Morgunblaðið - 07.05.2006, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 07.05.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 25 Á dögunum gekk ég tilMexíkó til að kaupa tekíla. Þetta var á vor-degi og þegar ég leit útum hótelgluggann um morguninn sá ég að enda þótt það væri bjart yfir höfninni og reisulegri miðborg San Diego mátti sjá mikla, gráa skýjabakka yggla sig úti fyrir ströndinni. Það var sem sé allra veðra von. Ég og starfsfélagi minn í handritsgerð höfðum hluta fjöl- skyldna okkar með í för til að gefa ferðinni siðfágaðra yf- irbragð, en eina raunverulega erindið suður yfir landamærin var að kaupa tiltekið hágæða áfengi af þessari gerð, sem á Íslandi er aðallega tengd við drykkjuleiki og voveiflega timb- urmenn. Hitt vita færri að alvöru tekíla, sem er 100 prósent unnið úr safa agave- plöntunnar og ekki til sölu hérlendis, er í raun áfengt grænmeti í fljótandi formi og því meinhollt í hófi. Þar að auki er það til í mörg hundruð teg- undum, enda hver mexíkósk sveit með sína eigin framleiðslu, rétt eins og viskíið í Skotlandi. Við höfðum fengið leiðbeiningar á hótelinu um allt sem sneri að ferðinni, hvar ætti að beygja af hraðbrautinni, hvar bæri að leggja bílnum og hvar væri öruggt að borða í Tijuana án hættu á matareitrun. Afreinin af hraðbrautinni var merkt með nokkuð dramatískum hætti „Last U.S. Exit“ og mér varð hugsað til gamals kennara okkar, Huberts heitins Selbys, sem skrifaði „Last Ex- it to Brooklyn“ og leit sannarlega út eins og maður sem hafði rétt með naumindum sloppið úr einhverjum háska. Þetta gat varla boðað gott. En þessi hinsta afrein Bandaríkj- anna leiddi okkur bara inn í bæ sem ég man ekki nafnið á en blasti við manni eins og urmull annarra slíkra í Suður-Kaliforníu, með lágreistum, snyrtilegum verslunarbyggingum kringum ládautt haf af malbikuðum bílastæðum. Nú voru regnskýin komin ískyggi- lega nærri og því héldum við í þá kunnu risaverslun, K-Mart, til að fjár- festa í regnslám. Í K-Mart-verslunum er sem kunnugt er unnt að kaupa allt milli himins og jarðar. Mjólk, jakka- föt, vélsleða og auðvitað skotvopn, ef maður er nú alveg í spreng með að plaffa á eitthvað, eða einhvern. Eftir að hafa lagt bílnum nærri landamærunum sjálfum gengum við áleiðis til lands barðastóru hattanna klædd í tilsniðna glæra plastpoka úr K-Mart. Mexíkóskir hermenn gættu þess að trufla ekki gestina við hliðið og við gengum ótrufluð inn í Mið-Ameríku. Og við vorum ekki komin nema nokk- ur skref inn í nýja álfu, annan heim, þegar sólin brenndi burt skýjabakk- ana og við gátum lagt plastpokaföt- unum. Tijuana-borg er eins og leikmynd. Ein býsna sannfærandi verslunargata með alls kyns minja- og túristavarn- ingi upp um alla veggi, seigri bílaum- ferð og stífpressuðum löggum á hverju strái. En steinsnar þaðan í all- ar áttir er varla annað að sjá en enda- lausar raðir af kofaskriflum sem minna fremur á þriðja heiminn en líf- lega verslunarborg við landamæri mesta efnahagsveldis heims. Í fyrstu vínbúðinni sem við komum að spurðumst við fyrir um hið eft- irsótta tequila reposado, „Arroyo Negro“, og þarna var það sannarlega til, en aðeins tvær flöskur og ekkert hræódýrar. Við ákváðum að leita fanga víðar, en kaupa ekki bara af fyrsta kaup- manninum sem við hittum. Við örk- uðum því alla verslunargötuna fram og til baka og spurðum um Arroyo Negro í öllum vínbúðunum. Það skil- aði engum