Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 1
Úrræðaleysi gagnvart börnum með geðraskanir ÚRRÆÐALEYSI ríkir hjá mörgum skóla- stjórum gagnvart nemendum með geðrask- anir og erfiða hegðun. „Þetta brennur á stjórnendum. Ég finn að þetta liggur á þeim og þeir kvarta yfir þessu,“ segir Hanna Hjartardóttir, formaður Skólastjórafélags Ís- lands. Sálfræðingar hjá þjónustumiðstöðinni Mið- garði segja að markmiðið hljóti að vera að gera skólana meira sjálfbjarga til að taka á þessum málum. „Kennarar segja gjarnan við okkur að þeir hafi ekki þekkingu til að takast á við margt af því sem fer fram inni í bekkn- um. Það eru kennararnir sem eru með þess- um krökkum allan daginn og það er mik- ilvægt að styðja þá og gera þeim kleift að mæta þessu,“ segja þeir. Kennaranemar benda á að meira þyrfti að kenna um börn með sérþarfir í náminu við KHÍ. „Við þyrftum að læra um geðraskanir, lík- amlegar fatlanir, langveik börn og svo fram- vegis,“ segir Auður Ásgeirsdóttir, sem út- skrifast úr KHÍ í vor. Aðrir taka undir og benda á að meiri agastjórnun þyrfti sömuleið- is í námið. Grétar Marínósson prófessor í sérkennslu- fræðum við KHÍ segir að eins og staðan sé í skólakerfinu í dag sé það ekki sérfræði- menntaða fólkið sem sinni börnunum með mestu sérþarfirnar, það er sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar, þroskaþjálfar, námsráð- gjafar eða sérkennarar. Þetta geri stuðnings- fulltrúar. „Við erum komin í þá stöðu að þeir sem hafa minnsta menntun í þessum efnum, sinna þessum börnum mest. Þetta er svolítið sorg- legt og raunar gegn öllum hugmyndum um hvernig eigi að fara með þessi mál,“ segir hann. Bara ekki í mínum bekk! Sú stefna að hverfisskólar taki við öllum nemendum, fötluðum sem ófötluðum, gengur undir nafninu skóli án aðgreiningar. „Ætli 95% kennara segist ekki vera fylgjandi þess- ari stefnu en síðan fylgir á eftir: Bara ekki í mínum bekk! Það er það sama og skólarnir segja oft: Við erum fylgjandi stefnunni, en bara ekki núna og ekki hér,“ segir Grétar. Hann segir framkvæmd stefnunnar að stórum hluta fara eftir því hversu mikils skól- inn treysti sér til og hvort menn séu til dæm- is vanir að umgangast fatlaða. Aðrir segja að meiri bjargir verði aftur á móti að koma til. Ísland er meðal þeirra landa sem hafa fæst börn í sérdeildum og sérskólum miðað við samanburðarlönd. Innan við 1% íslenskra nemenda er í sérdeildum eða sérskólum. Í Finnlandi er hlutfallið 5,3%. Innan við 1% íslenskra nemenda er í sérdeild- um eða sérskólum Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sigridurv@mbl.is Morgunblaðið/ÞÖK  Allt litrófið í einni skólastofu | 10–15 STOFNAÐ 1913 123. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Hvíl í friði, Kalifornía Arnar Eggert Thoroddsen stiklar á stóru í sögu Red Hot Chili Peppers | 22 Tímaritið og Atvinna í dag Tímaritið | Arnar, Bjarki og stóru f-in  Margfalt úr verki  Ekki jafn gaman að spila einn  Sólin er risin og sumar í bænum Atvinna | Stuðl- að að vinnuréttindum fatlaðra  Tapaðir vinnudagar flestir á Íslandi 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 TÍSKUSÝNING útskriftarnema í fatahönnun við Listaháskóla Ís- lands fór fram í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi á föstu- dagskvöldið. Tíu tilvonandi hönn- uðir sýndu þar sex til átta al- klæðnaði að viðstöddu fjölmenni en færri komust að en vildu í sæti. Meðal sýningargesta voru blaða- menn frá erlendum tískublöðum. Fatahönnuðunum var klappað lof í lófa að sýningu lokinni. Morgunblaðið/Ómar Tískusýning útskriftarnema LHÍ VAXANDI krytur milli Rússa og Banda- ríkjamanna birtist nú með margvíslegum hætti. Þannig sagði viðskiptadagblaðið Vedmosti í gær að ríkisflugfélagið Aeroflot ætlaði ekki að kaupa bandarískar Boeing- farþegaþotur eins og áður var rætt um. Í staðinn væri nú íhugað að kaupa evrópskar Airbus-þotur. Haft var eftir ónafngreindum embættismönnum í Moskvu að ástæðan væri andstaða Bandaríkjanna við inngöngu Rússa í heimsviðskiptastofnunina, WTO. Rússar hafa náð samningi við Evrópu- sambandið um að liðkað verði fyrir inn- göngu þeirra í WTO, en Bandaríkjamenn vilja að stjórnvöld í Moskvu beiti sér gegn svonefndum sjóræningjaútgáfum á tónlist og kvikmyndum og þjófnaði á hugbúnaði. Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, hefur undanfarna daga verið á ferðalagi um nokkur ríki Evrópu og Mið-Asíu. Hefur hann gagnrýnt Rússa hart og varað þá við að reyna að beita fyrrverandi sovétlýðveldi þvingunum. Sagði hann í ræðu í Litháen að þeir ættu ekki að nota útflutning á gasi og olíu sem „tæki til að hræða eða kúga, ann- aðhvort með því að takmarka útflutninginn eða tilraunum til að einoka flutningsleiðir“. Rússar segja ummæli Cheneys líkjast upphafi að nýju, köldu stríði. „Ræðan gerir með afgerandi hætti út af við leifarnar af hugmyndum um langtímasamstarf Rúss- lands og Bandaríkjanna,“ sagði stjórnmála- skýrandinn Gleb Pavlovskí í samtali við Interfax-fréttastofuna. Kaupa Rússar Air- bus-þotur? Krytur fara vaxandi milli ráðamanna í Moskvu og Washington Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is MIKIÐ er um að farsímar týnist eða þeim sé stolið. Sjaldan er hægt að góma þjófana sem skipta þegar í stað um kort í símanum svo að ekki sé hægt að rekja slóðina. En nú hefur indverskt fyr- irtæki í Mumbai, Micro Technologies, fundið svar, að sögn danska blaðsins Jyllandsposten. Fyrirtækið hefur hannað hugbúnað sem komið er fyrir í minni farsímans og sendir búnaðurinn með sjálf- virkum hætti tölvu- skeyti til fyrri eiganda með upplýsingum um nýja númerið og all-nákvæma stað- setningu á gemsanum. Hægt er að nota hugbúnaðinn, sem kostar um átta dollara eða tæpar sex hundruð krónur, í mörgum gerðum Nokia, Panasonic og Samsung. Micro Technologies segist þegar hafa selt um 10.000 eintök af búnaðinum á netinu. Blaðið segir hentugast að biðja síðan lögregluna um að hringja í nýja númerið og fá þjófinn til að skila gripnum. Vara- samt geti verið að hringja sjálfur, hvað þá að heimsækja þjófinn enda óvíst hvernig viðtökurnar yrðu. Saumað að símaþjófum ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.