Morgunblaðið - 07.05.2006, Side 41

Morgunblaðið - 07.05.2006, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 41 þeim tilgangi að milda þá og koma í veg fyrir frekari flóttamannastraum frá V-Papúa. Þetta hefur dugað skammt en hefur hins vegar vakið megna óánægju hér innanlands, m.a. hjá stjórn- arandstöðunni, nokkrum þingmönnum Frjáls- lynda flokksins, ýmsum æðri mönnum kirkjunn- ar og eins hefur flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lýst áhyggjum sínum vegna þessa. Álítur SÞ að ekki sé um mikinn straum flótta- manna að ræða og þetta setji slæmt fordæmi. Þetta þýðir einnig að nú lenda börn á ný bak við gaddavírsgirðingar. Þá kemur þetta sér illa fyrir Papúa Nýju- Gíneu sem síðan 1975, er þeir fengu sjálfstæði, hefur tekið við aðalflóttamannastraumnum frá vesturhluta eyjunnar, V-Papúa. Nú verða þeir enn fyrir valinu af hendi hinna ofsóttu. Forsætisráðherra, John Howard, hefur líka gefið yfirlýsingar um að forseti Indónesíu sé sá albesti forseti sem þar hefur setið eftir að lýð- ræði komst á í Indónesíu eftir fall Suhartos 1998. Er margt til í því en hinn vinsæli forseti er líka milli steins og sleggju. Flokkur forsetans á aðeins 55 fulltrúa af rúmlega fimm hundruð á þingi og stýrir samsteypustjórn sem á í vök að verjast gegn sterkum hægriflokkum. Mikil viðskipti eiga sér stað milli Ástralíu og Indónesíu og góð samvinna tókst með löndunum í sambandi við Balí-sprengjuna og baráttu gegn hryðjuverkamönnum. Margir indónesískir stúd- entar koma til náms í Ástralíu og ferðamanna- straumur er nokkur. Þó er samvinnan einna mikilvægust varðandi landhelgis- og landa- mæragæslu fyrir norðan álfuna auk þess sem siglingaleiðir ástralskra flutningaskipa liggja um yfirráðasvæði Indónesa. Ritari ástralska utanríkisráðuneytisins var sendur til Jakarta til að reyna að lægja öldurn- ar. Honum var tekið af kurteisi en kulda. Susilo Bambang Yudhoyono áleit að utanríkisráðherra eða forsætisráðherra sjálfur ætti að koma. Næststærsta eyja heims Ef litið er á landakortið má sjá að það er að- eins dagsferð frá Papúa Nýju-Gíneu til Ástralíu á hraðskreiðum báti. PNG er næststærsta eyja heims. Vesturhlutinn varð 26. hérað Indónesíu árið 1969 eftir að opinbert vald var flutt úr hönd- um hollensku nýlenduherranna og til Indónesa. Voru það Bandaríkjamenn sem neyddu Hol- lendinga til að láta nýlendu sína af hendi. Ótt- uðust þeir áhrif kommúnista. Ástralska stjórnin hafði stutt V-Papúa en sneri við blaðinu. Íbúar V-Papúa áttu að eiga frjálst val og kjósa sér stjórnarfar árið 1969. Meirihluti þeirra vildi sjálfstæði. Hins vegar var komið í veg fyrir al- mennar kosningar, einungis útvaldir máttu kjósa og voru þessir fáu útvöldu neyddir til að velja yfirráð Indónesa. (Dettur annars nokkrum lesanda Kópavogsfundurinn í hug?) Árið 1973 gáfu Indónesar héraðinu nýtt nafn, Irian Jaya, en innfæddir vilja ekki nota það nafn. Á V-Papúa eru einstaklega auðugar gull- og koparnámur en íbúarnir hafa lítið notið góðs af því vegna þess að auðurinn er fluttur úr landi. Hið bandaríska Freeport McNoRan ásamt RTZ, sem er breskt fyrirtæki, eiga námurétt- indin síðan 1967 sem hershöfðinginn Suharto veitti þeim. Indónesía fær 20% en fyrirtækin 80%. Yfir 40 milljón hektarar af skógi eru á Vestur- Papúa og er timburiðnaður ásamt ódýru vinnu- afli sérlega gróðavænlegur. Meirihluti íbúa er kristinn og ríkir víðsýni í trúmálum. Árlega flytja um tíu þúsund manns frá Jövu og