Réttur - 01.04.1973, Page 29
19■ marz. Verkamannafélag Siglufjarðar
semur við „Bergenska gufuskipafélagið" um
að Akureyrarvörurnar í Novu verði ekki af-
greiddar neinstaðar án leyfis Verkamannafé-
lags Akureyrar og Verkam.fél. Siglufjarðar.
25. marz. Bæjarstjórn Akureyrar og Verka-
mannafélag Akureyrar undirskrifa samning,
þar sem kauptaxti Verkamannafélagsins er
viðurkenndur og kauplækkunartilraun í
tunnusmíðinni hrundið. Einnig að málshöfð-
anir skuli niður falla. — Þar með er unninn
fullur sigur í kaupdeilunni og klofnings- og
kauplækkunartilrauninni hrundið.
1.—4. apríl. Þing Verkalýðssambands
Norðurlands (V.S.N.) á Akureyri. Gefur út
ávarp til verkalýðs, er birtist í „Verkamann-
inum" 7. apríl. Þar er skorað á allan verka-
lýð að sameinast gegn vaxandi hættu á fas-
isma. Skýrt var þar og frá því að uppi hefðu
verið hugmyndir um að senda „Ægir" norður
hlaðinn hvítliðum, að fyrirætlanir hefðu ver-
ið um að flytja þá Jón Rafnsson og Þórodd
Guðmundsson nauðuga burt með „Dettifossi".
(Slíkir nauðungarflutningar á verkalýðsfor-
ingjum höfðu verið framdir 1932 á Axel
Björnssyni í Keflavík og Hannibal Valdi-
marssyni í Bolungavík.
4. apríl. Jón Rafnsson kallaður fyrir rétt
hjá bæjarfógetanum á Akureyri kl. 10. Þeg-
ar hann neitar að svara fyrir stéttadómstóli,
er hann dæmdur í varðhald. Þing V.S.N.
sendir bæjarfógeta mótmælabréf og krefst
þess að Jón verði látinn laus. — Þóroddur
Guðmundsson kallaður fyrir rétt kl. 4'/2.
Neitar að svara, en sleppt. — Klukkan 6
safnast nokkur hundruð manns saman fyrir
utan bæjarfógetaskrifstofurnar (í húsi KEA).
Einar Olgeirsson heldur ræðu af vörubíls-
palli. Mótmæli samþykkt. Jón Rafnsson lát-
>nn laus. — Á fundi við Verklýðshúsið tala
þeir Jón og Einar síðan til mannfjöldans.
Þannig lauk þessari viðureign með alger-
Verkfalli lýst yfir.
Fylkingar mótast
— og siga saman.
93