Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 53
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
OFANGREINT sagnaskáld birti
grein nýlega í Morgunblaðinu um
andstæðinga íhaldsins. Margend-
urtekinn boðskapur hans þar er að
Morgunblaðið ráðist í sífellu á Sam-
fylkinguna, því hún sé sá andstæð-
ingur sem íhaldið óttist. Hinsvegar
séu Vinstrigrænir óskaandstæð-
ingar þess, strigakjaftar sem fæli
fólk frá vinstriöflunum.
Það er nú sök sér hve fornlegur
þessi málflutningur er, pistillinn
gæti verið sjötugur, með breyttum
flokksnöfnum einum. Það snýst um
„ábyrga“ stjórnarandstöðu og
„óábyrga“, alveg röksemdalaust. Því
skáldið víkur ekki einu orði að
stefnu, stjórnmálaágreiningi. Þessi
pistill er samkvæmt stjórnmála-
hugsun Sturlungaaldar. Fólk þarf
bara að skipa sér í flokk, og skiptir
þá mestu hverjir eru sigurstrangleg-
astir, Sturlungar, Ásbirningar eða
Oddaverjar, aldrei var um neinar
hugsjónir að ræða hjá þeim fornu
mafíósum, bara valdafíkn. En þegar
Einar fjallar þannig um stjórn-
málaflokka samtímans, þá finnst
mér einu mega gilda hvað davíðinn
heitir. Hitt er lýðræðislegt, að draga
fram mismunandi stefnu flokkanna,
og höfða til almennings með rökum
fyrir að aðhyllast eina stefnu fremur
en aðra. Hver er stefnumunur
Vinstrigrænna og Samfylking-
arinnar, hvernig greinir þessa
flokka á við Sjálfstæðisflokkinn?
ÖRN ÓLAFSSON,
bókmenntafræðingur,
Nørrebrogade 31
Dk 2200 Kbh. N.
Stjórnmálafræði
Einars Kárasonar
Frá Erni Ólafssyni:
VIÐ erum nýkomin heim úr löngu
fríi á Kanaríeyjum.
Þar urðum við vitni að mikilli
þegnskyldu og manngæsku sem
séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir
sýndi samlöndum sínum, en hún var
sl. vetur í hálfu starfi sem far-
arstjóri hjá Sumarferðum, en notaði
allan sinn frítíma til að hlúa að Ís-
lendingunum á staðnum. Hún hafði
fastan nánast daglegan viðtalstíma í
kirkjunni, bænastundir, sinnti sjúk-
um og öldruðum, annaðist og hug-
hreysti aðstandendur þeirra sem
veiktust og slösuðust. Þrjú dauðsföll
urðu þar sl. vetur. Þar kom prest-
urinn sterkur inn í sínum frítíma.
Öll þessi störf innti hún af hendi
endurgjaldslaust og fór allra sinna
ferða fótgangandi, oft langar vega-
lengdir. Við sáum að hún var oft
þreytt en alltaf með bros á vör og
tilbúin til að gefa af sjálfri sér til
annarra.
En það starf sem hún vann þarna
í vetur var allt of mikið til að vera
gert í þegnskyldu og hjáverkum,
endurgjaldslaust og algjörlega pen-
ingalaus.
Jóna Lísa flutti til dæmis páska-
messu í „sænsku kirkjunni“ á Kan-
aríeyjum á páskadag, en um 400 Ís-
lendingar sóttu messuna.
Páskamessuna fjármagnaði hún
af eigin rammleik. Það þurfti að
greiða leigu fyrir kirkjuna, greiða
undirleikara, kosta prentun o.fl.
Einsöngvari við hátíðarmessuna var
ungur íslenskur óperusöngvari, Jó-
hannes Baldursson.
Þessi yndislega helgistund varð
til þess að við hjónin ræddum oft
um það hvort ekki væri tímabært
að biskup og ráðherra sjái til þess
að prestur verði eftirleiðis t.d. í
hálfu starfi á Kanaríeyjum á vet-
urna, en þá eru að jafnaði 2–4000
Íslendingar dag hvern á eyjunum.
Við erum þess fullviss að þús-
undir Íslendinga myndu fagna ef
þessi hugmynd yrði að veruleika.
Við skorum á biskup og ráðherra
að hugleiða þessi mál.
MARGRÉT OG PÁLL
JÓNSSON,
Suðurhlíð 38c, Reykjavík.
Þegnskylda og mann-
gæska sr. Jónu Lísu
Frá Margréti og Páli Jónssyni:
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir flutti páskamessu í „Sænsku kirkjunni“ á Kan-
aríeyjum, sem um 400 Íslendingar sóttu.
Rúmgóð og björt 132,6 fm, 4ra hebrergja íbúð á 3.
hæð í litlu fjölbýlishúsi ásamt innbyggðum bílskúr.
Vandaðar innréttingar og frábært útsýni.
Verð 27.500.000
Sími: 534-8300 Fax: 534-8301
Kirkjustétt 4 - 113 Reykjavík
www.storborg.is
Jötnaborgir - RVK
www.storborg.is - 534 8300 - storborg@storborg.is
STÓRBORG Júlíus Vífill Ingvarsson
hdl. og löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS - SUNNUDAG KL.14-16
Kíktu í heimsókn til okkar á Drekavöllum 18
í dag frá kl. 14-16.
Sölumenn verða á staðnum.
Tvær glæsilegar fullbúnar sýningar íbúðir.
Komdu og skoðaðu fallegar og vandaðar íbúðir
í glæsilegu 9 hæða lyftuhúsi.
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Björt 3ja herbergja íbúð á 2. hæð
til hægri í 3ja hæða blokk. Sam-
eign nýlega standsett. Aukaher-
bergi í kjallara ca 10.fm. Fallegt
nýlegt ljóst plastparket á holi og
stofu.
Verð. 16,6 millj.
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 OG 15
BLÖNDUBAKKI 16
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Hverfisgata11 - Hafnarfirði
Mjög glæsilegt og skemmtilegt 149,5 fm einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt kjallara á góðum stað við miðbæ Hafnarfjarðar. Húsið hefur fallegt
yfirbragð í gömlum stíl. Aðalhæð skiptist í stóra forstofu, hol, eldhús og
tvær fallegar samliggjandi stofur sem hægt er að aðskilja með fallegri
franskri hurð. Eldhús fallega uppgert í gömlum stíl. Efri hæð skiptist í þrjú
rúmgóð svefnherbergi og endurnýjað baðherbergi með kvistglugga.
Gengið er inn á baðherbergi frá holi og beint frá hjónaherbergi. Hjónaher-
bergi með fallegri tvöfaldri hurð, með frönsku gleri, út á suðursvalir. Í kjall-
ara er þvottahús, herbergi og rúmgott rými með sérinngangi. Möguleiki á
að útbúa séríbúð í kjallara. Í risi er stórt rými með glugga og lofthæð ca
1,75 metrar. Glæsilegur garður sem fellur inn í hraun að hluta til.
Verð 37,5 millj.
Hrannar tekur vel á móti gestum í dag frá kl. 14-16.
Teikningar á staðnum.