Morgunblaðið - 07.05.2006, Side 40

Morgunblaðið - 07.05.2006, Side 40
40 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ N ú er tekið að hausta hér í Nýju-Suður- Wales þótt alla haustliti vanti sárlega. Til þess að njóta þeirra þarf að aka suður á bóginn til höfuðborgarinnar Canberra eða upp í fjöllin til Nýja- Englands. Sólin sest um sexleytið hér í Narrabri og við tekur stjörnuhiminn sem setur upp einstakt sjónarspil. Vetrarbrautin sýnist örskammt í burtu og svo virðist sem hægt sé að teygja sig eftir svo sem einni glitrandi stjörnu. En hauststillur ríkja ekki um alla álfuna. Fellibylurinn Larry olli gífurlegum skemmdum nyrst í Norður-Queens- landi í marsmánuði en ekki varð manntjón. Banana- og sykuruppskeran varð mikið til ónýt, hús lágu í rústum, heilu þorpin urðu rafmagns- og vatnslaus. Þaklaus hús í röðum, brotnir gluggar, brak og bárujárnsplötur um allt, ekkert símasamband. Fólk er enn að jafna sig eftir ósköp- in og átta sig á tilverunni. Undrandi yfir að aðalskemmd- irnar skyldu vera uppskeran og húsin. Hjálparstarf hefur gengið vel en gífurleg vinna er enn framundan þar sem skapa þarf atvinnu og húsnæði, aðstæður svo fólk vilji dvelja þarna áfram. Sigurglaðir Ástralar Íþróttaleikar breska samveldisins eru afstaðnir og fóru fram með friði og spekt. Ástralar unnu nánast óteljandi medalíur, gull, silfur og brons, og báru af öllum. Drottn- ingin setti leikana og voru leiknir nokkrir tónar af „God safe the Queen“ áður en þjóðsöngurinn var sunginn. Á annan tug íþróttamanna var þó saknað er leið að lok- um og komu þeir smátt og smátt í leitirnar næstu dagana. Þetta voru ungir menn og konur frá Afríku sem sóttu um landvistarleyfi í Ástralíu. Tók stuttan tíma að veita þeim vegabréf og voru þeir ekki sendir í flóttamannabúðir eins og aðrir. Kannski vegna íþróttahæfileika sinna eða þess að leikarnir nutu sérstakar athygli úti í heimi. Fínir gestir og hneykslismál Fleiri gestir en drottningin hafa heimsótt álfuna, m.a. Condoleezza Rice og Tony Blair. Athygli fólks hefur því beinst að öðru en stjórnmálunum á heimavígstöðvunum og kemur það sér vel fyrir alríkisstjórnina. Ekki síst vegna hneykslismáls eins mikils. Þetta hneyksli varðar sölu hveitis til Íraks sem fór fram á árunum rétt fyrir og fyrstu ár „langa stríðsins“ í Írak. Hveiti er ein aðalútflutn- ingsvara Ástrala og einkaréttur á sölu þess til útflutnings hefur verið í höndum AWB (Australia Wheat Board), vel virts fyrirtækis. Helstu samkeppnislönd Ástrala á hveiti- markaðinum eru Kanada og Bandaríkin. Hneykslið felst í því að AWB greiddi tæplega 300 millj- ónir ástralskra dollara í mútur þegar þeir seldu Írökum hveiti samkvæmt „food for oil“-samkomulaginu. Pening- arnir voru greiddir flutningafyrirtæki í Jórdaníu en þeir runnu síðan að mestu í hendur stjórnar Saddams Huss- eins meðan á viðskiptabanninu stóð. Sérstök rannsókn- arnefnd (Colin Inquiry) hefur verið að störfum í margar vikur og auk allra „stjóra“ AWB hafa utanríkisráðherra, varaforsætisráðherra og forsætisráðherra alríkisstjórn- arinnar mætt til yfirheyrslu. Þúsundir skjala staðfesta múturnar. Spurningin er hins vegar hvort stjórnvöld vissu af þessum greiðslum. Stjórnarandstaðan hefur beitt allri sinni kænsku en ekki tekist að sanna það. Allir þeir sem hafa verið yfirheyrðir þjást af minnis- leysi, heyrnarleysi og sjónleysi að meira eða minna leyti. Ráðherrar lásu ekki mikilvæga pappíra varðandi málið sem hlýtur að teljast óafsakanlegt. Stjórnvöld segjast hafa treyst AWB fullkomlega, ekki hafa grunað neitt þrátt fyrir kurr í SÞ, Kanada- og Bandaríkjamönnum. Almenn- ingur er ekki í minnsta vafa um að stjórnarherrarnir vissu um múturnar, 72% telja að svo hafi verið samkvæmt nýj- ustu skoðanakönnun og hafa vinsældir Johns Howards dalað nokkuð vegna þessa. Eða eins og það var orðað í dagblaðinu Sydney Morning Herald 24. apríl: „Geisla- baugur Howards ljómar ekki eins skært lengur.