Réttur - 01.08.1971, Síða 48
það enn rækilegar en hingað til. Holland
hefur fordæmt Nato fyrir stuðninginn við
Portúgal. Og í þeirri nefnd Sameinuðu þjóð-
anna, sem fjallar um afnám nýlendukúgunar,
var samþykt ályktun, sem fordæmdi Portúgal
fyrir eiturefnahernaðinn í Angola. Unesco —
menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna, —
hefur ákveðið að styðja að því að koma upp
skólum á hinum frelsuðu svæðum. — Það
þarf að viðurkenna frelsishreyfingu Angoiu-
búa sem fulltrúa þjóðarinnar.
SUDAN
í síðari hluta júlí gerðu ungir herforingjar
í Sudan skyndibyltingu og steyptu Numeiry
hershöfðingja af stóli, sem brotist hafði til
valda í maí 1969-
Ekki var sannað að kommúnistaflokkur
Súdan, sem talinn var sterkasti kommúnista-
flokkur Afríku, stæði á bak við þessa bylt-
ingu. En nokkrum dögum síðar braust Num-
eiry, sem aðeins hafði verið settur í stofu-
fangelsi, til valda á ný og lét nú kné fylgja
kviði: ógnarstjórn var komið á í landinu,
hinir byltingarsinnuðu herforingjar drepnir,
gengið var milli bols og höfuðs á kommún-
istaflokknum, hinn aldni formaður hans,
Madjoub, er setið hafði í fangelsi, var dæmd-
ur til hengingar, þótt engin sök væri á hann
sönnuð. Var nú greinilegt að afturhaldsöflin
í landinu ætluðu að nota tækifærið, til að
reyna að kæfa verkalýðshreyfinguna og komm-
únistaflokkinn í blóði líkt og afturhaldið í
Indónesíu reyndi með blóðbaðinu mikla
1965.
Ognarstjórn Numeiry sætti miklum mót-
mælum frá verkalýðshreyfingu og komm-
únistaflokkum, eklci síst sósíalistísku land-
anna. Svaraði Numeiry með brottrekstri ým-
issa sendiherra þeirra. Sovétríkin hafa stutt
Súdan mjög fjárhagslega, borgaralegar heim-
ildir telja að Sovétríkin hafi látið Súdan fá
vopn, vélar og matvæli fyrir 3—4 miljarða
ísl. króna síðasta ár. — Það var í frásögur
fært að kínverska alþýðustjórnin hefði óskað
Numeiry til hamingju með að hafa sigrast á
byltingarmönnum. Sé það satt, gerist utan-
ríkispólitík Kínverja all kaldrifjuð.
Stuðningur Sovétríkjanna við Arabalöndin
hefur verið gífurlega mikill. Er hann veittur
þeim sem þjóðum, er berjist gegn imperial-
ismanum. En svo rétt sem sú stefna er fræði-
lega séð, að styðja fornar nýlenduþjóðir í
frelsisbaráttu þeirra, þá sýnir reynslan af
Indónesíu og Arabalöndunum nú, hvílík
vandkvæði eru á framkvæmd hennar. Þeir
þjóðlegu borgarar eða hershöfðingjar, sem
taka þátt í að hrista nýlenduokið af þjóð
sinni, geta í einu vetfangi breytst í harðvítuga
kúgara gagnvart alþýðu landsins og leita þá
jafnframt oft til auðhringanna til að festa
völd sín, eins og gerst hefur í Indónesíu. I
Arabalöndunum hafa þessir menn sums stað-
ar skreytt sig með nafni sósíalista, svo sem í
Egyptalandi, þar sem arabíska sósíalistabanda-
lagið er eini lögleyfði flokkurinn. Hefur þetta
gengið svo langt að jafnvel marxístískir
kommúnistaflokkar hafa litið á þá sem sósíal-
istíska flokka. Ljóst er að mikil þörf er á
gagnrýni og endurskoðun á allri þessari af-
stöðu þegar þessir valdhafar koma fram sem
böðlar og blóðhundar gagnvart verklýðs-
hreyfingu og marxistískum sósíalisma. Það
mun ekki fjarri lagi sem sagt hefur verið að
þessir valdhafar séu með fæturna í Moskvu
en hjartað í Washington.
AUÐURINN KÝS
Forsetaframboð í Bandaríkjunum er for-
réttindi miljónamæringa, ef einhver mögu-
168