Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 39 skuli skattlagðar með lægri prósentu heldur en launatekjur? Rökin eru sögð þau, að ella hverfi fjármagnið úr landi. En má ekki búast við því að launþegarnir taki upp á því einn góðan veðurdag að hverfa úr landi í þeim mæli að það valdi erfiðleikum? Pólitíkin Þessi málefni hafa lítið verið rædd á op- inberum vettvangi og má það furðu sæta. Það var t.d. athygl- isvert, að þegar skjótfenginn gróði nokkurra stjórnenda Íslandsbanka varð að fréttaefni á sínum tíma og þótt fram kæmu upplýsingar m.a. hér í Morgunblaðinu um að allt aðrar reglur giltu t.d. í Bandaríkjunum um kaup og sölu stjórnenda á hlutabréfum í því fyrirtæki, sem þeir starfi hjá, sýndu hvorki ráðherrar né alþingismenn því nokkurn áhuga að taka þessi mál til umræðu og velta því fyrir sér hvort til- efni væri til að setja sambærilegar reglur um slík viðskipti hér eins og annars staðar og þá ekki sízt í þeim löndum, þar sem kapítalism- inn er hvað þróaðastur. Hvað skyldi valda þessari ótrúlegu þögn ráðherra og þing- manna? Það má kannski líka spyrja hvað valdi þögn verkalýðshreyfingarinnar um þessi mál. Forystusveit hennar hefur ekki haft uppi mikla tilburði til að gagnrýna það fyrirkomu- lag, sem hér ríkir í þessum efnum. Kannski er ástæðan fyrir þögn ráðherra, þingmanna og verkalýðshreyfingar einfaldlega sú, að allt er þetta svo nýtt hér að menn eru kannski ekki búnir að átta sig á hvað er að gerast á þessu sviði. En það blasir við öllum, sem vilja á annað borð fylgjast með því. Tilkynningar um kaup og sölu stjórnenda í fyrirtækjum berast til Kauphallar Íslands, þegar um almennings- hlutafélög er að ræða, sem skráð eru á mark- að. Allt er þetta nú orðið gert fyrir opnum tjöldum. Um þessi viðskipti gilda ákveðnar reglur en spurningin er sú hvort þær eru orðnar eitthvað fornfálegar í ljósi þeirrar öru þróunar, sem er í viðskiptalífinu hér. Hvað sem öðru líður er orðið tímabært að skoða þessi mál ofan í kjölinn. Ríkisstjórn og Alþingi eiga að taka þessi mál til skoðunar og umræðu. Það er ástæða til að taka saman yf- irlit um það hver staða mála er hér og bera saman við þær reglur, sem gilda um áþekk viðskipti annars staðar. Slík samantekt og slíkar umræður eru ekki til marks um fjandskap við kaupréttarkerfið. Þvert á móti er Morgunblaðið þeirrar skoð- unar að það geti verið sjálfsagt og eðlilegt í atvinnulífinu, þótt það mætti að mati blaðsins ná til fleiri starfsmanna í þeim fyrirtækjum, sem á annað borð hafa tekið upp gerð kaup- réttarsamninga við einstaka starfsmenn. En það þarf að sníða agnúana af þessu eins og svo mörgu öðru í viðskiptalífinu. Stað- reyndin er hins vegar sú, að jafnan þegar orð er haft á að einhverju megi breyta á þeim vettvangi kemur upp sterk andstaða við slíkt. Glöggt dæmi um það eru umræður, sem fram fóru hér á þessum vettvangi við ýmsa aðila viðskiptalífsins á árinu 1990 um umbætur á ís- lenzka hlutabréfamarkaðnum sem þá var tal- inn svo fullkominn að engu mætti breyta. Sjónarmið Morgunblaðsins voru afgreidd með því að um vanþekkingu blaðsins væri að ræða þótt þær ábendingar, sem hér voru settar fram, væru allar teknar upp úr skýrslu sem sænskt ráðgjafarfyrirtæki hafði gert að ósk Seðlabanka Íslands á þeim tíma. Viðskiptaráðherrann er lítið fyrir að setja viðskiptalífinu ákveðinn starfsramma, svo að ekki er við miklu að búast úr þeirri átt. En kannski mætti búast við að einhverjir þing- menn og jafnvel verkalýðshreyfingin geti haft skoðun á þessum málum? Kaupréttarsamningarnir eins og þeir eru nú framkvæmdir eiga mikinn þátt í þeirri breyt- ingu, sem er að vera á íslenzku samfélagi. Þeir eiga mikinn þátt í þeim gífurlega tekjumun, sem er að verða til á Íslandi en var ekki áður nema kannski um takmarkaðan tíma í byrjun síðustu aldar. Þeir eiga mikinn þátt í því að hér er að verða til yfirstétt af svipaðri gerð og lengi hefur verið til í öðrum löndum. Það er hins vegar þeim mun erfiðara hér vegna fá- mennis og návígis. Viljum við slíkt samfélag? Morgunblaðið/Ásdís Trollið gert klárt. Ekkert uppnám hefur orðið vegna þessara viðskipta eins og varð fyrir nokkrum árum, þegar í ljós kom hvers konar samninga bankaráð Kaupþings banka hafði gert við æðstu stjórnendur og þeir tóku þá ákvörðun um að falla frá. Það er að sjálfsögðu grund- vallarmunur á því, hvort bankaráð eða stjórn bankans gerir slíka samninga fyrir luktum dyrum eða hvort þeir eru gerðir á aðalfundi viðkomandi banka eða fyrirtækis. Laugardagur 6. maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.