Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Elsku Helgi vinur
minn.
Ég vil gjarnan fá
að þakka þér fyrir alla góða og
SIGURÐUR HELGI
SVEINSSON
✝ Sigurður HelgiSveinsson fædd-
ist á Lundi í Stíflu í
Fljótum í Skagafirði
29. ágúst 1911.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 18. mars
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Ólafsfjarðarkirkju
1. apríl.
trúfasta vináttu sem
þú hefur veitt mér
alla tíð.
Ég man vel eftir
því þegar þú varst að
vinna í gaggó. Þar
var móðir mín að
vinna við þrif og þú
komst oft þegar ég
var með móður minni
i vinnu og spjallaðir
við mig.
Alltaf þegar ég
hitti þig, hvar sem
það var, hafðir þú
alltaf svo góðan tíma,
allavega gafst þú þér alltaf tíma til
að spjalla við mig.
Þó svo að ég flytti frá Ólafsfirði
til Noregs sem barn, höfum við
alltaf haft samband.
Allan tímann hef ég reynt að
passa upp á það að láta þig vita af
öllu sem gerðist hjá mér í Noregi.
Ég lét þig meira að segja að vita
þegar ég eignaðist minn fyrsta
kærasta! Ef það leið of langur tími
á milli bréfanna frá mér, (sem þú
varst nú ekki alltaf ánægður með
orðaval og íslensku stafsetningu
mína í) hringdir þú í mig, og það
var alltaf jafngaman að heyra rödd
þína á hinum endanum.
Þegar ég kom í heimsókn til
Ólafsfjarðar lá leið mín ævinlega
til þín. Alltaf komst þú með kökur
og kaffi handa mér og síðustu
skiptin með djús handa börnunum
mínum, þú hugsaðir alltaf vel um
alla.
Þegar ég hugsa til baka er þetta
svolítið skrítið, hvað ég og þú náð-
um góðu sambandi. Maður hefði
kannski heldur haldið að þú og
mamma munduð halda sambandi,
en nei, það vorum ég og þú. Og
góða vináttu hef ég átt í þér, karl-
inn minn.
Því miður kynntist ég aldrei
konu þinni né dætrum. Ég hugsa
til dætra þinna og fjölskyldna á
þessari sorgarstund og vona að
allt gangi vel hjá þeim, þrátt fyrir
mikinn missi í yndislegum og
hjartgóðum manni.
Það verður tómlegt að koma til
Ólafsfjarðar næst, því miður er
maður alltaf að missa einhvern
sem stendur manni nær.
Jæja, karlinn minn, njóttu þess
að hitta konu þína aftur og njótið
friðar hjá Guði okkar.
Takk fyrir allt, kæri vinur.
Þín vinkona,
Sandra Sigurjónsdóttir,
Bergen.
Elskuleg kona mín, móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTÍN PÁLSDÓTTIR,
Ægisíðu 44,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn
2. maí, verður jarðsungin frá Neskirkju miðviku-
daginn 10. maí kl 15:00.
Einar Baldvin Pálsson,
Sigríður Einarsdóttir, Gunnar Sigurðsson,
Páll Einarsson, Ingibjörg Briem,
Baldvin Einarsson, Sigrún Steingrímsdóttir,
Árni Einarsson, Unnur Þóra Jökulsdóttir.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og sonur.
AXEL BJÖRNSSON,
Lindarhvammi 2,
Hafnarfirði
lést á krabbameinsdeild Landspítalans að morgni
föstudagsins 5. maí
Jarðarförin auglýst síðar.
Helga María Ólafsdóttir,
Ólafur Ágúst Axelsson, Hólmfríður Karlsdóttir,
Anna María Axelsdóttir, Gunnar Freyr Jónsson,
Axel Breki Eydal, Kaja Gunnarsdóttir,
Fanney Dagmar Arthúrsdóttir, Ólafur Helgi Grímsson.
Elskuleg dóttir mín, systir okkar og mágkona
ÞURÍÐUR BÁRA SIGURÐARDÓTTIR
Lækjasmára 58,
Kópavogi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 3 maí.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn
15. maí kl 13.00.
Guðmunda Halldóra Gestsdóttir,
Kristín Erla Sigurðardóttir, Jóhann Helgason,
Rafn Sigurðsson, Björg Kristjánsdóttir.
