Morgunblaðið - 25.08.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 229. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
FULLT HÚS MATAR
GRILLAÐ, GRAFIÐ, HEILSTEIKT OG HRÁTT
UPPSKRIFTIR AF ÖLLU TAGI Í DAGLEGU LÍFI
MARÍA MEY
HVAÐ Á AÐ GERA
UM HELGINA?
Í LANGHOLTSKIRKJU
París. AFP, AP. | Jacques Chirac, forseti
Frakklands, tilkynnti í gær að Frakkar
hygðust senda 1.600 hermenn til friðar-
gæslu á vegum Sameinuðu þjóðanna í Líb-
anon, til viðbótar 400 frönskum hermönn-
um sem eru þar fyrir.
Chirac sagði í sjónvarpsávarpi að hann
vonaðist til þess að Frökkum yrði falið að
fara fyrir stækkuðu friðargæsluliði Sam-
einuðu þjóðanna í Líbanon. Um 2.000 frið-
argæsluliðar hafa verið í sunnanverðu Líb-
anon, undir stjórn Frakka, en öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að
fjölga friðargæsluliðunum í 15.000.
Utanríkisráðherrar landa Evrópusam-
bandsins koma saman í Brussel í dag og
skýra þá formlega frá því hvort löndin ætli
að taka þátt í friðargæslunni.
Ítalir hafa þegar boðist til að senda um
3.000 hermenn til Líbanons og jafnvel boð-
ist til að taka við stjórn friðargæsluliðsins.
Spænska stjórnin kvaðst í gær ætla að
leggja til 700–800 hermenn.
Forseti Bandaríkjanna og embættis-
menn í Ísrael fögnuðu yfirlýsingu Chirac.
Forystuhlutverk Chirac vill að Frakkar
fari fyrir friðargæsluliðinu í Líbanon.
Leggja til
alls 2.000
hermenn
Frakkar vilja stjórna
friðargæsluliði SÞ
KRAKKARNIR á Skaganum eru svalir og víla ekki
fyrir sér að fara í útisturtu þó veðrið sé ekki með
hlýjasta móti. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins
átti leið um Langasand á Akranesi í gær rakst hann
á þennan hóp pilta sem var að leika sér við útisturt-
urnar á staðnum.
Morgunblaðið/RAX
Svalir krakkar
GLITNIR hefur gefið út skulda-
bréf að jafnvirði 3 milljarða evra,
eða um 270 milljarða íslenskra
króna, það sem af er þessu ári.
Skuldir bankans með gjalddaga á
næsta ári voru um 2,7 milljarðar
evra, eða 242 milljarðar íslenskra
króna, og hefur bankinn því tryggt
endurfjármögnun fyrir árið 2007.
Undanfarið hefur Glitnir annars
vegar gefið út skuldabréf í Banda-
ríkjunum að andvirði 450 milljóna
dollara, eða um 31 milljarð króna.
Hins vegar gaf bankinn út í júlí og
ágúst sl. skuldabréf að jafnvirði 700
Þessar útgáfur hafa verið til 5–
10 ára á kjörunum 65–80 punkta yf-
ir millibankavöxtum (LIBRO) og
eru á fljótandi vöxtum. Að sögn
Tómasar Kristjánssonar, fram-
kvæmdastjóra Fjármálasviðs
Glitnis, jókst áhugi fjárfesta á
skuldabréfum bankans eftir að
uppgjör fyrir annan ársfjórðung
var birt. Þannig hafi síðasta
skuldabréfaútgáfa til fimm ára ver-
ið á kjörunum 65 punktar yfir milli-
bankavöxtum að kostnaði meðtöld-
um.
Mikilvægur áfangi
Bjarni Ármannsson, forstjóri
Glitnis, segir áfangann til marks
um að sú mikla vinna sem hafi verið
lögð í að upplýsa markaðinn að und-
anförnu hafi skilað sér.
„Það er ljóst að eftir skýrslu Fitch
um miðjan febrúar þornuðu verulega
lánsfjármarkaðir og aðgangur ís-
lenskra banka að lánsfé á alþjóða-
mörkuðum varð erfiðari. Eftir mikla
vinnu við að mennta markaðinn, þar
sem við höfum talað við greinendur,
fjárfesta og fjölmiðla, erum við að
uppskera árangur þeirrar vinnu.
Þessir aðilar sjá nú á góðri rekstrar-
afkomu bankanna á öðrum ársfjórð-
ungi að íslensku bankarnir eru sterk
fyrirtæki sem eru í stakk búnir til að
standa undir sínum lánaskuldbind-
ingum,“ segir Bjarni Ármannsson.
milljóna evra, sem samsvarar um
63 milljörðum króna, til ýmissa
fjárfesta í Bandaríkjunum, Evrópu
og Asíu.
Glitnir hefur tryggt endur-
fjármögnun fyrir árið 2007
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
»Skuldir Glitnis sem eru á gjald-daga árið 2007 nema samtals
242 milljörðum króna.
»Glitnir hefur gefið út skulda-bréf fyrir 270 milljarða króna
það sem af er ári 2006.
