Réttur


Réttur - 01.01.1940, Page 81

Réttur - 01.01.1940, Page 81
ur hann aS túlka í heimspekilegum ritum og jafnvel í leikriti. En þegar stríSiS skáll á milli Austurríkis og Frakklands 1859 og Italía reis upp til þjóSlegrar sameiningar, þá skrifaði Lassalle smábækl- ing og krafðist þess af Prússlandi, að það notaði nú tækifærið og sameinaði þýzk lönd í samfelt riki. Prússastjórn hlýddi ekki ráðum hins rauða lýðveldis- manns og það jafnvel þótt einhver slyngasti sendiherra hennar, Bismarck, réði henni til þess sama. 1 stað póli- tískra aðgerða á erlendum vettvangi sló 1 mikla deilu innanlands milli Prússastjórnar og frjálslynda flokks- ins. Deilan snerist upphaflega um skipulag prússneska hersins og fjárveitingar til hans, en brátt urðu átökin um það, hvort þingræði skyldi ríkja í landinu eða öfl- ug, en þingbundin konungsstjórn. Frjálslyndi flokkur- inn hélt fast við fjárveitingarrétt stjórnarskrárinnar, konungur stóð á þeim rétti, er guð hafði gefið honum, og þóttust báðir aSilar hafa lög að mæla. Nú þótti Lass- alle tími kominn til að kveðja sér hljóðs. Snemma á árinu 1862 hélt hann fyrirlestur í Berlín, tók frjáls- lynda flokkinn á kné sér og útlistaSi fyrir honum deilu- efnið. Þetta er ekki spursmál um rétt eða órétt, þetta er spursmál um vald. Nokkrum mánuðum síSar settist Bismarck í forsætisráSherraembættið, og hinn opinskái aðalsmaður sagði þinginu þaS sama: Réttarspursmál geta hæglega orðiS valdaspursmál, herrar mínir, sagði hann. Lassalle reyndi nú í fyrstu aS vingast viS frjálslynda flokkinn og fá hann til að beita konungsvaldið bitrari vopnum. Hann lagSi til aS þingmenn gerðu verkfall og tæki ekki lengur þátt í þingstörfum, þar sem stjórnin veitti fé til hersins, þótt engin fjárveitng lægi fyrir. En frjálslyndi flokkurinn sinnti þessu engu. Lassalle varð þá úrkula vonar um að geta fengiS nokkru áorkað meðal hinnar frjálslyndu borgarastéttar, og hugsaði henni þegjandi þörfina. Um þetta leyti voru verkamannasamtök sem óðast 81

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.