Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í UMRÆÐUM um þjónustu við
aldraða hér á landi undanfarið
hefur áhersla á stofnanavistun
verið gagnrýnd. Í svörum Sivjar
Friðleifsdóttur, heilbrigðis- og
tryggingamálaráð-
herra, í Kastljósþætti
Ríkissjónvarpsins
hinn 11. apríl sl. kom
fram að á höfuðborg-
arsvæðinu væru nú
sjö hjúkrunarrými á
hverja 100 ein-
staklinga 67 ára og
eldri. Í nágrannalönd-
unum væri meðaltalið
sex rými á hverja 100
einstaklinga 67 ára og
eldri. Fjölbreytni í
búsetuúrræðum og
aukin heimaþjónusta
eru nú aðal áhersluatriði þeirra
sem tjá sig opinberlega um þjón-
ustu við aldraða, hvort heldur sem
er fulltrúar aldraðra, stjórn-
málamenn eða fagfólk. Það er vel.
Í áðurnefndum Kastljósþætti kom
einnig fram í máli heilbrigð-
isráðherra að í könnun sem gerð
var í Hafnarfirði, en þar eru um
80 einstaklingar á biðlista eftir
hjúkrunarrými, hafi komið fram
að 70% þeirra töldu sig geta verið
lengur á eigin heimili ef þeir
fengju meiri heimahjúkrun og fé-
lagsþjónustu.
En hvað er átt við með aukinni
heimahjúkrun og aukinni fé-
lagsþjónustu? Er eingöngu átt við
aukningu í þeim þjónustuformum
sem fyrir eru? Næt-
urþjónusta hefur t.d.
verið takmörkuð en
ljóst má vera að efla
þarf slíka þjónustu
verulega ef stofn-
anavistun aldraðra
minnkar. Á sama hátt
og boðið er upp á
dagvistun aldraðra
mætti t.d. að bjóða
upp á næturvistun
aldraðra, þ.e. að hinn
aldraði fari út af
heimili sínu yfir nótt-
ina þannig að umönn-
unaraðilinn (líklega oftast öldruð
eiginkona) fái svefn og hvíld og
geti þannig tekist á við umönn-
unarhlutverkið yfir daginn. Í bók
sinni Líkami og sál: Hugmyndir,
þekking og aðferðir í hjúkrun
(2005) bendir dr. Kristín Björns-
dóttir á að í mörgum tilfellum leiði
slíkur flutningur á ábyrgð á
umönnun og meðferð frá starfs-
fólki heilbrigðisstofnana til að-
standenda, til álags, vanlíðunar og
félagslegra erfiðleika á heim-
ilunum.
Flutningur á þjónustu inn á
heimilin er víðtæk aðgerð sem
tengist fjölda samfélagslegra
þátta. Benda má á nauðsyn þess
að tekið verði tillit til mögulegra
fjarvista launamanna sem hugsa
um aldraða foreldra sína heima
t.d. með því að réttur til fjarvista
vegna veikinda barna verði útvíkk-
aður þannig að hann gildi einnig
um fjarvistir vegna veikinda maka
og foreldra. Þá má einnig vera
ljóst að slík tilfærsla umönnunar
aldraðra frá stofnunum inn á
heimilin mun leiða til þess að
maki, börn eða aðrir aðstandendur
hins aldraða þurfi að draga sig að
einhverju eða öllu leyti út af
vinnumarkaði, tímabundið eða var-
anlega. Á einhvern hátt þarf að
bæta viðkomandi upp þann tekju-
missi sem hann/hún verður fyrir.
Skoða þarf hvort kerfi umönn-
unarbóta geti komið til móts við
slíkan tekjumissi, þ.e. að sá að-
standandi sem annast hinn aldr-
aða heima fái umönnunarbætur
frá ríkinu, enda má segja að veru-
legt opinbert fé sparist með minni
stofnanavistun og að eðlilegt sé að
hin aldraði og umönnunaraðilinn
fái til sín hluta þess fjár. Þá þarf
að skoða umrædda tilfærslu þjón-
ustu út frá jafnréttissjónarmiðum
því slík umönnunarstörf á heim-
ilum munu líkast til frekar koma
til kasta kvenna en karla. Staða
kvenna á vinnumarkaði mun þann-
ig hugsanlega veikjast frá því sem
nú er sem sannarlega væri skref
aftur á bak í jafnréttismálum hér
á landi.
Að öllum þessum þáttum þarf
að hyggja við undirbúning þess
ágæta skrefs að gera fleiri öldr-
uðum einstaklingum en áður kleift
að búa sem lengst á eigin heimili,
með viðeigandi þjónustu og við
viðunandi lífskjör.
