Réttur


Réttur - 01.01.1940, Page 76

Réttur - 01.01.1940, Page 76
Hann var fæddur 11. apríl 1825 í Breslau í Slesíu og var af Gyðingum kominn í báðar ættir. Faðir hans var efnaður kaupmaður og allflestir ættmenn lians fengust við kaupsýplu. Frá æskuárum hans hefur geymst merkileg sögu- leg heimild, sem varpar björtu ljósi á sálarlíf þessa unga, gáfaða Gyðings. Fað er dagbók hans, er hann hélt 15—16 ára gamall. Af henni verður ráðið, að Lassalle hefur verið óvenjulega bráðþroska unglingur, lífsreyndur í mörgum greinum eins og futltíða maður. Hann segir þar frá leyndustu hugrenningum sínum og dregur ekkert undan. Hann lýsir verzlunarprett- um í viðskiptum við jafnaldra sína með óblandinni kaupmannsgleði kynstofns síns. Skólapörum sínum gleymir hann heldur ekki, þótt þau séu alvarlegs eðlis. Hann íalsar t. d. rithönd foreldra sinna þeg- ar þarf að undirskrifa vitnisburðabækur hans, því að hann fær alltaf „slæmt” i hegðun. Falsanirnar komast upp, og Lassalle verður að víkja úr latínu- skólanum í Breslau. Pá var hann settur til verzl- unarnáms í Leipzig, gekk námið vel, en kom sér illa við kennara sína og skólabræður, að því er skóla- stjórinn vottar, og húsráðandi hans ber honum líka illa söguna. 1 Leipzig vaknar Lassalle til pólitískrar meðvít- undar. 16 ára gamall er hann orðinn byltingasinn- aður lýðræðis- og lýðveldismaður. En hann leynir því ekki, hver ástæðan er. Hann skrifar í dagbók sina þessar línur: Ef eg athuga málið gaumgæfilega, þá er eg fullur eigingirni. Væri eg fæddur prins eða fursti, myndi eg vera höíðingjasinni og aðalsmaður af lífi og sál. En eins og ástatt er, þá er eg bara óbeyttur borgarasonur, og því verð eg lýðveldissinni, þegar mér vex fiskur um hrygg. Lærdóms- og uppvaxtarár Lassalles voru pólitísk' eymdarár Pýzkalands. Landið var bútað í meir en 30 fullvalda ríki. Konungborin meðalmenni og smáhöfð- 76

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.