Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 69 MENNING Sjálfstæð bókaforlög hafa áundaförnum misserum veriðdugleg að skjóta upp koll- inum og hasla sér völl í hérlendri bókaútgáfu. Þessi þróun er mikið gleðiefni fyrir bókaþjóðina þar sem þessi forlög bjóða gjarnan les- endum upp á athyglisverðar bæk- ur, og oft annars konar bækur, sem hugsanlega fá ekki útgáfu annars staðar. Þannig sinna þau afar mikilvægu starfi með því að fylla upp í ýmsar eyður í bókaút- gáfu á landinu og stuðla á sama tíma að virku og fjörugu bók- menntalífi. Augljóslega er óþarfi að tíunda mikilvægi sjálfstæðu for- laganna en aftur á móti er vöxtur þeirra og aukning á síðustu árum mjög eftirtektarverð, sérstaklega í ljósi þess hve samkeppnin er hörð og markaðurinn agnarsmár.    Eflaust hefur tæknin mikið meðþetta að gera þar sem hönn- un og uppsetning og önnur tækni- leg vinnsla er töluvert ódýrari enn áður. Í rauninni þarf lítið meira en eina tölvu til að koma upp forlagi. Kannski hefur einnig skort djarf- hug í íslenskri bókaútgáfu, þar sem bókaútgáfa er vissulega mikið áhættuspil, og óháðir bókaútgef- endur hafi þá látið vaða á meðan önnur forlög hafa haldið að sér höndum. Markaðslögmálið um eft- irspurnina hlýtur einnig að koma við sögu hér. Það hefur vænt- anlega orðið einhver vöntun í bókaútgáfunni sem hefur kallað á óháð bókaforlög og kannski ekki bara í tengslum við efni heldur alla umgjörðina. Óháðu forlögin hafa t.d. verið að gera ýmsar til- raunir með form bókarinnar og gert tilraunir til að víkka umfang þess. Þannig er t.d. gjarnan lagt mikið í útlit og hönnun bókanna þar sem hönnuðurinn fær að fara algjörlega frjálsum höndum um verkið. Nýhilútgáfa hefur t.d. fengið mikið lof fyrir útlitshönnun sinna bóka.    Umrædd forlög hafa sprottiðupp af ýmsum og ólíkum for- sendum og lagt upp með ólíkar áherslur í bókaútgáfu. Bókaútgáf- an Salka var stofnuð með það fyrir augum að gefa út bækur sem höfða til kvenna en forlagið hefur auk þess gert mikið fyrir flóru barna- og unglingabókmennta. Starfsemi Nýhil-útgáfunnar hefur færst í vöxt að undanförnu og staðið fyrir metnaðarfullum út- gáfum á skáldverkum og ljóðabók- um þar sem grasrótinni er sinnt. Ari-útgáfa kynnti þjóðinni fyrir sænska glæpasagnahöfundinum Lisu Marklund sem hafði ekki hlotið náð stóru forlaganna sem töldu markaðinn mettan af sænsk- um krimmum. Eins hafa þýddum fagurbókmenntum verið gerð góð skil hjá nokkrum þessara forlaga en þær hafa löngum átt á brattann að sækja. Óháðu forlögin gegna þannig mikilvægu hlutverki við að kynna þjóðinni fyrir hvers kyns bókmenntum sem hljóta ekki náð annars staðar. En eins og áður sagði þá er óþarfi að tíunda mik- ilvægi óháðu forlaganna því þau eru nokkuð augljós. Fyllt upp í eyðurnar ’Kannski hefureinnig skort djarfhug í ís- lenskri bókaút- gáfu og að óháðir bókaútgefendur hafi látið vaða á meðan önnur for- lög hafa haldið að sér höndum.‘ Morgunblaðið/Arnaldur Nyhil-útgáfan hugar að grasrótinni. thorri@mbl.is AF LISTUM Þormóður Dagsson ÞÁ HEFUR Daniel Nålgaard komið enn og aftur og sé hann ávallt velkominn. Stórsveitin var þétt og kröftug undir stjórn hans og sterk sveifla í hrynsveitinni. Fyrsta verkið var eftir Daniel, skrifað fyrir sveitina, Snowboard eða Á snjóbretti í Skálafelli. Þetta var svingari af Basie-ættinni og hefði eflaust orðið enn kröftugri seinna í dagskránni. Fleiri ópusar eftir Daniel voru á dagskránni og skal nefna andstæðurnar Moon- showers og The Fastest Gun Alive. Fyrrnefnda verkið var gætt fegurð nafnsins, norrænt á svip en eitt augnablik lá við að Clyderman læddist inn í útsetninguna, en Agnar Már rak hann snarlega á braut í glæstum sóló sínum. Síð- arnefnda verkið byggðist á vestra með Glen Ford, sem Daniel heldur mjög upp á, en í stað káboj- tónlistar var sveiflan allsráðandi og blúsinn stundum svo jarðbund- inn, eins og í einleikskafla Sig- urðar Flosasonar að gleðikonurnar í Storyville hefðu þakkað pent fyr- ir. Aldrei þessu vant fengu fjórir einleikarar litlar konsertútsetn- ingar til að spreyta sig á. Stefán S. Stefánsson það var gaman að heyra tilfinningaríka túlkun hans á A Remark was made. Eiríkur Orri glímdi við Ellington klass- íkina It Don’t Mean a Thing og var hvorki blástur hans