Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ER FÆDDUR!
ÍSLENSKU SAKAMÁLASÖGUNNAR
KRÓNPRINS
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
7
1
5
7
KROSSTRÉEFTIR JÓN HALL STEFÁNSSON
Páll Baldvin Baldvinsson, DV
„HÖRKUSPENNANDI...
GLÆSILEG SAKAMÁLASAGA“
Kolbrún Bergþórsdóttir, Blaðið
„KROSSTRÉ ER SÉRLEGA VEL SKRIFUÐ BÓK“
Silja Aðalsteinsdóttir, TMM
„SAGAN ER ALGER NAUTN OG MAÐUR
ÖFUNDAR BARA ÞÁ SPENNUFÍKLA
SEM EIGA EFTIR AÐ LESA HANA“
NÚ Í KI
LJU
GUNNAR Felix-
son, stjórnarfor-
maður Vinnslu-
stöðvarinnar í
Vestmannaeyj-
um, gagnrýndi í
ræðu sinni á aðal-
fundi félagsins sl.
föstudag þau
sjónarmið að nýj-
ar atvinnugreinar
leysi sjávarútveg af sem kjölfesta í
atvinnulífinu og yfirlýsingar á Við-
skiptaþingi nýlega þar sem fram-
leiðsla var afskrifuð sem framtíðar-
atvinnugrein og þjónusta hafin til
skýjanna. Gunnar sagði einnig að of-
uráhersla á uppbyggingu stóriðju
undanfarinna ára hefði sett stein í
götu annars atvinnurekstrar.
„Stjórnvöldum er mikill vandi á
höndum, og ég tek fram, svo virðu-
legir gestir aðalfundarins misskilji
það ekki, að ég er hér ekki bara að
tala um ríkisstjórn landsins heldur
einnig hin sístækkandi sveitarfélög,“
sagði Gunnar í ræðu sinni.
„Stjórnvöld verða að haga efna-
hagsstjórninni með þeim hætti að við
upplifum ekki aftur efnahagsástand
á borð við það sem hér hefur ríkt
undanfarin misseri. Og ég efa að
stjórnvöldum sé yfirleitt heimilt að
mismuna atvinnugreinum með sér-
tækum aðgerðum eins og skýr dæmi
eru um. Ofuráhersla á uppbyggingu
stóriðju undanfarinna ára hefur sett
stein í götu annars atvinnurekstrar,
jafnvel rutt starfsgreinum úr vegi og
valdið þenslu á einum stað en sam-
drætti og erfiðleikum annars stað-
ar,“ sagði hann.
Gunnar sagði Íslendinga fara oft á
tíðum mikinn og afskrifa sjávarút-
veginn sem undirstöðuatvinnugrein
þjóðarinnar að minnsta kosti annað
hvert ár í þjóðmálaumræðunni.
„Nýjar atvinnugreinar spretta upp
og í kjölfarið koma gjarnan yfirlýs-
ingar um að eftir ekki ýkja langan
tíma leysi þær sjávarútveginn af sem
kjölfesta í atvinnulífi á Íslandi. Á ný-
afstöðnu Viðskiptaþingi var fram-
leiðsla til dæmis afskrifuð sem fram-
tíðaratvinnugrein landsins og
þjónusta hafin til skýjanna. En at-
vinnugreinar – hvernig sem þær eru
skilgreindar og hvort sem menn tala
um sjávarútveg og landbúnað eða
framleiðslu og þjónustu – verða ekki
byggðar upp án sambýlis hver við
aðra. Þjónusta þrífst ekki lengi án
framleiðslu eða hvernig ætla menn
að þjóna hver öðrum án framleiðslu
matvæla, iðnvarnings eða hátækni-
búnaðar svo eitthvað sé nefnt?
Það er fráleitt og skammsýnt að
halda að einmitt sjávarútvegurinn
kalli ekki á aukna þjónustu við við-
skiptavini og neytendur í framtíð-
inni. Fiskimiðin eru allt í kring um
landið. Hlutverk sjávarútvegsins er
að nýta þau með sjálfbærum og
ábyrgum hætti. Sjávarútvegurinn
þarf og mun laga sig að breyttum
tímum. Hann þarf hins vegar að
þróast hraðar úr áherslu á veiðar og
vinnslu yfir í markaðssetningu og
þjónustu við viðskiptavini og neyt-
endur.“
Taka púls á
sjávarútveginum
Bæði Einar K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra og Árni M.
