- kirkjusöfnuSi í Wales áriS 1935: „Eg hef tekiS þátt í alþjóSlegum stjórnmálum mest allan timann síSan stríSinu lauk, og ég vil ekki telja mig til bölsýnis- manna, en þó verð ég aS segja þaS, aS mér hefur stund- um fundist ég vera staddur á geSveikrahæli”. Og þaS hefur áreiSanlega rnargur maSurinn veriS settur á vit- lausraspítala fyrir minna, þegar atvinnuleysingjar Kaupmannahafnar gengu soltnir og betlandi á meSan dönskum nautpeningi var breytt í vagnáburS og sápu! Hin voluSu hungurár kreppunnar hlutu aS enda meS skelfingum, eins og líka er komiS á daginn. Pau urSu kapphlaup milli byltingarlTi'eyfingar verkalýSsins og hins snauSa fjölda annarsvegar og gagnbyltingar auS- valdsins hinsvegar. Pví kapphlaupi lauk meS sigri auSr valdsins um stundarsakir. Fasisminn og styrjöldin báru hærra hlut, verkalýSurinn og lýSræSiS voru ofur- liSi borin. AuSvaldiS hjó sig út úr kreppunni og reyndi aS leysa lifsspursmál sín meS ófriSi, er þaS gat ekki leyst þau á friSsamlegan hátt. Japan reiS fyrst á vaSiS í Austri, er þaS hóf sókn sfna á Mansjúríu og tók aS leggja undir sig hina miklu markaSi Asíu meS vopnavaldi. Japan er fátækt aS hrá- efnum, en hefur aukiS iSnaS sinn og framleiSslu svo mjög, aS framleiSslumagn þess hefur vaxiS um 197% á árunum 1913—’29. Ekkert aúSvaldsríki veraldarinn- ar hefur tekiS hlutfallslega svo hraSfara iSnaSarþróun á þessum árum sem Japan. En þessu vígreifa auSvalds- ríki þykir réttur sinn háfa veriS mjög fyrir borS borinn í skiptingu heimsins og tekur því markaS Kínaveldis meS valdi eins og arf, er þaS þykist boriS til. . 14

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.