Réttur - 01.04.1973, Page 72
INNLEND n r
VÍÐSJÁ □u :
YFIRLIT
FRÁ 15. FEBRÚAR
15. febrúar: Lagt fram á alþingi frumvarp
til laga um heildsölu lyfja, stjórnarfrumvarp.
Undirbúið af nefnd sem Magnús Kjartans-
son heilbrigðisráðherra skipaði. Um svipað
leyti kemur fram frumvarp um lyfjafram-
leiðslu ríkisins. Ekki tókst að afgreiða þessi
frumvörp á þinginu.
21. febrúar: Lagt fram á alþingi laga-
frumvarp um að ríkið fái allan rétt til um-
ráða og nýtingar háhitasvæða. Þetta frum-
varp varð að lögum á þinginu.
26. febrúar: Samþykkt á alþingi að heim-
ila ríkisstjórninni að fullgilda viðskiptasamn-
ing við EBE. Samningur þessi kveður á um
gagnkvæmar tollalækkanir, en yfirstjórn EBE
áskilur sér þó fyrirvara um lækkanir tolla
af sjávarafurðum unz „viðunandi” lausn
fæst á landhelgismálinu.
8. marz: Morgunblaðið leggur til að Is-
lendingar biðji Breta um að þeir láni einn
dráttarbátanna, sem gæta veiðiþjófanna, til
að hjálpa til í Eyjum. Þjóðviljinn nefnir
Morgunblaðið af þessu tilefni „þriðja drátt-
arbát brezkra hugsmuna í íslenzkri land-
helgi".
9. marz: Samkomulag næst milli háseta og
„togaraeigenda". Kjarni samkomulagsins er
að hásetalaun hækka um 27%. Verkfall há-
seta hefur nú, 9- 3-, staðið í 45 dag. En
togaraflotinn var stöðvaður áfram því nú
voru yfirmenn í verkfalli.
12. marz: Kosningar fara fram í Starfs-
stúlknafélaginu Sókn og eru það einu kosn-
ingarnar um stjórnir sem fram fara í verka-
lýðsfélögum á þessu ári. A-listi hlaut 336
atkvæði og var Guðmunda Helgadóttir kjör-
in formaður, en Margrét Auðunsdóttir gaf
ekki kost á sér á nýján leik. B-listinn hlaut
197 atkvæði.
14. marz: Hannibal Valdimarsson, félags-
málaráðherra, greinir frá því í matarboði
ungra kaupsýslumanna (!!!) að hann sé
hlynntur því að Islendingar sendi málflytj-
ana til Haag-dóstólsins. Morgunblaðið er
náttúrlega fyrst til þess að birta fréttina og
næstu vikur er hart deilt um málið. Þjóð-
viljinn og Tíminn hafa eindregna afstöðu í
málinu, þingflokkur Alþýðubandalags og
Framsóknar sömuleiðis, Bjarni Guðnason úr
þingflokki frjálslyndra og Magnús Torfi
Olafsson, menntamálaráðherra eru sama
sinnis. Engin tillaga kom fram á þinginu um
málið áður en því var frestað nema tillaga
Bjarna Guðnasonar um að senda ekki mann
til Haag. Sú tillaga komst ekki til umræðu.
Hannibal flytur tillögu á flokksstjórnarfundi
frjálslyndra í maí um að senda mann til
Haag, en hún nær ekki fram að ganga. A
sama fundi tilkynnir Hannibal að hann vilji
losna við ráðherradóm.
19- marz: Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins gerir ályktun um að fráleitt sé
að senda mann til Haag (Þjóðv. 20. marz)
og næstu vikur á eftir birtast æ fleiri mót-
136