✝ Margrét Sigurð-ardóttir fæddist
á Fit undir Eyja-
fjöllum 7. október
1902. Hún lést á
Hrafnistu í Hafnar-
firði, 13. apríl síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Hall-
dóra Hjörleifsdóttir
og Sigurjón Árna-
son. Kjörfaðir var
Sigurður Hróbjarts-
son. Margrét átti
einn albróður,
Árna, f. 1903,
ólst þar upp. Átján ára gömul
flutti hún svo til Reykjavíkur þar
sem hún kynntist eiginmanni sín-
um, Árna Guðmundssyni, vél-
stjóra, f. 1904, d. 1988. Þau giftust
19. júlí 1930. Börn þeirra eru: Sig-
ríður Dóra, f. 1931, d. 2003, mað-
ur Markús Pálsson, d. 1974, Guð-
veig, f. 1932, gift Kristjáni
Ragnarssyni, Árni Grétar, f. 1934,
Gunnar Jón., f. 1940, kvæntur Jó-
hönnu Sigurðardóttur, Rannveig,
f. 1942, gift Victori Melsted,
drengur, f. 1949, d. 1949. Dótt-
urdóttir og uppeldisbarn, Margrét
Reynisdóttir, f. 1952, í sambúð
með Gylfa Þorsteinsyni. Ömmu-
börn, langömmubörn og langa-
langaömmubörn eru fjörutíu tals-
ins.
Útför Margrétar var gerð í
kyrrþey.
d.1971, systkini
hennar sammæðra
voru Karl Kjartan, f.
1905, d.1959, Kristín
Dagbjört, f. 1910, d.
1942, Guðmunda
Guðrún, f. 1916, d.
1992, og Bernódía
Sigríður, f. 1920, d.
1991. Hálfbróðir
Margrétar samfeðra
var Einar, f. 1908, d.
1993.
Margrét flutti
tveggja ára gömul til
Vestmannaeyja og
Magga frænka kemur til með að
hafa áframhaldandi áhrif á jólin hjá
okkur. Við eigum ætíð eftir að minn-
ast þess þegar jólin ganga í garð hvað
það skipti miklu máli fyrir okkur að
heimsækja Möggu á Þorláksmessu
eða aðfangadag. Þessi hefð byrjaði
fyrir um aldarfjórðungi þegar við vor-
um í jólaheimsókn frá Svíþjóð og hélt
síðan áfram hver jól, eftir að við flutt-
um heim, síðustu 20 árin eða svo.
Það byrjaði á Sundlaugarveginum.
MARGRÉT
SIGURÐARDÓTTIR
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR GÍSLASON,
Faxabraut 13,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju miðviku-
daginn 10. maí kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjarta-
heill.
Hallmann S. Sigurðarson, Aðalheiður H. Júlíusdóttir,
Margrét R. Sigurðardóttir, Þorsteinn V. Konráðsson,
Ráðhildur Á. Sigurðardóttir, Einar Magnús Sigurbjörnsson,
Gísli Sigurðsson, Árný Dalrós Njálsdóttir,
Sigurlaug Sigurðardóttir, Snæbjörn Kristjánsson,
Sigurður Sigurðarson, Halldóra K. Guðjónsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir, afi
og bróðir,
HAFSTEINN HERMANNÍUSSON,
verður jarðsettur frá Fossvogskapellu þriðjudag-
inn 9. maí kl. 15.00.
Sóley Hafsteinsdóttir, Sigurbjörn Hilmarsson,
Hreinn Marinó Hafsteinsson,
Hafdís Björk Jónsdóttir, Ásbjörn Skarphéðinsson,
Valgeir Reynisson, Karen Lind Þrastardóttir,
barnabörn og systkini.
Okkar ástkæra
HREFNA MAGNÚSDÓTTIR,
Fannborg 8,
áður Melgerði 16,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánu-
daginn 8. maí klukkan 13:00.
Rögnvaldur Ólafsson, Sigríður Júlíusdóttir,
Lára Ingibjörg Ólafsdóttir,
Fríður Ólafsdóttir,
Sigrún Ólafsdóttir, Halldór Jónsson,
Sigríður Ólafsdóttir, Þórður Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, sonur, bróðir og afi,
FERDINAND RÍKHARD EYFELD ÓMARSSON,
(Bói),
lést föstudaginn 21. apríl sl.
Útförin fór fram í kyrrþey fimmtudaginn 27. apríl
síðastliðinn.
Gunnhildur Edda Eyfeld Ferdinandsdóttir,
Jóhann Eyfeld Ferdinandsson,
Edda Eyfeld, Ómar Konráðsson,
Hafdís Huld Haakansson,
Ásta Ómarsdóttir,
Hrund Ómarsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
MAGNÚSÍNU GUÐRÚNAR SVEINSDÓTTUR,
Gnoðarvogi 20,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á gjör-
gæsludeild Landspítala við Hringbraut.
Tómas Ólafur Ingimundarson,
Sólveig Svana Tómasdóttir, Ragnar Jón Pétursson,
Ingimundur Tómasson, Elín Hansen,
Guðrún Björk Tómasdóttir, Hjalti Þórisson,
Sveinn Tómasson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is