Sulawesi til V-Papúa og er þetta skipulagt og styrkt af indónesísku stjórninni. Stærstu borgir eru Sorong og Jayapura með um það bil 200 þúsund íbúa hver. Verður Vestur-Papúa nýtt Austur-Tímor? Slíkt verður að telja ólíklegt. Árið 1999 studdu Ástralar sjálfstæðisbaráttu Austur-Tímor sem lauk með sjálfstæði þeirra. Var það ekki síst fyr- ir einhuga stuðning ástralsks almennings að stjórnin sá sig tilneydda að hjálpa þeim þótt hún hefði gefið yfirlýsingar um að þeir virtu yfirráð Indónesa. Misstu þá Indónesar stóran spón úr aski sínum – gas og olíu. Þessu hafa Indónesar sannarlega ekki gleymt. Samband landanna hef- ur ekki verið eins slæmt og nú síðan þá. Ástr- alskur almenningur vildi endurgjalda stuðning Austur-Tímor en þeir földu og hjálpuðu ástr- ölskum hermönnum sem börðust þar gegn Jap- önum í síðari heimsstyrjöldinni. Er það löng saga. Í lok stríðsins höfðu 40–50 þúsundir íbúa Austur-Tímor fallið eða soltið til bana af aðeins 650.000 íbúum, mest fyrir að hjálpa Áströlum. Gróði Indónesa af V-Papúa er of mikill til þess að þeir láti undan sjálfstæðiskröfum þeirra eða 33 billjónir bandarískra dollara af Freeport- námunum sem síðan 1992 hafa runnið beint inn í efnahagskerfi þeirra. Sá fertugasti og þriðji Einmitt þessa daga eru að birtast óljósar fréttir af 43. flóttamanninum, hinum eina sem ekki fékk vegabréf hér og dvelur enn á Christ- mas Island. Hann er 24 ára gamall. Faðir hans, dr. Thomas Wainggai, barðist fyrir sjálfstæði V-Papúa og helgaði líf sitt þeirri baráttu. Lést hann í fangelsi í Jakarta fyrir tíu árum en hann hafði verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að veifa sjálfstæðisfánanum, sem nefnist fáni morgunstjörnunnar, í mótmælagöngu. Öll fjöl- skyldan er „persons of interest“ hjá öryggis- deildum Indónesa. Áströlsk yfirvöld eru afar hikandi við að veita þessum unga manni, David Wainggai, dvalar- leyfi því þá yrði reiði Indónesa enn meiri. Indónesar eru áhyggjufullir vegna sterkra þjóðernistilfinninga íbúa Vestur-Papúa en varla geta þeir snúið til baka til Suharto-harðlínuár- anna. Reynir nú ákaflega á áströlsk stjórnvöld að miðla málum í samskiptum sínum við Indó- nesa og stuðla að auknum mannréttindum og réttlæti á V-Papúa. Land friðar — fáni morgunstjörnunnar Hin blóði drifna saga V-Papúa er ekki enda- slepp þótt alltaf vakni vonir. Talað er um „vorið 2000“ er þíða í samskiptum milli Indónesa og inn- fæddra ríkti. Þá mátti reisa fána morgunstjörn- unnar að húni og frumbyggjarnir áttu að fá að ráða málum sínum. Eitt kvöldið var leiðtoga hinna innfæddu, Theys Eluay, boðið sem heið- ursgesti til kvöldverðar í herbúðum sérsveita Indónesíu á V-Papúa. Hann kom aldrei heim aft- ur. Gestgjafarnir drápu hann og þar með vorið og vonina um aukið frelsi íbúanna. Þúsundir indónesískra hermanna dvelja á V-Papúa og fólk óttast framtíðina, því hermenn- irnir hræða til undirgefni og hefur ofbeldi hersins aukist sl. fjögur ár. Íbúar V-Papúa sem standa framarlega í sjálfstæðisbaráttunni verða að leita skjóls uppi í fjöllum vegna ofsókna en aukið sjálf- ræði, réttindi til náms og heilsugæslu ættu þó að teljast sjálfsögð mannréttindi. Hermt var í leiðara dagblaðsins Sydney Morning Herald í lok mars að hundruð stúdenta háskólans hefðu farið í felur eða haldið til PNG. Óeirðir höfðu brotist út vegna mótmæla manna við námu í Freeport og féllu fjórir öryggisverðir í valinn. Olli þetta mikilli spennu sem enn ríkir. Skýrsla frá