Frá stofnanaþjónustu
til heimaþjónustu
Elsa B. Friðfinnsdóttir skrifar
um þjónustu við aldraða ’Flutningur á þjónustuinn á heimilin er víðtæk
aðgerð sem tengist fjölda
samfélagslegra þátta.‘
Elsa B. Friðfinnsdóttir
Höfundur er formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf.
LAND Í RANGÁRÞINGI
Til sölu er 17 hektara landspilda í Ásahreppi, allt gróið land.
Stutt í rafmagn, vatnsveitu og hitaveitu.
Fjarlægð frá Reykjavík er um 90 km, bundið slitlag alla leið.
Fallegt útsýni, m.a. til Heklu og Eyjafjallajökuls.
.
Nánari upplýsingar á www.fannberg.is og á skrifstofu
Fannbergs fasteignasölu efh. í síma 487 5028.
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur
Falleg og góð eign á vinsælum stað. Falleg, 102 fm íbúð á 2.
hæð með svölum til suðurs í góðu hverfi, vestarlega í vestur-
bænum og stutt í miðbæinn og alla þjónustu. Stofa, borðstofa
og eldhús, sem eru í opnu rými. Flísar á gólfum og vel skipulagt
rými lýsir vel upp þessa fallegu eign. Loft eru tekin niður á
nokkrum stöðum fyrir skemmtilega halógenlýsingu sem setur fal-
legan svip á eignina. Öll ljós í stofu, eldhúsi og forstofu eru
dimmanleg með fjarstýringu.
Sími: 534-8300 Fax: 534-8301
Kirkjustétt 4 - 113 Reykjavík
www.storborg.is
Vesturgata 69, 101 RVK - Opið hús
www.storborg.is - 534 8300 - storborg@storborg.is
STÓRBORG Júlíus Vífill Ingvarsson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Fallega 5. herbergja 124 fm íbúð á 2. hæð á góðum stað í
Þingholtunum 101 Reykjavík. 3 svefnherb og 2 stofur, þar
af 1 herbergi tilvalið til útleigu með sérinngangi og aðgangi
að salerni.
Valdimar Örn Matthíasson 8692217,
tekur á móti gestum á milli 15 og 16 í dag.
Sími: 534-8300 Fax: 534-8301
Kirkjustétt 4 - 113 Reykjavík
www.storborg.is
Bergstaðarstræti 60A, 101 RVK - Opið hús
www.storborg.is - 534 8300 - storborg@storborg.is
STÓRBORG Júlíus Vífill Ingvarsson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Í einkasölu glæsilegt fullbúið
120,9 fm einbýli á einni hæð
með innbyggðum 38,6 fm
bílskúr, samtals um 159,5 fm.
Glæsilegar innréttingar og
gólfefni eru flísar. Glæsilegur
garður með afgirtum ver-
öndum og heitum potti.
Verð 35,5 millj. Myndir af
eigninni á netinu.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
VOGAGERÐI - VOGAR VATNSLEYSU
KRÍUÁS 47
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ 14:00 TIL 16:00
Sérlega falleg íbúð á annarri hæð litlu fjölbýli á þessum góða stað í áslands-
hverfinu í Hafnarfirði. Íbúðin er 98,3 fm með geymslu. Skipting eignarinnar: For-
stofa, þvottahús, hol, eldhús með borðkróki, 3 svefnherbergi, baðherbergi,
stofa, svalir og geymsla auk sameignar. Góð gólfefni og glæsilegt útsýni. Eign
sem vert er að skoða. V. 21,9 millj.
Björn og Silja bjóða ykkur velkomin
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunbrún - Hf.
Þvottahús/efnalaug.
Höfum fengið í einkasölu
rótgróna efnalaug/ þvotta-
hús ásamt fasteigninni
Hraunbrún 40, þ.e. ca 250
fm einb/tvíb. sem skiptist
þannig: Jarðhæð og bíl-
skúr (hluti af efnalaug) þar
sem efnalaug er til húsa,
efri hæð og ris. Aðalhæð
sérinngangur, stofa, borðstofa, eldhús, svefnherb., sjónvarps-
hol o.fl., ris, 4 svefnherb. o.fl. Góð staðsetning, miklir mögu-
leikar, góð húseign, húseign og fyrirtæki selt saman. Rótgróið
fyrirtæki. Verð tilboð. Upplýsingar gefur Helgi Jón á skrifstofu.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Fréttir
í tölvupósti
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
smáauglýsingar
mbl.is