né útsetn- ing Daniels í þeim þyngdarflokki sem verkið krefst, aftur á móti var flutningurinn á Work Song Nat Adderleys ansi skemmtilegur, bás- únurnar fínar og þá ekki síst sóló Samma Jagúars. Snorri Sigurð- arson blés It’s You Or No One glaðlega og tókst vel upp á tromp- etinn þótt yfirleitt sé ég hrifnari af honum sem flygilhornsleikara. Kristjana Stefánsdóttir var gesta- söngvari og söng ágætlega fimm söngdansa. Útsetningar Daniels á þessum dönsum voru heldur lit- lausar, þó bar ein af: It newer Entered My Mind og fluttu Aggi og Kristjana versið í upphafi ynd- islega. Þetta voru hinir skemmtilegustu tónleikar þótt ég hafi haft mun meira gaman af Basie-tónleikum Daniels með Stórsveitinni í fyrra. Fyrsta flokks handverk DJASS Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur Einar Jónsson, Snorri Sigurðarson, Eirík- ur Orri Ólafsson og Ari Bragi Kárason á trompeta og flygilhorn; Oddur Björnsson, Edward Ferderiksen og Samúel Jón Sam- úelsson básúnur; David Bobroff bassa- básúnu; Sigurður Flosason, Stefán S. Stefánsson, Ólafur Jónsson, Jóel Pálsson og Steinar Sigurðarson á saxófóna; Agn- ar Már Magnússon á píanó, Eðvarð Lár- usson gítar, Gunnar Hrafnsson bassa og Jóhann Hjörleifsson trommur. Kristjana Stefánsdóttir, söngur. Stjórnandi: Daniel Nolgard. Miðvikudagskvöldið 26. apríl. Stórsveit Reykjavíkur Vernharður Linnet 63. Skáldaspírukvöldið verður haldið á þriðjudagskvöldið kl. 20 í Iðu. Kvöldið er tileinkað skáldinu Andra Snæ Magnasyni og nýrri bók hans, Draumalandið – sjálfshjálp- arbók handa hræddri þjóð. Að sögn skipuleggjanda kvöldsins hefur bókin vakið upp líflegar umræður sem snerta við sjálfsvitund flestra. Andri Snær mun lesa upp úr bók- inni, svara fyrirspurnum áheyr- enda og árita bækur að því loknu. Aðgangur er ókeypis og mega gestir taka með sér hressingu að of- an. Þess má geta að í hléi mun Skáldaspíran og Edda útgáfan bjóða gestum upp á sushi-rétti að ofan, þeim að kostnaðarlausu. Skáldaspírukvöld með Andra Snæ Bókaforlagið Bjartur hefur gefið út í kilju spennusöguna Næturvaktina eftir Kirino Natsuo í íslenskri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar. Ung kona, sem bú- sett er í úthverfi Tókíó, slysast til þess að drepa eiginmann sinn í bræðiskasti. Til að losna við líkið leitar hún aðstoðar hjá þremur konum sem starfa með henni á næturvöktum í skyndiréttaverk- smiðju. Fram undan er ófyrirsjáanleg atburðarás þar sem konurnar leita allra leiða til að koma sér hjá refs- ingu. Prentun var í höndum Odda hf., Ásta S. Guðbjartsdóttir annaðist kápuhönnun, verð kr. 1.890. Nýjar bækur Nýi söngskólinn Innritun fyrir 15. maí Einsöngsdeild Ljóðadeild og óperudeild Áhugadeild Blönduð deild Jazz-, popp-, söngleikja-, kvikmynda- og klassísk tónlist. Umsjón: Björk Jónsdóttir og Jóhanna Linnet Unglingadeild Hallveig Rúnarsdóttir tekur við deildinni í vetur „Ljóðameðleikur“ Píanóleikur með söngvurum. Umsjón: Gerrit Schuil Inntökupróf verða 29. maí Upplýsingar Sími 552 0600 - 893 7914 Veffang: www.songskoli.is Póstfang: songskoli@vortex.is NÝ TT NÝ TT NÝ TT Miðasala Bankastræti 2 Sími 552 8588 og á www.listahatid.is Listamenn Listahátíðar í sjónvarpinu í kvöld og annað kvöld – fjöldi spennandi atriða Ársfundur Vaxtarsamnings Eyjafjar›ar ver›ur haldinn í Alfl‡›uhúsinu, Skipagötu14, 4 hæ›, fimmtudaginn 11. maí kl. 12-14 Dagskrá: Ávarp Valger›ar Sverrisdóttur, i›na›ar- og vi›skiptará›herra Sk‡rsla stjórnar fiorsteinn Gunnarsson forma›ur stjórnar Vaxtarsamnings Eyjafjar›ar „A› hleypa heimdraganum” Geir Gunnlaugsson, stjórnarforma›ur Promens Ifor Williams, alfljó›legur rá›gjafi um klasa Ifor mun fjalla um alfljó›leg verkefni á svi›i klasa og hvernig einstaklingar, íslenskt atvinnulíf og opinberir a›ilar geta n‡tt sér alfljó›legar n‡jungar og áherslur á flessu svi›i. Ifor hefur m.a. unni› fyrir fjölda landa, OECD, Alfljó›abankann o.fl. Alfljó›legar áherslur Jón Ingi Benediktsson, forstö›uma›ur matvælaseturs HA og klasastjóri matvælaklasa Verkefni Vaxtarsamnings Eyjafjar›ar Bjarni Jónasson, framkvæmdastjóri Vaxtarsamnings Eyjafjar›ar og klasastjóri heilsuklasa Fundurinn er öllum opinn. Léttar veitingar. Ársfundur Vaxtarsamnings Eyjafjar›ar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.