Morgunblaðið - 07.05.2006, Page 23

Morgunblaðið - 07.05.2006, Page 23
opnast í dagskránni,“ segir Frusc- iante. Chad Smith Segja má að Chad Smith sé „óþekkti“ piparinn, jarðbundinn og rólegur og jafnar því út æringja- skapinn í Flea og Frusciante. Smith slóst í hópinn eftir að Jack Irons hætti í bandinu í kjölfar þess að Hill- el Slovak, gítarleikari og góðvinur hans, dó úr of stórum skammti af heróíni. Fyrsta platan sem Smith lék inn á var Mother’s Milk (1989). „Þessi nýja plata er platan hans Johns,“ segir Smith. „Hljóðheimur- inn sem hann framkallar með gítarn- um sínum er ótrúlegur. Gítarleikar- ar eiga eftir að fríka út þegar þeir heyra þetta!“ Smith rifjar upp þegar hann gekk í bandið. „Þeir voru mjög uppteknir af háralit og hárgreiðslum, húðflúri og svoleiðis. Ég kem frá Minnesota og var engan veginn í þessum pakka. En þetta var bara málið í Kaliforníu og sérstaklega hjá þeim. Ekta slakir stuttbuxna/strandarstrákar. Ég var svo ólíkur þeim, meira að segja í vaxtarlaginu. Þeir voru ekki alveg vissir hvað gera ætti. Ég hefði pass- að betur inn í Guns’n’Roses á þess- um tíma. En svo fórum við að djamma saman og allt small. Eftir á að hyggja var gott að ég vissi voða- lega lítið um bandið. Ég vissi að þeir höfðu látið taka mynd af sér með sokkana sína á göndlunum en ekki miklu meira. En þetta gengur … eins og þú sérð og heyrir.“ Lögin sem ekki rötuðu á plötuna munu koma út á einhvern hátt, lík- lega sem b-hliðar á smáskífum sem væntanlega verður nóg af. Ein frík- uð hugmynd kom þó upp, að hafa mismunandi lög á plötunni eftir því á hvaða markaðssvæði hún færi. Þannig yrðu útgáfurnar af plötunni allt upp í tíu. Þetta var slegið af og Smith sagði að það væri ekki hægt að gera aðdáendum þetta – sem yrðu að sjálfsögðu að kaupa öll stykkin. RHCP er þegar lögð upp í heims- reisu og verður væntanlega á ferð- inni í eitt og hálft ár. Smith segir að þetta sé þó ekki eins mikil geðveiki og áður. „Við værum löngu dauðir, allir sem einn. Þetta er auðvitað algjör steypa, þannig séð, að vera að túra svona. Maður býr alltaf á þvílíkt fín- um hótelum, flýgur um í einkaflugvél og Guð má vita hvað. En við skiptum þessu upp, við tökum ekki tuttugu og fimm daga í striklotu. Við förum heim og hvílum okkur reglulega. Og vita skaltu að ég er hvorki orðinn samdauna þessu né gleymi því hversu ótrúlega heppnir við erum. Þetta er algjör óskastaða. Og hvaða bönd eru enn að gera eitthvað merki- legt sem eru í svipaðri stöðu og við? Rolling Stones? Það er öllum sama um nýju Stones-plötuna. Ég held að Keith þurfi á tónlistinni að halda en Mick er líklega bara að hugsa um peningana. U2? Ekki merkilegt, Metallica, REM. Þetta lið er ekki að gera neitt merkilegt í dag.“ Flea Bassafanturinn Flea er flipparinn í bandinu. Hár hans hefur verið í öll- um litum og gerðum, sömuleiðis klæðin, og fíflalætin eru mikil og margvísleg. En það sem meira er; Flea er magnaður bassaleikari, virt- ur af samherjum og mikilvægt hryggjarstykki í tónlist RHCP. „Mér finnst eins og við höfum náð einhvers konar hápunkti með þess- ari plötu,“ segir Flea og sparar ekki stóru orðin. „Samstarfið er orðið allt öðruvísi, þetta gengur út á að tala saman, virða hver annan og hjálpast að. Það er mikill samhljómur á milli allra. Þegar við vorum yngri var það einfaldlega ekki þannig. En þessi nýja plata er án efa það besta sem við höfum gert hingað til. Við erum enn að læra og þroskast, höfum metnað til að verða betri og gáfum allt sem við áttum í þessa plötu. Ef þú fílar ekki þessa plötu þá fílarðu ekki Red Hot Chili Peppers. Og það er í fínu lagi.“ Flea lýsir Stadium Arcadium sem epísku verki, þeirra „Magnum Opus“, hvorki meira né minna. Þegar því er lýst fyrir honum að „Dani California“ sé hin fullkomna „fyrsta“ smáskífa yppir hann öxlum. „Humm … jú jú … ég er reyndar alveg hörmulegur í þessum efnum. Ef ég hefði fengið að ráða hefðum við aldrei nokkurn tíma komið lagi í út- varpið af því að ég vel alltaf vitlausu lögin. Ég veit ekki … ég er helvítis asni, ég veit ekki neitt.