Mathiesen fjármálaráðherra voru
viðstaddir fundinn og sagði Gunnar
það heiður og ánægjuefni að ráð-
herrarnir tveir sæju sér fært að vera
viðstaddir. „[…]og eins og þar segir:
elstu menn muna ekki eftir því að
ráðherra sé á aðalfundi þessa félags
hvað þá tveir,“ sagði hann. „Og ef
þetta er til marks um að ríkisstjórnin
sé að taka púls á sjávarútveginum,
milliliðalaust, þá hefur hún vandað
val sitt því staða og horfur í sjávar-
útveginum og samfélagsleg áhrif at-
vinnugreinarinnar kristallast óvíða
með jafn skýrum hætti og í Vinnslu-
stöðinni og umhverfi fyrirtækisins,
Vestmannaeyjum.“
Gunnar Felixson, stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar,
gagnrýnir ofuráherslu á uppbyggingu stóriðju hérlendis
Þjónusta þrífst ekki
lengi án framleiðslu
Gunnar Felixson
Egilsstaðir | Jón Eggert Guðmunds-
son hóf strandvegagöngu sína til
styrktar Krabbameinsfélagi Íslands
að nýju í gærmorgun á Egils-
stöðum. Sl. sumar gekk hann á
fimm vikum 986 km, frá Hafnarfirði
suður og austur um til Egilsstaða
og á nú fyrir höndum að ganga
2.114 km norður og vestur um land-
ið fram í miðjan ágúst nk. Gangan
er sú lengsta sem vitað er um hér-
lendis og verður skv. Jóni Eggerti
slegið Íslandsmet við 1.414 km
markið og hvað varðar heildarlengd
göngunnar.
Jón Eggert er 38 ára og starfar
sem kerfisfræðingur hjá Reikni-
stofu bankanna, en auk þess er
hann líffræðingur og kaupsýslu-
maður. Meðal fjölbreyttra áhuga-
mála má nefna köfun og
neðansjávarrannsóknir, leitir að
skipsflökum og skráningu þeirra og
margt fleira.
„Ég er tilbúinn og hef undirbúið
mig í allan vetur,“ sagði Jón Egg-
ert í samtali við Morgunblaðið við
upphaf göngunnar. Fyrsta spölinn
áleiðis til Borgarfjarðar eystri gekk
hann með Eiríki Bj. Björgvinssyni,
bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs, og
nokkrum göngumönnum úr
Krabbameinsfélagi Austurlands.
„Núna veit ég betur hvað ég á
fyrir höndum en þegar ég lagði upp
í fyrrasumar. Ég er t.d. búinn að
ganga fyrirfram til öll þau skópör
sem ég býst við að nota í ferðalag-
inu svo ég lendi ekki í blöðruveseni
eins og í fyrra. Ég hef líka und-
irbúið mig aðeins öðruvísi, verið í
lóðalyftingum í vetur og æft göngu
á jafnsléttu til að æfa upp réttu
vöðvahópana.“
Næring og hvíld mikilvægust
Jón Eggert segist koma til með
að ganga 25–30 km á dag og stað-
næmast á 5 km fresti til hvíldar og
næringar. „Í fyrsta stoppi drekk ég
vatn, í öðru fæ ég mér ávöxt, í
þriðja stoppinu fer ég í flóknari kol-
vetni eins og t.d. brauð með kæfu.
Svo er ég með Leppin-orkudrykk
við höndina og tók 540 flöskur með
til ferðarinnar. Ég stigmagna mat-
arinntökuna eftir því sem líður á
daginn og enda hann með kjöti eða
fiski og annarri próteinríkri fæðu
til að byggja upp vöðvana. Næt-
ursvefninn skiptir líka máli og er
um 10 klst. Ég er með I-Pod til að
hlusta á meðan ég geng, en að öðru
leyti fylgist ég grannt með um-
hverfinu, fer í ákveðið hug-
leiðsluástand sem erfitt er að lýsa.
Dýrmætast við þessa löngu göngu
er að upplifa landið og náttúruna á
nýjan hátt.“
Jón Eggert mun blogga á hverj-
um degi um gönguna á mbl.is og
verður hægt að fylgjast með fram-
vindunni dag frá degi á slóðinni
http://strandvegaganga.blog.is/.
Gangan er sem fyrr segir til
styrktar Krabbameinsfélagi Ís-
lands. Hægt er að leggja fram
frjáls framlög inn á sérstakan söfn-
unarreikning, 301-26-102005, kt.
700169-2789. Þá er unnt að hringja
í söfnunarsímann 907-5050 og verða
við það eitt þúsund krónur inn-
heimtar með næsta símreikningi.
