Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ AUÐLESIÐ EFNI Tony Blair forsætis-ráðherra Bret-lands stokkaði upp í ríkis-stjórn sinni á föstu-daginn, eftir að flokkur hans, Verka-manna-flokkurinn, beið mikinn ó-sigur í sveita-stjórnar-kosningum daginn áður. Charles Clarke innanríkis-ráðherra og menntamála-ráðherrann Ruth Kelly hverfa úr stjórninni, en Jack Straw utanríkis-ráðherra og John Prescott að stoðarforsætis-ráðherra verða lækkaðir í tign. Margaret Beckett er nýr utanríkis-ráðherra, og er hún fyrsta konan til að gegna því em-bætti í Bret-landi. Þetta er mesta upp-stokkun sem Blair hefur gert á stjórn sinni frá því að Verka-manna-flokkurinn komst til valda fyrir 9 árum. Erfið mál innan flokksins hafa veikt ríkis-stjórn hans og skýra að hluta til ó-sigur flokksins í kosn-ingunum. Íhalds-flokkurinn fékk mest fylgi í kosn-ingunum, eða 40%, frjáls-lyndir demó-kratar fengu 27% og Verka-manna-flokkurinn aðeins 26%. Blair stokkar upp Reuters Margaret Beckett nýr utanríkis-ráðherra Bret-lands. Árbæjarsafn út í Viðey? sagði að þetta væri ekki alveg ný hug-mynd en spennandi. Húsin yrðu þá flutt á austur-enda Við-eyjar, en þar stóð þorpið í gamla daga. Þau myndu mynda nýtt safn um sögu Reykja-víkur. Dagur sagði að fara þyrfti yfir hug-myndirnar, hvort þær væru raun-hæfar, hver kostn-aðurinn við flutn-inginn auk ýmissa skipulags-atriða. Form-legt erindi hefur borist Reykjavíkur-borg um að flytja Árbæjar-safn út í Við-ey. Þá er gert ráð fyrir að torf-bærinn og kirkjan verði áfram á sama stað, en síðan á að byggja upp íbúðarhúsa-hverfi þar sem safnið stendur á Ártúns-holtinu. Dagur B. Eggertsson, for-maður skipulags-nefndar, Moussaoui í lífs-tíðar-fangelsi að taka þátt í að ræna flug-vél og fljúga henni í á-rásunum, en hann var hand-tekinn nokkrum vikum fyrir hryðju-verkin. Var hann fundinn sekur um að hafa ekki sagt frá því sem til stóð, og bæri hann því sína ábyrgð á harm-leiknum. Á fimmtu-daginn dæmdi dóm-stóll í Banda-ríkjunum Zacarias Moussaoui í lífstíðar-fangelsi fyrir hans hlut í hryðju-verkunum þar í landi 11. september 2001. Náðun kemur ekki til greina. Þetta er fyrsti dómurinn, sem kveðinn er upp vegna hryðju-verkanna 11. september 2001 en þá týndu nærri 3000 manns lífi. Moussaoui var fundinn sekur um að vera félagi í al-Qaeda-hryðjuverka- samtökunum og hafa ætlað að taka þátt í árásinni. Moussaoui segist hafa átt Banda-ríski tónlistar-maðurinn Iggy Pop og hljóm-sveit hans The Stooges héldu tón-leika í Lista-safni Reykja-víkur á miðviku-daginn. Iggy hélt uppi góðri stemningu, að sjálf-sögðu ber að ofan, enda vel þekkt vöru-merki hans. Iggy Pop á langan feril að baki, sem hann lagði grunninn að með hljóm-sveitinni The Stooges á árunum í kringum 1970. Um leið og sveitin steig á svið brutust út mikil fagnaðar-læti meðal áhorf-enda sem voru á öllum aldri. Þegar röðin kom að einu frægasta lagi „I Wanna Be Your Dog“, stökk Iggy út í salinn og lét áhorfenda-skarann bera sig. Seinna dró hann nokkra áhorf-endur upp á svið, lét öllum illum látum, dansaði og leyfði þeim að æpa í hljóð-nemann. Morgunblaðið/Ómar Iggy í góðu stuði með áhorf-endum. Stemning hjá Iggy 200 manns fóru í kröfu-göngu niður Lauga-veginn á verkalýðs-deginum 1. maí, en helmingi fleiri hlustuðu á ræðu-höldin á Ingólfs-torgi. Þátt-takendum í kröfu-göngum og úti-fundum hefur farið fækkandi síðustu ár og sums staðar hefur kröfu-gangan verið lögð niður. Því hafa komið fram hug-myndir um breytta hátíðar-dagskrá á verkalýðs-daginn. Guðmundur Gunnarsson, for-maður Rafiðnaðar-sambands Íslands, segir verkalýðs-félögin halda há-tíðir sínar hvert fyrir sig og finnst þau ættu frekar að sam-einast um að halda eina stóra fjölskyldu-hátíð. Hann segir engan ganga lengur með steytta hnefa niður Lauga-veginn. Tímarnir séu breyttir. Margrét Ingþórsdóttir, for-maður Verslunarmanna-félags Suður-lands, segir að for-sendur séu breyttar og á-gæt sátt hafi til að mynda ríkt um kjara-mál. Hún kveðst þó ekki verða hissa þótt ástandið á atvinnu-markaðinum muni breytast á ný þannig að aftur verði þörf fyrir verkalýðs-baráttu í anda fyrri tíma. Morgunblaðið/ÞÖK Frá hátíðar-höldum 1. maí. Breytist 1. maí? Valur varð deilda-bikar-meistari kvenna í hand-knatt-leik á fimmtudags-kvöld þegar Vals-dömur unnu kvenna-lið ÍBV 26:24 í Laugar-dals-höll. Eyja-stúlkur höfðu ágætt for-skot fram eftir síðari hálf-leik en misstu þá móðinn gegn mjög baráttu-glöðum Vals-konum, sem unnu upp 7 marka for-skot á loka-mínútum. „Ég er virki-lega ánægður með að geta fært stuðnings-mönnum þennan titil,“ sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals eftir leikinn. Berglind Hansdóttir mark-vörður varði 24 skot en hún er á förum til Dan-merkur til að leika þar og þetta var síðasti leikur hennar með Val. „Mig langaði heitast af öllu að kveðja liðið með titli eftir sigur á heima-velli og það gekk eftir.“ Morgunblaðið/Ómar Nýir deilda-bikar-meistarar. Vals-dömur unnu bikarinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.