Morgunblaðið - 07.05.2006, Síða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 7. MAÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
www.xf.is
www.f-listinn.is
Maíblað
Veiðihornsins
fylgir blaðinu
í dag
Reyksuðukassar
veidihornid.is
NOKKUR erill var hjá lögreglunni á Akureyri
í umferðarmálum á föstudag og fram á laug-
ardagsmorgun og voru m.a. 45 ökumenn tekn-
ir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók
var karlmaður á sextugsaldri sem tekinn var á
122 km hraða í Öxnadalnum þar sem há-
markshraði er 90 km á klukkustund. Sá hinn
sami vann það sér til frægðar fyrr í vikunni að
vera stöðvaður fyrir of hraðan akstur af lög-
reglunni á Blönduósi, þá í áttunda skiptið á
einu ári.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á
Akureyri hefur maðurinn nú verið stöðvaður
ellefu sinnum á einu ári, á Blönduósi, Akureyri
og í Reykjavík. Fyrir umferðarbrotin í vikunni
Þess vegna geta menn haldið velli ansi lengi
þangað til skellurinn kemur.“
Sigurður Helgason, verkefnisstjóri hjá Um-
ferðarstofu, segir málið að sjálfsögðu snúast
um hversu marga punkta maðurinn fær í
hvert skipti sem hann er tekinn fyrir of hrað-
an akstur, en hann má fá tólf punkta áður en
hann er sviptur ökuleyfi. „Hins vegar skella
punktarnir ekki á fyrr en viðkomandi er búinn
að greiða sektina og það er mjög óæskilegt,“
segir Sigurður og bætir við: „En þetta atferli
er hrein og klár síbrotastarfsemi og það þarf
að leita allra leiða til að stöðva svona. Þessi
maður á að gera eitthvað annað en að keyra
bifreið.“
þarf maðurinn að greiða samtals sextíu þús-
und krónur og gera má ráð fyrir því að sekt
hans vegna allra umferðarbrota sé yfir 250
þúsund krónur.
Þrátt fyrir síendurtekin umferðarlagabrot
er maðurinn þó enn handhafi ökuleyfis og
keyrir því enn um götur bæja og borgar.
„Kerfið þungt og svifaseint“
„Þetta sýnir einfaldlega hvað kerfið er
þungt og svifaseint, og dapurt að mörgu leyti,“
segir Hermann Karlsson, varðstjóri hjá lög-
reglunni á Akureyri. „Menn geta ýtt málum of
mikið á undan sér og átt fullt af þeim eftir óaf-
greitt vegna þess hvernig kerfið er byggt upp.
Ökumaður stöðvaður fyrir of hraðan akstur í ellefta skipti á einu ári
„Þetta atferli er hrein og
klár síbrotastarfsemi“
VEL hefur veiðst á dragnótabátnum Farsæl GK að undanförnu en
hann hefur verið á veiðum suður af Eldey. Á föstudag fékk bátur-
inn 20 tonn í fjórum köstum og á meðfylgjandi mynd sést Sveinn
Eyfjörð matsveinn opna pokann en í kastinu fengust sex tonn af
stórum ufsa og þorski með ýsu í bland. Mikið líf var í kringum
bátinn og eins og sjá má sóttu súlurnar fast að aflanum. Aftast í
bátnum stendur svo Hafsteinn Þorgeirsson stýrimaður og fylgist
með af athygli.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Fengu tuttugu tonn í fjórum köstum
„VIÐ byrjuðum á því klukkan sex á
morgnana að bera út blöðin,“ segir
Xing Haiou, kínverskur nuddari
sem ráðinn var á nuddstofu á Ís-
landi fyrir tíu þúsund krónur á mán-
uði og látinn vinna myrkranna á
milli. „Síðan var nuddað allan dag-
inn og hætt í fyrsta lagi klukkan
átta á kvöldin.“
Þá tók við að þrífa nuddstofuna
og þvo þvotta. „Það var líka nuddað
um helgar og þegar kom dauður
tími vorum við látnir bera út auglýs-
ingapóst fyrir stofuna, en það var
einkum á sunnudögum.“ Haiou vann
í eitt og hálft ár á stofunni og voru
honum í byrjun þessa árs dæmd
vangoldin laun að fjárhæð tæpar 5
milljónir, auk dráttarvaxta, í Hér-
aðsdómi Reykjaness.