SÞ á þessu ári staðfestir að 180.000 óbreyttir borgarar hafi fallið í V-Papúa af hendi yfirvalda undir indónesískri stjórn en ekkert hef- ur verið aðhafst vegna ótta við að skapa enn meiri spennu og vandræði. Á V-Papúa óttast menn að þjóðir heimsins skeyti lítt um óréttlæti það sem íbúarnir verða fyrir, líkt og þegar sofið var á verðinum varðandi Austur-Tímor. Þeir óttast gleymsku heimsins. Þeir vilja að land þeirra sé yfirlýst friðarland. Papúa hefur verið lokað fyrir erlendum eft- irlits- og fréttamönnum í meira en þrjú ár. Ástr- alar ættu að hvetja Indónesa til að leyfa þeim að koma til V-Papúa og sannreyna yfirlýsingar þeirra um friðsamlega þróun. Besta von íbúa V- Papúa er að forseti Indónesíu veiti þeim svipaða sjálfsstjórn og Aceh-hérað í Indónesíu fékk ný- lega en það var eitt af loforðum hans fyrir kosn- ingarnar að báðir þessir aðilar hlytu aukið sjálf- ræði. Solomon-eyjar Þegar litið er til eyjanna PNG, Solomon, Fiji og Vanuatu, sem allar hafa öðlast sjálfstæði, er auð- séð að leiðin til lýðræðis er löng og grýtt. Þessa dagana varð að senda ástralskar hersveitir til Sol- omon-eyja til að stilla til friðar eftir löglegar, frið- samlegar kosningar. Hvers vegna? Jú, andstæð- ingar stjórnarinnar töldu sigur sinn vísan en sáu svo gömlu stjórnina setjast aftur á valdastóla. Reiðin varð svo mögnuð að Kínahverfi borgarinn- ar var brennt til grunna og skemmdarverk fram- in víðar. Ástæðan var sú að stjórnarandstæðingar töldu Kínverja heima fyrir og kínverska aðila á Taívan hafa mútað aðilum og/eða borgað fé í kosningasjóði stjórnarinnar. Útgöngubann ríkir og meðan ástralskir her- menn þramma um götur Honiara, höfuðborgar Solomon-eyja, hefur forsætisráðherra sett a.m.k. tvo af þingmönnum andstöðunnar í fangelsi og ákært þá fyrir að hafa hvatt til óeirðanna. Framhaldssagan Af ástralska fanganum í Guantanamo-flóa, David Hicks, er það að frétta að áfrýjun breskra yfirvalda um ríkisborgararétt hans var synjað þannig að nú hefur hann breskt vegabréf ef hann fær leyfi til að sverja eiðinn í fangelsinu. Samt á að vísa ríkisborgaramáli hans til lávarðadeildar breska þingsins til endanlegrar af- greiðslu. Hennar er ekki að vænta fyrr en í lok þessa árs. Árin verða því fljótlega orðin fimm sem David hefur setið inni meðan breskir þegnar með svipaðar ákærur hafa verið leystir úr haldi í Guantanamo-flóa og ganga frjálsir um götur á Bretlandi. Meðan hauststillur ríkja enn i Narrabri í Nýju- Suður-Wales er von á fellibylnum Monicu norður í álfu. Hvítir kakadúar flokkast yfir akrinum þar sem við sáðum baunum af daginn. Þeir eru svangir og gæða sér á baununum af mikilli áfergju. Hversu lengi skyldum við mega bíða þess að stjörnuhiminn réttlætis hvolfist yfir jörðina? Reuters Dansarar íklæddir hefðbundnum þjóðbúningum taka þátt í hátíðarhöldum í Papúa Nýju-Gíneu. En frá því íbúar þar fengu sjálfstæði árið 1975 hafa þeir tekið við aðalflóttamannastraumnum frá vesturhluta eyjunnar, V-Papúa, í óþökk indónesískra stjórnvalda. Hætti áströlsk stjórnvöld að taka við flóttamönnum frá V-Papúa mun þrýstingur á Papúa Nýju-Gíneu aukast enn frekar. Reuters Ástralski forsætisráðherrann, John Howard (fyrir miðju), ræðir við bændur í norðurhluta Queens- land og skoðar eyðilegginguna sem fellibylurinn Larry skildi eftir sig. ’Gróði Indónesa af V-Papúa er of mikill til þess aðþeir láti undan sjálfstæðiskröfum þeirra.‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.