Réttur


Réttur - 01.01.1940, Page 56

Réttur - 01.01.1940, Page 56
Fáir atburðir hafa orðið möxmuin tilefni til eins rangra og fjarstæðukenndra ályktana og Finnlandsstyrjöldin. Sam- kvæmt löggiltri framsetningu hinnar leigðu auðvaldspressu átti Finnlandsstríðið að hafa sannað, að rússneski herinn væri skipulagslaus hjörð, vopnlítil, hálfnakin, kunnáttulaus og heimsk, sem léti Finna tæla sig í hverja gildruna af ann- arri. Á hverri viku hættu fjölmennar hersveitir sér inn á hemaðarsvæði Finna, sem létu þær sækja fram eins og hent- ugt þótti og umkringdu þær síðan í ró og næði og gjöreyddu. Hópur skynlausra skepna er varari um sig næst, ef hann hefur gengið í gildru og orðið fyrir áfalli, en Rússamir gengu vikuna eftir í nákvæmlega sömu gildruna, vom um- kringdir og brytjaðir niður tugþúsundum saman. Og þriðju vikuna gengu þeir enn í hina sömu gildru og eins í fjórða sinn og fimmta sinn og sjötta sinn o. s. frv. Þannig var auðvelt fyrir hinar finnsku skíðamannahersveitir að brytja Rússana niður hundmðum þúsunda og jafnvel milljónum saman, því að auðvitað höfðu hinir rússneskulhermenn varla séð skíði, hvað þá, að þeir kynnu á skíðum. Hver Finni skaut að meðaltali 50 Rússa, þvi að auðvitað kunnu rússneskir hermenn ekki að fara með byssu. Rússarnir vom blátt áfram murkaðir niður eins og hráviði, eða þeir helfrusu tugum þúsimda saman á hjarnbreiðum Finnlands. Hroðalegar sög- ur voru af þessu sagðar. Og í frásögnum dagblaða og út- varps og af samtölum manna á meðal mátti gera fróðlegar sálfræðiathuganir á því, hvernig meinlausar borgarasálir fylltust óslökkvandi blóðþorsta og gleymdu sjálfum sér í of- umautn þeirrar sælu fullvissu, að á degi hverjum yrðu þús- undir rússneskra hermanna að þola kvalafullar lemstranir og dauða. Svona háskalegum meinsemdum í sálarlífi fjöld- ans getur hin ræktaða múgæsing valdið. Sannleikurinn um Finnlandsstríðið er í sem fæstum orð- um þessi: Hin upphaflega hemaðaráætlun herforingjaráðs Rauða hersins var sú að brjótast vestur að Helsingjabotni þar sem Finnland er mjóst og klippa það þannig í sundur í miðju. Þessi tilraun mistókst, eins og rússneskir herfor- ingjar viðurkenna sjálfir, og ástæðan var sú, að veður spillt- 56

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.