»Lánskjör hafa batnað eftir aðuppgjör fyrir annan ársfjórð-
ung var birt í byrjun ágúst.
Í HNOTSKURN
STJÓRN Árvakurs hf., útgáfu-
félags Morgunblaðsins, stefnir að
því að innan þriggja ára verði félag-
ið alhliða fjölmiðla- og miðlunarfyr-
irtæki sem hægt verði að skrá í
kauphöll, að því er fram kemur í til-
kynningu sem send var út eftir
stjórnarfund félagsins í gærmorg-
un. Þar segir einnig að félagið hafi
sett sér markmið um uppbyggingu
og sókn á ný svið miðlunar.
Á fundinum var einnig gengið frá
ráðningu Einars Sigurðssonar í
stöðu forstjóra Árvakurs og
fundaði nýr forstjóri með starfs-
ingshlut í Ári og degi ehf. sem er
útgáfufélag Blaðsins.
Einar hefur gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra viðskiptaþróunar
hjá IMG en hann var áður fram-
kvæmdastjóri stefnumótunar- og
stjórnunarsviðs Flugleiða og FL
Group. Hann var fyrsti útvarps-
stjóri Íslenska útvarpsfélagsins hf.
og starfaði áður sem fréttamaður
hjá Ríkisútvarpinu og þar áður sem
blaðamaður og fréttastjóri á Al-
þýðublaðinu.
Einar segir að byggt verði á því
sem félagið hafi í höndunum í dag
og þar sé Morgunblaðið lang-
sterkasta vörumerkið á íslenskum
fjölmiðlamarkaði. Með sama hætti
sé mbl.is að verða sterkasta vöru-
merkið á netmarkaðnum og að vef-
urinn verði efldur enn frekar á
næstunni með því að bjóða upp á
fleiri þjónustuþætti fyrir notendur
vefjarins.
Einar segir að til standi að
styrkja stöðu Árvakurs á fríblaða-
markaði með útgáfu Blaðsins en
Árvakur á sem kunnugt er helm-
mönnum í gær.
Einar segir í
samtali við
Morgunblaðið að
sér finnist nýja
starfið spenn-
andi og
skemmtilegt við-
fangsefni.
Helstu verk-
efnin framundan séu að treysta
rekstur Morgunblaðsins. Markmið
félagsins sé svo að auka við rekst-
urinn og verið sé að móta sýn um
það hvert félagið vilji stefna.
Stjórn Árvakurs ræður Einar Sigurðsson forstjóra og kynnir framtíðarmarkmið
Sækja á ný svið miðlunar
Einar Sigurðsson
Ætlar sér stærri hlut | 4
Peking. AFP. | Stjórnvöld í Kína hafa
skorið upp herör gegn nektarsýn-
ingum og öðru slíku stripli við jarð-
arfarir en sá siður hefur heldur ver-
ið að sækja í sig veðrið að
undanförnu. Til að leggja áherslu á
alvöru málsins hafa þau látið hand-
taka fimm manns fyrir þessar sakir.
Ástæðan fyrir þessum undarlegu
uppákomum er sú rótgróna skoðun,
að fjölmenni við jarðarför sé til
marks um mikla virðingu fyrir hin-
um látna og fjölskyldu hans. Vegna
þess er ýmsum brögðum beitt við að
fá fólk til að mæta, jafnvel nekt-
arsýningum.
Stjórnvöld ákváðu að grípa í
taumana eftir að ríkissjónvarpið
sýndi „klúrar myndir“ af útför í Ji-
angsu-héraði en hana sóttu um 200
manns, þar á meðal börn. „Þegar
hvað hæst stóð í stönginni, fóru
tvær konur upp á svið þar sem þær
tóku til við að tína af sér spjarirnar.
Reyndu meira að segja að fá aðra til
þess líka,“ sagði í fréttinni.
Banna stripl
við útfarir
ÞAÐ munar allt að 56% á ársiðgjaldi skut-
bíls af gerðinni Wolksvagen Golf í könnun
sem verðlagseftirlit ASÍ gerði nýlega hjá
sex tryggingafyrirtækjum og birti i gær.
Fengin voru tilboð í lögboðnar tryggingar
og framrúðutryggingu og hljóðaði tilboðið
upp á rúmlega 51.000 krónur hjá Elísabetu
þar sem það var lægst en um 80.000 krón-
ur hjá Sjóvá þar sem það var hæst. Fram-
rúðutrygging bætir brot á framrúðu bif-
reiða ásamt ísetningarkostnaði en VÍS er
eina félagið þar sem tryggingin nær yfir
allar rúður bílsins. Henný Hinz, verkefn-
isstjóri hjá verðlagseftirliti ASÍ, vekur at-
hygli á að nauðsynlegt sé fyrir neytendur
að bera ekki einungis saman það iðgjald
sem greiða þarf í upphafi heldur taki einn-
ig með í reikninginn þann kostnað sem við
bætist í formi iðgjaldsauka.
29 þúsund kr.
munur á
ársiðgjaldi
Munaði allt að 56% | 35
♦♦♦