„Við fórum sáralítið úr húsi, það
var ekki tími til þess, þannig að okk-
ur leið eins og við værum í fangelsi.
Síðan var haft í hótunum við okkur
til að hafa okkur góða.“
Þrír kínverskir nuddarar stof-
unnar leituðu liðsinnis Alþjóðahúss-
ins og varð úr að þeir struku frá
vinnuveitanda sínum að kvöldlagi,
þó ekki án þess að þrífa stofuna
fyrst.
Að sögn Sæunnar Stefánsdóttur,
aðstoðarmanns félagsmálaráðherra,
eru alvarleg brot á rétti innflytjenda
á borð við þau sem Xing Haiou
mátti þola fátíð hér á landi. En hún
segir þó dæmi þess að tilraunir séu
gerðar til að brjóta kjarasamninga.
„Við líðum auðvitað ekki að svona
sé farið með fólk,“ segir hún. „Þegar
við setjum reglur ætlumst við til að
farið sé eftir þeim.“ | 18–19
Fékk 10 þúsund á mánuði
„VIÐ vitum báðir að við höfðum hæfi-
leika til að ná mjög langt sem atvinnu-
menn og að hæfileikum okkar var sóað.
En maður huggar sig samt við að það
vorum ekki við sem sóuðum þeim með
óreglu, leti eða annarri vitleysu. Við lögð-
um okkur alla fram og æfðum meira en
gengur og gerist, en maður þarf alltaf
ákveðna heppni, það er í sambandi við
meiðsli.“
Þetta segir Bjarki Gunnlaugsson þegar
hann gerir upp feril sinn og tvíburabróð-
ur síns, Arnars, í atvinnuknattspyrnu í
samtali við Tímarit Morgunblaðsins í dag.
En bræðurnir dvelja ekki við fortíðina
og eru óðum að hasla sér völl á nýjum
vettvangi, í viðskiptum. Fyrst eftir að at-
vinnumannsferli þeirra lauk voru þeir í
verslunar- og veitingarekstri en hafa nú
alfarið snúið sér að fasteignaviðskiptum
með svonefndum Hanza-hópi. Þeir segja
gildin úr fótboltanum nýtast sér þar vel,
það er agi, metnaður og vinnusemi.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir taka nú
fasteignaviðskipti fram yfir fótbolta.
Taka gildin
úr fótboltan-
um með sér
í viðskiptin
EKKI er ástæða til að hætta við eggjatínslu
úr hreiðrum þetta vorið þó Ísland sé nú á
áhættustigi 2 vegna fuglaflensu. Yfirdýra-
læknir mælir þó með að þeir sem ætli sér að
tína egg sýni aðgæslu og noti einnota
hanska við verkið, greinist fuglaflensa hér-
lendis.
Fuglaflensuveiran getur lifað í eggjum,
en neysla þeirra er þó örugg svo framarlega
sem eggin eru soðin, bökuð eða steikt, en
fuglaflensuveiran drepst á einni mínútu í
70°C heitu vatni, samkvæmt upplýsingum
frá embætti yfirdýralæknis.
Embættið hefur látið rannsaka yfir 200
villta fugla vegna fuglaflensu undanfarið, en
öll sýni hafa reynst neikvæð. Ráðgert er að
rannsaka alls 400 villta fugla í vor frá sex
völdum stöðum á landinu, auk þess sem
sjálfdauðir fuglar verða rannsakaðir.
Egg tínd með
hönskum
Má tína egg | 8
♦♦♦