“ Það er nokkuð ljóst að Flea er dá- lítið fiðrildi. Hann veður úr einu í annað og svörin við sumum spurn- ingunum eru líkt og hann sé að hugsa um eitthvað allt annað. Hann er spurður að því hvort það sé rétt að hann hafi hitt Charles Bukowski. „Já. Ég sagði hæ og hann var in- dæll. Ég sagði honum frá ljóði eftir hann sem ég væri mjög hrifinn af. Það heitir „Tough Motherfucker“ eða „Tough Old Motherfucker“. Það er um kött sem hefur bara þrjár lappir og er eins konar ástaróður til kattarins. Mjög fallegt. Við töluðum um ketti og hann sagðist vera ánægður með að ég væri hrifinn af köttum. Hann spurði hvort ég hefði áhuga á einhverju fleiru og ég sagð- ist vera hrifinn af körfubolta (Flea fer á alla leikina með Los Angeles Lakers og heldur meira að segja úti bloggi sem snýst um þetta uppá- haldslið hans). En Bukowski var ekki hrifinn af körfubolta. Hann hafði ekkert gott um hann að segja.“ Á sínum tíma var rætt um sóló- plötu frá Flea en hljótt hefur verið um slíkt undanfarin misseri. Flea segist hafa hætt við þar sem hann sé ekki nógu góður söngvari. Hins veg- ar hafi hann ákveðið að gera plötu án söngs í staðinn. En þó sé hann ekki viss. Hann er þó viss í sinni sök þegar kemur að því að spila á tónleikum. „Við látum fólki líða vel og við lát- um okkur líða vel. Við erum hér til að rokka heiminn. Við hoppum um eins og asnar á sviði en við þurfum þess ekki, það er tónlistin sem gerir þetta. Hún er það eina sem skiptir máli, það er hún sem við lifum fyrir og gef- ur okkur tilgang.“ ’Þeir voru mjög uppteknir af háralit oghárgreiðslum, húðflúri og svoleiðis. Ég kem frá Minnesota og var engan veginn í þessum pakka.‘ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 23 13. - 28. september Kalifornía er í hugum margra þekkt fyrir Hollywood og kvikmyndir. Við fljúgum til San Francisco og förum þaðan í sannkallaða draumaferð. Haldið þaðan meðfram ströndinni til Los Angeles, farið á staði eins og Hollywood, Rodeo Drive í Beverly Hills og Alvera Street. Universal Studios verða heimsótt. Áfram er haldið til San Diego og Phoenix. Síðan er komið að hápunkti ferðarinnar sem er Grand Canyon og gistir hópurinn við þjóðgarðinn. Þá borgar sig að fara snemma á fætur og sjá sólaruppkomuna í þessu stórkostlega landslagi. Haldið til svæðis Indíána í Paintet Desert, inn í Monument Valley og áfram til Bryce Canyon. Ekið til Las Vegas, gist þar í tvær nætur og gefst þá færi á að kíkja aðeins í spilavítin og jafnvel freista gæfunnar. Komið við í Death Valley á leið til San Francisco. Að lokum er farið í skoðunarferð til hinnar alræmdu fangelsiseyju Alcatraz. Þetta eru einungis nokkrir af þeim stöðum sem heimsóttir eru í ferðinni sem sló í gegn í fyrra. s: 570 2790www.baendaferdir.is K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A Draumaheimur Verð: 238.670 kr. Mikið innifalið! Nánari upplýsingar í síma 570 2790 eða á www.baendaferdir.is Kalifornía -Arizona -Nevada -Utah Sp ör - Ra gn he ið ur In gu nn Ág ús ts dó tti r Kaliforníu Málþing á Fosshóteli Húsavík 9. maí 2006 um álver og efnahagsáhrif þess á Norðurlandi Fyrir skömmu tilkynnti Alcoa að það hefði áhuga á að reisa annað álver sitt á Íslandi á Húsavík. Hér er hugsanlega um að ræða álver sem myndi framleiða 250 þús. tonn af áli á ári og ráða um 300 starfsmenn, en afleidd störf yrðu um eða yfir 300. Rætt verður um þætti eins og: Hvaða áhrif hefur álver á N-Austurlandi á afkomu svæðisins og tekjur þjóðarbúsins? Verður álverið knúið vistvænni orku frá háhitasvæðum við bæjardyr Húsavíkur? Hver hefur reynslan verið á Austurlandi þar sem gróska ríkir? Liggur Húsavíkurhöfn vel við siglingaleiðum til helstu hafna álfunnar? Er staðarvalið ekki kostur? Fulltrúar launþega, atvinnurekenda og úr stjórnmálum eru sérstaklega hvattir til að mæta. Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á byggingu álvers á Húsavík. Málþingið verður þriðjudaginn 9. maí nk. frá kl. 17:00 til kl. 18:30. Dagskrá: Hagrænir þættir og tækifæri í nærumhverfi Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans Samspil umhverfisverndar og athafnalífs Árni Sigurbjarnarson, fulltrúi Húsgulls Hagræn áhrif álvers Sveinn Agnarsson, hagfræðingur við Hagfræðistofnun HÍ Ört vaxandi athafnalíf á Austurlandi Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs Austurlands og forstjóri Alcoa Fjarðaáls Stóriðja og flutningar Einar Eyland, svæðisstjóri Eimskips á Norðurlandi Umræður og fyrirspurnir Fundarstjóri: Tryggvi Finnsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga. Á Húsavík sér framtíð? Að fundinum standa: Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Viðskiptaráð Austurlands, OrkuÞing, Alcoa, Landsbankinn, KEA, Eimskip og Alli Geira hf. K O M a lm a n n a te n g sl /s va rt h ví tt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.