árangri. Í staðinn, líkt og í sárabætur, næld- um við okkur í ýmsan annan forláta varning, svo sem bjórkippuhaldara úr leðri, segulmerki á ísskápinn og minjagripi tengda allrasálnamessu að ógleymdri svart-hvítri ljósmynd sem tekin var af öllum hópnum á asna- kerru og verður seint notuð sem kynningarefni. Á leiðinni til baka jukust áhyggjur okkar jafnt og þétt. Það lá sem sagt fyrir að flöskurnar í fyrstu búðinni voru tvær síðustu Arroyo Negro- flöskurnar í Tijuana. Við óttuðumst mjög að þegar við loksins næðum aft- ur í fyrstu búðina sem við komum að væru einhverjir aðrir tekílasnobbarar búnir að hirða þær af okkur. Við keyptum tvö handofin ullarteppi úr næstum hreinu akrýlefni í tómu hug- arvíli. En viti menn. Við náðum til baka í tæka tíð og tryggðum okkur flösk- urnar tvær. Verðið var fyllilega ásætt- anlegt. Leiðangurinn hafði heppnast. Það var öllu snúnara að fara frá Mexíkó til Bandaríkjanna heldur en í hina áttina. Við máttum stjákla í kílómeterslangri biðröð með ráman vísnasöng og falskan gítarleik í eyr- unum í um klukkutíma áður en við komum að bandaríska tolla- og inn- flytjendaeftirlitinu. Þar gekk allt vandræðalaust og eftir þennan fjög- urra tíma göngutúr í öðrum heimi, sem reyndist ódýr eftirlíking af okkar, var gott að vita af hinum gullnu veig- um í skottinu á bílnum á leiðinni heim. Gullið tekíla og tveggja heima sýn HUGSAÐ UPPHÁTT Sveinbjörn I. Baldvinsson Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Ef þú tryggir þér nýjan Camp-let tjaldvagn fyrir 15. maí fylgja aukahlutir að verðmæti 25.000 með. Enn ein ástæðan til að tryggja sér þennan einstaka tjaldvagn. Nýr Camp-let tjaldvagn á sérstöku tilboði! Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is A›alræ›uma›ur á fundinum er Hervé Carré, a›sto›ar- framkvæmdastjóri stjórnarskrifstofu efnahagsmála hjá ESB og einn af hugmyndasmi›um evrunnar. Fundurinn er haldinn mánudaginn 8. maí á Nordica Hótel kl. 8:15 – 10:00 Dagskrá: 8:15 Morgunver›ur 8:30 Percy Westerlund, sendiherra og yfirma›ur Fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi: Opnunarávarp 8:35 Hervé Carré, a›sto›arframkvæmdastjóri stjórnarskrifstofu efnahagmála hjá ESB: “Addressing the opportunities and challenges of globalisation, what role for the euro?” 9:15 Fyrirspurnir og umræ›ur 10:00 Fundarlok Fundarstjóri er Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsrá›s. Fundurinn er öllum opinn en áhugasamir eru be›nir a› skrá flátttöku í síma 511 4000 e›a me› tölvupósti, utflutningsrad@utflutningsrad.is Í tilefni af Evrópudeginum b‡›ur Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi, í samstarfi vi› Euro Info skrifstofuna, Samtök atvinnulífsins og Samtök i›na›arins, til morgun- ver›arfundar um evruna mánudaginn 8. maí n.k. Hlutverk evrunnar í alþjóðavæðingunni M IX A • fí t • 6 0 2 3 1 Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi Er evran svarið? Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Mallorca í maí. Þú bókar flug og gistingu og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Njóttu lífsins á þessum vinsæla sumarleyfisstað. Gríptu tækifærið og kynnstu einum eftirsóttasta áfangastað ferðamanna í Evrópu. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Mallorca 25. maí frá kr. 29.990 Síðustu sætin Verð kr. 29.990 Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/ íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.