Réttur - 01.01.1940, Side 80
urskerlingum samtíðarinnar af báðum kynjum var
vinátta þeirra lostætt umræðuefni Lassalle neitaði
því jafnan, bæði fyrir rétti og við vini sína, að þau
hefðu nokkurn tíma lifað ástalífi. Af bréfum þeirra
verður ekkert ráðið um þetta, en hitt er það, að bréf-
in, sem fóru á milli þeirra, eru einn hinn fegursti
vottur, sem til er í þýzkum bókmenntum um
íölskvalausa vináttu karls og konu.
Það var nú ekki áitlun Lassalles að setjast í helgan
stein og njóta lífeyris síns í borgaralegu hóglifi. Hann
hafði fengið í vöggugjöf eirðarleysi athafnamannsins
og hinir stóru draumar, er hann hafði dreymt á æsku-
árunum, voru ekki gleymdir. Metnaðargirnin svall í
brjósti hans, hugur hans þráði víðtæk og almenn við-
fangsefni. Hann vildi verða pólitískur og vísindalegur
rithöfundur, taka aftur upp þráðinn, sem hann hafði
sleppt, er hann fór í krossferðina fyrir greifynjuna.
Árið 1857 settist Lassalle að í Berlín. Um sama leyti
urðu pólitísk umskipti í Prússlandi. Konungurinn, Frið-
rik Vilhjálmur IV, var orðinn geðveikur og krónprins-
inn, Vilhjálmur, tók að sér stjórnina. Hin andlausa og
ófrjóa afturhaldsöld, sem rikt hafði i Prússlandi og
öðrum þýzkum löndum, var nú komin að fótum fram.
Það var vorþeyr í lofti, þjóðernistilfinning fólksins var
vöknuð, hvaðanæfa heyrðist hrópað á pólitíska samein-
ingu Pýzkalands í eitt ríki. Menn fundu það á sér, að
bráðlega myndi draga til stórtíðinda 1 Pýzkalandi og
Evrópu, en enginn hafði þó skjálftann af komandi við-
burðum eins í taugum sér og Lassalle. Hann er á þess-
um árum önnum kafinn 'við að ljúka heimspekirann-
sóknum sínum og gefur út tvö rit um þau efni. En
hann er þyrstur í pólitískar athafnir, og í bréfum til
vina sinna kvartar hann sáran yfir því að þurfa að
sinna fræðilegum störfum á tímum, sem krefjast verk-
legra gjörða. Hann stendur einn uppi í Pýzka-
landi með arf byltingarársins 1848, flokkslaus
og einangraður. Pólitískar hugsanir sínar verð-
«0