Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Verkefni eða vandamál? K. Marínósdóttir, framkvæmdastjóri Um- hyggju, félags til stuðnings langveikum börn- um. Umræðan um skóla án aðgreiningar er stór og mikil og snertir allt frá því hvort betra sé að vera í bekk með þeim sem eru með svipaða námslega getu, til þess hversu mikla þekk- ingu skólarnir hafi á því sem þeir eiga í dag að sinna. Hvað með hin börnin? Erfiðust eru börnin með alvarlegu geð- raskanirnar. Að sinna þeim og finna út úr þeirra málum tekur mikinn tíma og ég held að þetta valdi skólastjórum almennt hugar- angri. Svo segir skólastjóri sem Morgunblað- ið ræddi við. Þetta stemmir við könnun sem Gallup gerði á meðal kennara fyrir nokkrum árum. „Foreldrar biðja mann oft um að gera eitt- hvað fyrir barnið sitt sem maður getur ekki veitt, vegna þess að maður hefur ekki fjár- magn til þess. Það er auðvitað mjög erfitt,“ segir skólastjóri í öðrum skóla. Rétt þykir að nefna ekki nöfn þegar vísað er í börn eða barnahópa í skóla viðkomandi. Skólastjórinn nefnir sem dæmi dreng sem kom af leikskóla í haust, þar sem hann hafði fengið sérúrræði og mikinn stuðning. „Mér var sagt að strákurinn þyldi illa að vera í stærri hópi en með fjórum til tíu nem- endum og þyrfti helst manninn með sér. Þar sem hann féll ekki undir viðmiðunarreglur fékkst ekki sérstakt fjármagn með honum. Ég fæ 90 sérkennslustundir á viku fyrir nem- endurna í skólanum. Þetta er allt reiknað eft- ir ákveðnum formúlum og miðað við nem- endafjölda. Ef ég ætla að hafa sérstakan starfsmann með barninu, eins og bent hefur verið á að það þurfi, nota ég til þess 30 stund- ir á viku. Það er einn þriðji af sérkennslu- stundunum sem ég hef fyrir öll börnin í skól- anum! Hvað þá með hin börnin sem líka þurfa á þessu að halda?“ segir hann og bætir við: „Þrátt fyrir að ég vildi svo sannarlega að litli drengurinn hefði starfsmann með sér get ég hreinlega ekki komið því í kring. Svona stöðu stendur maður frammi fyrir og síðan er nán- ast staðið yfir manni og barið í borðið og sagt að börnin hafi rétt á manninum með sér. vexti? Eins og Ólafur Loftsson, formaður Fé- lags grunnskólakennara, orðar það: „Ég geri ekki ráð fyrir að þú finnir skólastjóra sem ekki vilji veita bestu mögulegu þjónustu sem hann getur en hann hefur náttúrlega bara eitthvað ákveðið í höndunum og verður að vinna eftir því.“ Ólafur bendir ennfremur á að kennarar séu sérfræðingar í kennslu, það sé þeirra starf. Auðvitað sé hins vegar margt sem tengist nemendum í erfiðleikum og sé ekki á þeirra sviði. „Þess vegna verður að hafa fagfólk inni í skólunum sem kennarar geta leitað til. Ef upp koma flókin vandamál sem þeir ráða ekki við, verður að leysa þau í samstarfi við aðra. Eftir því sem vandamálin verða sértækari verður erfiðara að ætlast til að kennarar geti tekið á þeim.“ Lág laun skapa „rennerí“ Þeir sem oft koma inn í málin eru stuðn- ingsfulltrúar. Hvað er í verkahring þeirra og hvað ekki er mismunandi eftir sveitarfélögum og skólum. Félag stuðningsfulltrúa bendir á að samræmda starfslýsingu vanti. Sums stað- ar sé menntun sem þeir geti náð sér í, til dæmis í Borgarholtsskóla, viðurkennd til launahækkunar og sums staðar ekki. Launin séu líka mismunandi. Í Stuðningsfulltrúafélagi Suðurnesja eru um 50 félagar. Að sögn Guðnýjar Kristjáns- dóttur félagsmanns sem einnig situr í stjórn félagsins á landsvísu, eru þeir allir konur. Sé launatala sem hún gefur upp fyrir ákveðna stöðu á sínu svæði, umreiknuð í 100% starf, fást út 140.000 krónur. Það eru um 100.000 krónur útborgaðar á mánuði. Guðný segist halda að oftast sé stutt vel við nýtt starfsfólk í skólunum og bendir á að margir starfsmenn sæki námskeið og annað til að efla færni sína. Viðmælendur Morgunblaðsins bentu ítrek- að á að lág laun stuðningsfulltrúa og skólaliða sköpuðu „rennerí“ sem reyndist sérlega erfitt fyrir börn sem þurfa mikið öryggi og skýrar reglur. Mannaskipti væru álag á alla en sér- staklega þessi börn. Grétar Marínósson hjá KHÍ bendir á að þeir sem sinni börnunum með mestu sérþarf- irnar séu ekki sálfræðingarnir, hjúkrunar- fræðingarnir, þroskaþjálfarnir, námsráðgjaf- Góð samvinna heimilis og skóla er lykilatriði og hana verður að efla markvisst. Þá gengur lífið út á að finna þessi 5% nógu snemma og halda þeim í skefjum eða vísa þeim í burtu. Þetta er ákveðinn hugsunarháttur. Þetta verður eins og hálfgerð svipa, að barnið sé með greiningu og eigi að fá sérúrræði.“ Margir bentu Morgunblaðinu einmitt á að togstreita skapaðist þegar greiningar frá sál- fræðingum eða öðrum segðu að barn þyrfti á sérstuðningi að halda, en ekki fengist sér- fjármagn með því. Þá skapaðist sú staða að foreldrar hefðu í höndunum pappír sem segði eitthvað allt annað en skólinn réði við. Auðvitað á alls ekki að blanda foreldrum barna með sérþarfir inn í umræðu um pen- inga og það hvað kostar að hafa barnið þeirra í skóla, eins og bent var á í síðustu grein. Velta má fyrir sér hvort það sé samt við svona aðstæður sem það gerist. Sérkennsla fyrir heitavatnspeninga … Skólastjóri Ölduselsskóla í Reykjavík, Reynir Daníel Gunnarsson, bendir á að stundum verði skólastjórar að taka úr öðrum rekstrarliðum til að geta sinnt sérkennslunni sem skyldi. „Veðurfarið í vetur hefur til dæm- is gert það að verkum að útisundlaugin sem við erum með hérna við skólann, hefur ekki verið jafndýr í rekstri og venjulega og við höfum ekki þurft að kaupa jafnmikið heitt vatn. Þarna skapast smá svigrúm. Oft er þetta nú ekki flóknara en þetta! Maður reynir að finna peninga þar sem hægt er, því auðvit- að vilja allir sinna þessu eins vel og mögulegt er.“ Aðspurður hvað hann hefði gert ef veður- farið hefði verið annað svarar Reynir Daníel sposkur: „Ja, ef það hefði verið harðbruna- gaddur í allan vetur hefði vonandi einhver annar liður sparast einhvers staðar annars staðar.“ Kallast þetta ekki að sníða sér stakk eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.