Morgunblaðið - 25.08.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2006 23
NÚ FER senn að líða að nýju starfs-
ári Íslensku óperunnar og er því við
hæfi að huga að þeim söngvurum
sem hefja þar upp raust sína í vetur.
Fyrsta verkefnið sem fer á fjalirnar í
haust er Brottnámið úr kvenna-
búrinu eftir Mozart í leikstjórn Ja-
mie Hayes frá Bretlandi. Hljóm-
sveitarstjóri er Kurt Kopecky.
Sópransöngkonan Angela Gilbert,
frá Höfðaborg í Suður-Afríku, verð-
ur þarna í einu aðalhlutverkinu, en
hún hefur komið fram í virtustu óp-
eruhúsum heims, meðal annars í
Metropolitan í New York. Þetta
verður í fyrsta sinn sem hún syngur
á Íslandi.
Katharina Th. Guðmundsson,
sópran, sem er búsett í Vínarborg,
syngur hlutverk í sýningunni og
verður það jafnframt hennar fyrsta
hlutverk í Íslensku óperunni.
Þá munu þeir Bjarni Thor Krist-
insson, bassi, og tenórinn Snorri Wi-
um, sem báðir hafa sungið með Óp-
erunni, vera með hlutverk þarna.
Með talhlutverk fer svo leikarinn
Pálmi Gestsson, og er það í fyrsta
sinn sem hann starfar í Íslensku óp-
erunni.
Aftur í sama hlutverki
Tenórinn Finnur Bjarnason er
búsettur í Berlín og hefur sungið
víða í Evrópu og Bandaríkjunum.
Hann fer með eitt aðalhlutverkið í
verkinu en hann tók þátt í uppfærslu
á sama verki í Berlín á dögunum.
„Ég reikna með að uppfærslan
hérna verði eitthvað frábrugðin
þeirri í Berlín,“ segir Finnur og hlær
við en útfærsla spænska leikstjór-
ans, Calixto Bieto, á verkinu í Berlín
var gífurlega umdeild og olli miklu
fjaðrafoki í óperuheiminum. „Það er
mjög mikið af kynlífi og eiturlyfjum í
hans uppfærslum,“ bætir Finnur við
og segist viss um að leikstjórinn Ja-
mie Hayes sé ekki alveg eins svaða-
legur.
Í Brottnáminu úr kvennabúrinu
fer Finnur með hlutverk spænska
aðalsmannsins Belmonte sem fer í
ferðalag til að frelsa ástkonu sína,
Konstanze, úr tyrknesku kvenna-
búri. „Þetta er eitt af aðalsmanna/
prinsa-hlutverkum Mozarts. Róm-
antíski og ástfangni tenórinn. Bel-
monte fær mjög fallega tónlist í
sýningunni en hún hefur þó ekki
mikil áhrif á söguna. Það eru aðrar
aríur sem gera það. Tónlist Bel-
monte fjallar meira um hversu ást-
fanginn hann er og hvað hann sakn-
ar Konstanze sinnar mikið.“
Ágúst Ólafsson fastráðinn
Þrjú og hálft síðasta ár hefur
Finnur starfað við Komische Oper í
Berlín og hefur hann haft í nógu að
snúast þar. „Ég var á föstum samn-
ingi og svo var ég með gestasamn-
inga hér og þar. Það var eiginlega
tvöföld vinna því ég vann alltaf upp
fjarveruna þegar ég kom aftur til
Berlínar. Stundum var ég að syngja
sex stór hlutverk í sama mán-
uðinum, ýmist í gömlum eða nýjum
uppfærslum.“
Hlutverk Belmonte er þriðja hlut-
verkið sem Finnur syngur hjá Ís-
lensku óperunni en hann hefur áður
tekið þar þátt í uppfærslum á Lúk-
retía svívirt eftir Britten og Töfra-
flautunni eftir Mozart.
Þess má geta að frá og með næstu
áramótum verður Ágúst Ólafsson,
barítón, fastráðinn hjá Íslensku óp-
erunni til tveggja ára en engar fast-
ráðningar hafa verið gerðar þar síð-
ustu tvö árin.
Tónlist | Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart fer á fjalir Íslensku óperunnar í haust
Fjaðrafok Úr uppfærslu Calixto Bieto á óperunni Brottnámið úr kvennabúrinu. Sýningin olli miklu fjaðrafoki en
hún þótti afar groddaleg. Finnur sést hér í hlutverki Belmonte í svörtum kjól með hárið sleikt aftur.
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Angela Gilbert sópran
fer með eitt aðal-
hlutverkið í Brottnám-
inu.
Árni Heimir Ingólfsson
tónlistarfræðingur
fræðir nemendur um
verk Mozarts.
Sópransöngkonan Angela Gilbert
frá Höfðaborg syngur í Óperunni
Ekki eins
hneykslan-
legt brottnám
Finnur Bjarnason tenór
fer aftur í hlutverk Bel-
monte í Íslensku óp-
erunni.
Mozarts í óperunni en óperan ger-
ist í Tyrklandi á 17. öld. Nám-
skeiðið fer af stað í byrjun október
og verða fyrstu þrjú kvöld nám-
skeiðsins í húsnæði Endurmennt-
unar við Dunhaga. Á fjórða og síð-
asta kvöldinu verður farið á sjálfa
sýninguna í Íslensku óperunni við
Ingólfsstræti og að henni lokinni
gefst færi á stuttu spjalli við nokkra
af aðstandendum sýningarinnar.
Tónlistarfræðingurinn Árni Heimir
Ingólfsson kennir námskeiðið.
Í TENGSLUM við sýninguna á
Brottnáminu úr kvennabúrinu
stendur Vinafélag Íslensku óp-
erunnar og Endurmenntun Háskóla
Íslands fyrir námskeiði um verkið
og höfund þess, Wolfgang Amadeus
Mozart, en í ár er haldið upp á 250
ára afmæli tónskáldsins. Á nám-
skeiðinu verður óperan og efni
hennar kynnt, helstu einkenni tón-
listarinnar rædd og hún skoðuð
með tóndæmum. Auk þess verður
fjallað um tyrknesk áhrif í tónlist
Námskeið um Mozart og
Brottnámið úr kvennabúrinu
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar Morgun-
blaðið eftir að ráða fólk á öllum aldri í blaðburð víða á
höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Vinsamlegast hafið samband í síma 569 1440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
Vel launuð líkamsrækt
− fyrir fólk á öllum aldri
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA