Morgunblaðið - 07.05.2006, Síða 2

Morgunblaðið - 07.05.2006, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚRRÆÐALEYSI Úrræðaleysi ríkir hjá mörgum skólastjórum vegna nemenda með geðraskanir, og kennarar segjast ekki hafa þekkingu til að takast á við margt af því sem fer fram inni í bekkjunum. Kennaranemar benda á að kenna þyrfti meira um börn með sérþarfir í kennaranáminu við KHÍ, t.d. um geðraskanir, líkamlegar fatl- anir, langveik börn o.fl. Tekinn 11 sinnum á einu ári Lögreglan á Akureyri stöðvaði ökumann fyrir að aka of hratt, en það var í 11. skiptið á einu ári sem þessi sami ökumaður hefur verið stöðvaður fyrir of hraðan akstur. Hann hefur þó enn ekki misst ökuréttindin þar sem hann missir ekki punkta fyrr en hann hefur greitt sektirnar. Samanlagt má reikna með að maðurinn þurfi að greiða yfir 250 þúsund krónur í sekt vegna þessara síbrota. Tína egg með hönskum Yfirdýralæknir ráðleggur þeim sem ætla að tína egg úr hreiðrum þetta vorið að notast við einnota hanska, verði fuglaflensu vart hér á landi. Ekki er þó hættulegt að neyta eggjanna, ef þau eru soðin, steikt eða bökuð. Yfir 200 villtir fuglar hafa ver- ið rannsakaðir hér á landi, en fugla- flensa hefur ekki greinst hér enn sem komið er. Vaxandi krytur Vaxandi krytur milli Rússa og Bandaríkjamanna birtist nú með ýmsum hætti. Skýrt var frá því í gær í rússneskum fjölmiðlum að ríkisflug- félagið Aeroflot myndi ef til vill hætta við að kaupa Boeing-þotur en semja þess í stað um kaup á evrópskum Air- bus-þotum. Þrífst ekki án framleiðslu Ofuráhersla á uppbyggingu stór- iðju hefur sett stein í götu annars at- vinnureksturs hér á landi, að mati stjórnarformanns Vinnslustöðv- arinnar í Vestmannaeyjum. Hann gagnrýndi í ræðu á aðalfundi félags- ins þau sjónarmið að nýjar atvinnu- greinar leysi sjávarútveg af hólmi sem kjölfestu í atvinnulífinu, og yf- irlýsingar Viðskiptaþings nýlega þar sem framleiðsla var afskrifuð sem framtíðaratvinnugrein, og þjónusta hafin upp til skýjanna. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Auðlesið efni 60 Fréttaskýring 8 Myndasögur 64 Hugsað upphátt 25 Dagbók 64/67 Sjónspegill 36/37 Víkverji 64 Forystugrein 38 Staður og stund 66 Reykjavíkurbréf 38 Velvakandi 65 Menning 42/43, 68/73 Leikhús 68 Umræðan 44/54 Bíó 70/73 Bréf 53 Sjónvarp 74 Hugvekja 56 Staksteinar 75 Minningar 56/59 Veður 75 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is VEL gekk að flytja Zimsenhúsið frá Hafnarstrætinu, þar sem það hafði staðið í rúmlega 120 ár, frá 1884, á nýjan tímabundinn dval- arstað úti í Örfirisey. Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar, segir að engin vandræði hafi komið upp við flutn- inginn á þessu 98 tonna húsi um götur borgarinnar. Um klukkustund tók að aka með húsið á nýja staðinn en farið var um Geirsgötu, Mýrargötu og Fiskislóð. Þorsteinn segir að sem betur fer hafi göturnar allar verið rúmgóðar, og aðeins þurfti að leggja niður tvö umferðarljós vegna flutningsins. Að auki tók vel á aðra klukkustund að hífa húsið af sérstyrktum vörubílspall- inum.Morgunblaðið/Ómar Zimsenhúsið komið út á Granda LAGIÐ Mikki refur varð hlut- skarpast í dægurlagakeppni sem haldin var fyrir troðfullu íþrótta- húsi á Sæluviku Skagfirðinga á Sauðárkróki á föstudagskvöldið. Það var söngsveitin Sence sem flutti lagið en bæði lag og texti eru eftir hinn þekkta Skagfirðing Árna Gunnarsson, framkvæmdastjóra og fyrrverandi aðstoðarmann félags- málaráðherra. Tíu lög sem valin höfðu verið tóku þátt í úrslitum og um 700 manns tóku þátt í því að velja sig- urlagið ásamt dómnefnd sem og þau lög sem neðar lentu. Þú ert vindur eftir Ólaf Svein Traustason varð í öðru sæti og lagið Flótta- maður eftir þá Sigurpál Aðal- steinsson og Magnús Þór Sig- mundsson hafnaði í þriðja sæti. Samdi lagið eftir leikhúsferð „Þetta var skemmtileg keppni. Fjöldinn allur af góðum lögum og heiður að fá að vera með,“ segir Árni í samtali við Morgunblaðið. Árni hefur fengist nokkuð við að semja lög og texta á seinustu ár- um. „Ég hef verið dálítið heppinn,“ segir hann. „Karlakórinn Heimir tók upp á arma sína fyrsta lagið sem ég gekk frá, en það heitir Í Austurdal. Það var gert í tilefni af sjónvarpsmynd sem ég og fleiri gerðum um Austurdal í Skagafirði. Það var því góð byrjun, en þetta er reyndar allt öðru vísi lag,“ segir Árni um Mikka ref. Tilurð þess má rekja til leikhúsferðar Árna með dætrum sínum á Dýrin í Hálsa- skógi í Þjóðleikhúsinu. „Mikki ref- ur varð til upp úr því. Ég kláraði það svo í fyrra vetur,“ segir Árni. Hann segist aldrei hafa lært neitt í tónlist en hafi gaman af að semja lög. „Ég spila bara eftir eyranu og hef passað mig á því að læra ekki neitt,“ segir Árni, sem gaf út geisladisk á seinasta ári með eigin lögum úr söngleik sem settur var upp á Sauðárkróki. „Ég geri þetta eingöngu vegna þess að ég hef gaman af því. Það er líka mjög ánægjulegt að uppskera og svo er frábært að vinna með svona góðum hópi eins og [söngsveitinni] Sence. Stelpurnar voru á kafi í samræmdum prófum í vikunni en komu svo og rúlluðu þessu upp,“ segir hann. Á áttunda hundrað gestir Það var Stefán Guðmundsson fyrrverandi alþingismaður sem af- henti sigurlaunin á föstudags- kvöldið en þess má geta að Stefán samdi texta við eitt af lögunum í keppninni. Hermann Gunnarsson stjórnaði samkomunni en á átt- unda hundrað gestir mættu í íþróttahúsið og fylgdust með keppninni. Mikki refur eftir Árna Gunnars- son er sigurlagið á Króknum Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Árni Gunnarsson, höfundur sigurlags og texta, og Elenóra Jónsdóttir, eig- inkona hans, voru að vonum ánægð þegar úrslitin lágu fyrir. Eftir Ómar Friðriksson omar@mbl.is FORSETI Íslands mun leggja horn- stein að Kára- hnjúkavirkjun næstkomandi föstu- dag kl. 15. Verður athöfnin með svip- uðum hætti og ver- ið hefur með aðrar virkjanir, en horn- steinninn verður lagður inni í stöðv- arhúsinu, inni í fjallinu, segir Sig- urður St. Arnalds, talsmaður Kára- hnjúkavirkjunarinnar. Auk Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, er reiknað með að Valgerður Sverrisdóttir, iðn- aðarráðherra, flytji ávarp, auk Friðriks Sophussonar, forstjóra Landsvirkjunar, og Jóhannes Geirs Sigurgeirssonar, stjórnarformanns Landsvirkjunar. Þá mun Gunnþórunn Ingólfs- dóttir, oddviti Fljótsdalshrepps, af- hjúpa nafn stöðvarinnar, en stöðin sjálf mun fá sérstakt nafn, þótt virkjunin sjálf heiti eftir sem áður Kárahnjúkavirkjun. Að lokum mun svo sr. Lára Oddsdóttir, prestur á Valþjófsstað, flytja blessunarorð. Hornsteinn lagður að Kára- hnjúkavirkjun Ólafur Ragnar Grímsson LÖGREGLAN á Akureyri hélt úti fíkniefnaeftirliti frá föstudegi og fram á gærmorgun og voru afskipti höfð af fjölda einstaklinga. Reynd- ust fimm aðilar vera með fíkniefni í fórum sínum en í öllum tilvikum var um að ræða neysluskammta. Einn af þessum aðilum var karl- maður á sextugsaldri sem stöðv- aður var á flugvellinum á Akureyri við komu frá Reykjavík. Þar að auki var í gærnótt einn ökumaður stöðvaður, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Fimm teknir með fíkniefni á Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.