Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 33
systur er mikilvægur hluti af sam- vinnu þeirra. Uppspretta orkunnar Meðan á dvöl hennar stóð hugsaði ég um fortíð hennar og líf í skógum Gombe þjóðgarðsins. Þar sat hún oft ein í rigningunni og naut þess að hlusta á dropana falla á laufin allt í kring. Hún gekk, hljóp og klifraði eftir öpunum sem hún reyndi að skilja og skrifaði svo bækur um sam- félag þeirra og líf. Nú er sú vitneskja í bókum, starfi og hugum fólks og hún og ímynd hennar hefur orðið miðpunktur þess samfélags sem hún lifir og starfar í. Árangur starfs hennar er sýnileg- ur um allan heim. En einnig er til staðar álagið og þreytan sem því fylgir að vera ímynd sem fólk oft að- eins vill eiga hlut í með því að hafa hitt hana og fengið tekna af sér mynd með henni. Álagið af því að vera ávallt þessi ímynd og veita svo mörgum hluta af tíma sínum dregur eðlilega stöðugt úr henni kraft. Þeg- ar hún sagði mér frá Gombe og öp- unum talaði hún um nána vini og ný- legt hvarf Fifi sem var aðeins smáapi þegar Goodall steig fæti þar fyrir 40 árum síðan var henni mikið áfall. Ég velti því fyrir mér hvaðan hún fengi kraftinn til að halda þessu starfi áfram. Boðskapnum miðlað Stóri dagurinn rann upp og við kláruðum að skreyta sviðið með trjám og útilegubúnaði meðan leik- arinn Michael York las yfir texta kvöldsins. Goodall kom og sat í saln- um eftir að hafa talað við hóp barna. Hún fylgdist með og brosti til þeirra sem mættu augnaráði hennar. Upp- selt var á sýninguna og löng biðröð myndaðist í rökkrinu fyrir utan leik- húsið. Sýningin hófst með myndefni af simpönsum og viðtölum við fólk. Afr- ísk tónlist var spiluð milli þess sem Michael York las um ævi hennar með breskri leikhúslegri rödd sinni og bauð loks Goodall upp á sviðið. Nærvera hennar færði stemninguna frá einfaldri afþreyingu yfir í áþreif- anlega samkennd og upplifun meðal áhorfenda þegar hún sagði frá starfi sínu og lífi og kynnum af því fólki sem veitir henni kraft til að stíga um borð í næstu flugvél á leið til næsta fyrirlesturs. Hún sagði frá fólki víðs- vegar um heiminn sem hefur yfir- stigið líkamlega fötlun sína og öðrum sem hafa leyst mikilvæg samfélags- leg vandamál og hversu mikil hvatn- ing allt það fólk er fyrir hana. Loks talaði hún um börnin og möguleika á framförum og breyting- um ef þau fá tækifæri til að taka þátt í lausn þeirra vandamála sem ekki aðeins hrjá þau núna heldur munu mæta komandi kynslóðum og þá mun erfiðari viðfangs. Löng hlykkj- ótt biðröð myndaðist við lok kvölds- ins þar sem fólk beið eftir áritun frá Goodall og York í bækur sínar. Hún tók á móti öllum sem að borðinu komu með áhuga og brosi sem virtist laust við nokkra þá þreytu sem ég hefði talið eðlilega. Haldið af stað á ný Daginn eftir töluðum við saman meðan hún kraup við grænu ferða- töskuna sína og pakkaði fyrir brott- för. Forvitni apanna í Gombe leiddi til þess áður fyrr að oft kom hún að tjaldinu þar sem föt hennar og eigur lágu á víð og dreif eftir að þeir höfðu þaulkannað innihaldið. Hún er laus við slík vandamál þessa dagana. Við skoðuðum ljósmyndir sem sýndu slæman aðbúnað nautgripa á stóru búi í Ameríku. Reynsla hennar og upplifanir varðandi aðbúnaði dýra í matvæla, rannsóknar og af- þreyingariðnaði hafa ekki aðeins mótað starf hennar heldur einnig matarvenjur sem grænmetisæta. Eftir að hafa fengið að kynnast henni og öllu því starfi sem hún hef- ur unnið gladdi mig að geta sýnt henni ljósmyndir mínar og sagt frá því sem ég geri. Ég kvaddi hana er hún hélt af stað til halda enn einn fyrirlesturinn með tilgang sinn og takmark á hreinu, að bæta það sem þarf til að heimur okkar geti þrifist um ókomin ár. Höfundur er ljósmyndari og rit- höfundur í hjáverkum. Fleiri greinar frá ferðum hans um þrjár heimsálfur og kynnum hans af fólki þar eru væntanlegar. ’Hún gekk, hljóp ogklifraði eftir öpunum sem hún reyndi að skilja og skrifaði svo bækur um samfélag þeirra og líf.‘ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 33 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Búðu þig undir Hátíð ha fsins 10.-11. júní
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.