Strandvegaganga Jóns Eggerts til styrktar Krabbameinsfélaginu hafin að nýju
Hægt að fylgj-
ast með göng-
unni á blog.is
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Jón Eggert Guðmundsson hóf strandvegagöngu sína í blíðskaparveðri.
Með honum gengu fyrsta spölinn Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs, og félagar í Krabbameinsfélagi Austfjarða.
VETURINN í ár er sá fjórði hlýjasti
frá upphafi samfelldra mælinga
bæði í Reykjavík og á Akureyri, að-
eins 1929, 1964 og 2003 voru hlýrri.
Þetta kemur fram í gögnum Veð-
urstofu Íslands, en þess ber að geta
að þar eru vetrarmánuðirnir fjórir
skilgreindir sem tímabilið frá des-
emberbyrjun til marsloka. Sé apríl-
og nóvembermánuðum hins vegar
bætt við dettur veturinn, að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræðings,
úr þeim fjórða hlýjasta í fjórtánda
hlýjasta frá upphafi mælinga í
Reykjavík árið 1870. Segir hann
þetta þýða að um 9% allra vetra
hafa verið hlýrri.
Á Akureyri fer veturinn, miðað
við sömu mánuði, úr fjórða hlýjasta
sæti í það tíunda, en þar hófust
samfelldar mælingar árið 1881.
Segir Trausti um 7% vetra fyrir
norðan hafa verið hlýrri en vet-
urinn í ár.
Veturinn snjóléttur
Að sögn Trausta var veturinn
fremur snjólítill um allt land, en á
sama tíma var úrkoman umfram
meðallag á suðvesturhorni landsins
þó þurrara hafi verið fyrir norðan.
Eins og fram kom í blaðinu fyrr í
vikunni voru aðeins 36 alhvítir dag-
ar í Reykjavík í vetur, þar af 3 í apr-
íl. Þetta er 29 dögum færra en að
meðaltali veturna 1971 til 2000. Að
sögn Trausta var veturinn sá sjötti í
samfelldri röð snjólítilla vetra í
Reykjavík. Bendir hann á að frá því
árið 1921 hafi aðeins 14 vetur verið
með jafnfáa eða færri alhvíta daga í
Reykjavík en þetta árið.
Með hlýrri vetrum
KYNNT var nýtt merki Vinnslu-
stöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum
á aðalfundi fé-
lagsins sl. föstu-
dag. Merkið
hannaði Guðjón
Davíð Jónsson,
grafískur hönn-
uður. Verður
það tákn félagsins í framtíðinni í
stað gamla merkis Vinnslustöðvar-
innar sem hefur fylgt fyrirtækinu
undanfarin 60 ár.
Nýtt merki kynnt
KARLMAÐUR á þrítugsaldri var
fluttur á heilsugæsluna í Borgar-
nesi eftir bílveltu við Bóndhól á átt-
unda tímanum í gærmorgun.
Maðurinn missti stjórn á bíl sín-
um með þeim afleiðingum að hann
hafnaði utan vegar og valt. Var
hann einn í bílnum og er grunaður
um ölvun við akstur. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni í
Borgarnesi eru meiðsl hans talin
minniháttar. Bifreiðin er talin mik-
ið skemmd ef ekki ónýt.
Þar að auki var einn ökumaður
tekinn fyrir ölvun við akstur í um-
dæmi lögreglunnar á Borgarnesi í
fyrrinótt.
Drukkinn
ökumaður slas-
aðist í bílveltu
ÞRETTÁN umsækjendur eru um
embætti sóknarprests í Odda-
prestakalli, Rangárvallaprófasts-
dæmi. Umsóknarfrestur rann út 2.
maí sl. og embættið veitist frá 1. júlí
nk.
Umsækjendur eru:
Aðalsteinn Þorvaldsson
guðfræðingur
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir
Sr. Arnaldur Bárðarson
Bryndís Valbjarnardóttir
guðfræðingur
Guðbjörg Arnardóttir
guðfræðingur
Guðmundur Örn Jónsson
guðfræðingur
Sr. Guðrún Eggertsdóttir
Sr. Ólafur Jens Sigurðsson
Salvar Geir Guðgeirsson
guðfræðingur
Sigríður Gunnarsdóttir
guðfræðingur
Sólveig Jónsdóttir guðfræðingur
Sr. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín
Þóra Ragnheiður Björnsdóttir
guðfræðingur
Þrettán umsækj-
endur um Odda