Réttur - 01.08.1971, Side 25
kúgurum sínum. Hann skoðar baráttu hinna
svörtu öreiga í alþjóðlegu samhengi og lítur
á hana sem hliðstæðu þjóðfrelsisbaráttu und-
irokaðra þjóða í þriðja heiminum.
Mál Angelu Davis, sem nú er fyrir dóm-
stólunum, hefur einnig orðið til að magna
ágreining hinna tveggja andstæðu fylkinga.
Miðstjórn samtakanna styður Angelu Davis
sem pólitískan fanga á sama hátt og mið-
stjórnin studdi þau Bobby Seale og Erica
Huggins, meðan réttarhöldin yfir þeim stóðu
yfir. Cleaver hefur hinsvegar fordæmt Ang-
elu Davis sem „bandingja" kommúnista, en
þeir stefna að hans dómi að því að ná tang-
arhaldi á byltingarhreyfingu blökkumanna og
ætla á þann hátt að sundra samtökum svartra
hlébarða.
Segja má,að sú kreppa sem „Svörtu hlé-
barðarnir" hafa átt í upp á síðkastið, sé þrí-
þætt: 1) hugmyndafræðilegur ágreiningur;
2) sundrung í forustuliði; 3) erfiðleikar í
almennu starfi grunneininga samtakanna
vegna ofsókna ríkisvaldsins.
A síðustu mánuðum hafa sézt þess ýmis
marki, að heldur er að rofa til hjá samtökun-
um á nýjan leik. Akæruvaldið hefur farið hin-
ar mesm hrakfarir í málatilbúnaði sínum
gegn ýmsum hópum svartra hlébarða fyrir
dómstólunum. Hópur sá úr samtökunum,
sem kom fyrir rétt í New York vegna ákæru
um skemmdarverkastarfsemi, var sýknaður af
þeirri ákæru á sl. vori og í júní sl. gerðist það
svo í New Haven, að dómarinn í máli, sem
höfðað hafði verið gegn Bobby Seale og Erica
Huggins vegna ákæru um samsæri í því skyni
að fremja morð, vísaði málinu endanlega frá.
Þetta gerðist eftir að kviðdómur, skipaður 7
hvítum mönnum og 5 blökkumönnum, gat
ekki komizt að neinni niðurstöðu í málinu.
Kviðdómurinn hafði þá setið á rökstólum í
6 daga, en alls stóð málflutningur í máli
þessu í 6 mánuði. Mun kostnaður ákæru-
Angela Davis
valdsins vegna málatilbúnaðarins nema um
iy2 milljón dollaralUrskurður Harold M.
Mulvey dómara kom mjög á óvart, en hann
rökstuddi úrskurðinn með því, að ókleift væri
145