“ Þrátt fyrir yfirlýsingar forsætisráðherra um að allt sé opið og öll skjöl liggi á borðinu hafa ýmsir pappírar ekki verið af- hentir rannsóknarnefndinni. Hún hefur afar takmarkað vald varðandi ráðherrana og gömul ummæli hér í álfu herma að „ekki sé sett upp rannsóknarnefnd nema útkom- an sé vís fyrirfram“. Er nú beðið eftir niðurstöðum nefndarinnar þótt sann- leikurinn komi sjálfsagt ekki í ljós fyrr en eftir nokkra ára- tugi þegar aðgangur að leyniskjölum verður gefinn eftir. Eitt glott getur kostað þig vinnuna Þessa dagana eru 150 ár liðin síðan baráttan fyrir átta stunda vinnudegi hófst í Ástralíu. Sólarhringurinn átti að skiptast í átta tíma vinnu, átta frjálsa tíma og átta tíma hvíld. Voru Ástralar meðal þeirra fyrstu sem öðluðust þessi réttindi. Full ástæða er til að rifja upp sögu verka- lýðshreyfingarinnar því nýlega gengu í gildi ný lög um samskipti atvinnurekenda og verkafólks. Fyrirtæki sem hafa færri en eitt hundrað manns í vinnu geta nú sagt fólki upp eftir geðþótta og án þess að fólkið geti leitað réttar síns ef um óréttmæta uppsögn er að ræða því hendur verkalýðsfélaganna eru bundnar samkvæmt lögunum. Reyndar geta einstaklingar leitað til dómstóla en slíkt er mjög kostnaðarsamt og tekur mörg ár. Eiga afleiðingar þessara laga eftir að koma betur í ljós. Ekki er skylda að ganga í verkalýðsfélag og hefur með- limatölu félaganna fækkað á undanförnum árum. Heldur alríkisstjórnin því fram að lögin muni auka framleiðni og stuðla að sveigjanleika á vinnumarkaðinum. Verkalýðs- félögin hyggja hins vegar á langa baráttu til að endur- heimta réttindi félaga sinna. Hinir fjörutíu og þrír Flóttamennirnir 43 sem komu á báti til Ástralíu í janúar sl. frá V-Papúa eru nú efst á baugi. Öllum nema einum þeirra hefur verið veitt svokallað „bráðabirgða-verndar- vegabréf“ til þriggja ára og hefur þessi ákvörðun vakið sterka reiðiöldu í Indónesíu. Málið er óhemju viðkvæmt og á hverjum degi gerist eitthvað nýtt. Forseti Indónesíu, Susilo Bambang Yudhoyono, kallaði heim sendiherra sinn í Ástralíu og krefst nú afsökunarbeiðni frá forsætisráð- herra, John Howard, sem þverneitar. „Móðgið okkur ekki, spilið ekki með okkur og neitið okkur ekki um réttlæti,“ sagði forsetinn í viðtali hinn 18. apríl. Hann sagði að yfir- lýsingar Ástrala um að þeir styddu yfirráð Indónesa í V-Papúa stönguðust á við að veita Papúunum vegabréf. Til þess að milda Indónesa hyggst alríkisstjórnin setjar strangar reglur næst þegar þing kemur saman. Þá verða allir flóttamenn sem koma á bátum fluttir af meginlandi Ástralíu og til eyjanna, Nauru og Christmas Island, og mál þeirra afgreidd í flóttamannabúðum þar. Þetta þýðir að allar umsóknir um dvalarleyfi verða afgreiddar eins og viðkomandi dvelji í flóttamannabúðum SÞ erlendis. Þessi ákvörðun var tekin eftir að reiði Indónesa varð ljós og í Fáni morgunstjörnunnar og flókinn ríkiserindrekstur Reuters Maður með hefðbundið höfuðfat V-Papúa tekur þátt í baráttufundi til stuðnings flóttamönnunum í Sydney. Reuters Indónesískir mótmælendur fyrir utan ástralska sendiráðið í Jakarta eftir að 42 V-Papúabúum var veitt bráðabirgðalandvistarleyfi í Ástralíu. Reuters Á V-Papúa eru auðugar gull- og koparnámur þótt íbúarnir hafi lítið notið góðs af. Hið bandaríska Freeport McNoRan ásamt breska fyrirtækinu RTZ hafa átt námuréttindin síðan 1967, en Indónesíustjórn hirðir 20% gróðans. Reuters Ástralski forsætisráðherrann, John Howard, er meðal þeirra sem yfirheyrðir eru vegna AWB-hneykslisins. Reuters Natalie Bates fagnar sigri í hjólreiða- keppni kvenna, en Ástralir sópuðu að sér verðlaunum á Sambandsleikunum. Reuters Fellibylurinn Larry reif upp heilu húsin í Queensland, þótt tjónið sem af honum varð sé að mestu leyti ónýt uppskera bænda þar í nágrenninu. Fellibyljir, hneykslismál tengd Írak og gott gengi á Bresku sambandsleikunum er meðal þess sem drifið hefur á daga Ástrala þetta haustið. Stirð tengsl ástralskra stjórnvalda og þeirra indónesísku í kjölfar þess að flóttamönnum frá V-Papúa, sem Indónesar telja sitt yfirráðasvæði, var veitt bráðabirgðadvalarleyfi í Ástralíu hafa þá ekki vakið minni athygli segir Sólveig Einarsdóttir og spyr hvort V-Papúa verði næsta Austur-Tímor.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.