Morgunblaðið - 25.08.2006, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2006 47
✝ Helga Egils-dóttir fæddist í
Haukshúsum á
Álftanesi 25. októ-
ber 1916. Hún lést
á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 19. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Egill Jónsson
sjómaður, f. í Hafn-
arfirði 20.9. 1889,
fórst með enska
togaranum Robert-
son á Halamiðum
8.2. 1925, og kona hans Þjóð-
björg Þórðardóttir, f. á Stóru
Borg í Grímsnesi 18.11. 1891, d.
27.1. 1984. Þau áttu saman auk
Helgu, sem var elst: Stefán, f.
1918, Aðalstein, f. 1919, d. 1994,
Jón, f. 1921, Guðnýju, f. 1922,
Egil, f. 1925. Síðari maður Þjóð-
bjargar var Jón Jónsson, f. 1900,
d. 1973, þau áttu saman synina
Guðjón, f. 1930, d. 1994, og Jó-
hann Gunnar, f. 1933, d. 1982.
Helga giftist, 4. nóvember
1939, Jóni Bjarnmundi Pálssyni
húsasmíðameistara, f. 4.4. 1909,
d. 20.2.2002. Foreldrar hans voru
Páll Jónsson, bóndi og Jónína G.
leiðslutæknifræðingur, sonur
þeirra, Gissur Atli, f. 1995. Sam-
býlismaður Svandísar er Magnús
Sæmundsson, skólastjóri Brúa-
rásskóla, og eiga þau saman son-
inn Gylfa Arinbjörn, f. 2006. d)
Sigurður Kristinn C.sc. verk-
fræðingur, f. 1974, býr í Kópa-
vogi, kvæntur Jóhönnu Hjart-
ardóttur kennara, f. 1974, synir
þeirra, Sebastían, f. 2001, og
Hjörtur Viðar, f. 2003. 2) Emil
Páll Jónsson vaktmaður, f. 10.3.
1949, býr í Keflavík, fv. eig-
inkona, Svanhildur G. Benón-
ýsdóttir, f. 1951, dóttir þeirra,
Helga Katrín, f. 1984, fóst-
ursonur, Halldór Grétar Guð-
mundsson framkvæmdastjóri, f.
1969, maki Inga Rut Ingv-
arsdóttir, f. 1973, börn þeirra,
Aníta Ósk, f. 1994, Aron Ingi, f.
1996 og Alexander Máni, f. 2003.
Helga kynntist Jóni eiginmanni
sínum þegar hún var í kaup-
mennsku að Árbæ í Ölfusi en
hann var þar og í Ölfusinu við
kaupmennsku og smíðar á sumr-
in. Þau giftust 4. nóvember 1939
og stofnuðu heimili í Hafnarfirði
en fluttu til Keflavíkur 1940 og
bjuggu lengst af á Vesturbraut 5.
Helga hefur dvalið á dvalarheim-
ilinu Hlévangi í Keflavík sl. 2 ár.
Útför Helgu verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Ásmundsdóttir, V-
Skaftafellssýslu.
Synir Helgu og Jóns
eru: 1) Egill bygg-
ingafulltrúi í Garða-
bæ, f. 4.3. 1940,
kvæntur Ölmu V.
Sverrisdóttur lög-
fræðingi, f. 18.1.
1943, þau búa í
Garðabæ; börn
þeirra eru: a) Ágúst
Sverrir Ph.D stærð-
fræðingur, f. 1966,
kvæntur Soffíu G.
Jónasdóttur barna-
lækni, f. 1966, börn þeirra, Egill
Almar, f. 1987, Kjartan Logi, f.
1990, Stefán Snær, f. 1993, Gunn-
ar Jökull, f. 1996, Alma Hildur, f.
2000 og Ágúst Bjarki, f. 2001,
þau búa í Kaliforníu. b) Jón Helgi
verkfræðingur, f. 1967, fv. eig-
inkona hans, Ingibjörg Arn-
ardóttir, f. 1967, börn þeirra,
Sverrir Eðvald, f. 1992 og Kristín
Helga, f. 2000. Sambýliskona
Jóns Helga er Helga Leifsdóttir
og eiga þau saman soninn Tómas
Orra, f. 2006. c) Svandís mynd-
listakona, f. 1972, búsett í Brúar-
ási í Jökuldal, fv. sambýlismaður
Sigurður G. Gissurarson fram-
Hún Helga amma mín andaðist í
Keflavík aðfaranótt laugardagsins
19. ágúst. Hvað varð þess valdandi
að hún náði sér ekki á strik eftir
að hafa brotnað tveimur mánuðum
áður er erfitt að skilja. Amma
hafði sterkan vilja og var þrjósk í
veikindum sínum núna og ekki
reyndist auðvelt að segja henni til
í þetta sinn. Hún hafði oft sigrast
á meiri erfiðleikum áður og meðal
annars sigrast á hvítblæði fyrir
fáum árum og ekki var hún að
brjóta sig í fyrsta sinn á gamals-
aldri. Ennþá var hugsunin alveg
skýr og amma vel ferðafær í annan
tíma. Ég gerði alltaf ráð fyrir því
að yngstu börnin okkar fengju að
kynnast henni vel, eins og þau
eldri hafa haft tækifæri til, og
læra jafnvel eitthvað um löngu lið-
inn tíma af henni. Helga amma átti
heima í Hafnarfirði þegar hún var
ung stúlka og núna leitaði hug-
urinn hennar þangað því á þessum
síðustu vikum kom í ljós hversu
sterkar minningar hún átti úr
æsku. Hörfaði hún núna undir lok-
in til æskuminninga um föður sinn
þegar ekkert annað skjól var að
finna, en hann fórst þegar hún var
á níunda ári í sjóskaða á enskum
togara.
Eins og svo margt samtímafólk
hennar braust hún úr sárri fátækt.
Hún hafði ætlað sér í framhalds-
nám, enda hvött til þess af kenn-
ara sínum, en frestaði því til að
geta hjálpað til á heimili móður
sinnar. Af móður sinni lærði hún
saumaskap og hannyrðir og útbjó
hún iðulega fallega hluti af litlum
efnum. Síðar flutti hún ásamt Jóni
afa til Keflavíkur og eignuðust þau
þar heimili og stóra fjölskyldu. Í
Keflavík var atvinnu að hafa fyrir
afa á kreppuárunum fyrir stríð og
því var haldið þangað. Amma
saknaði þess þó að hafa ekki verið
lengur í skóla og mikið af bókum
var til á heimilinu sem bar þess
merki hversu áhugasöm þau voru
um menntun og menningu, enda
fylgdist hún með og passaði upp á
lærdóm drengja sinna.
Ég man vel hversu amma hafði
alltaf sérstaka unun af ræktun og
hvernig hún sinnti garðinum á
Vesturbraut af stakri list meðan
afi sinnti húsinu og smíðum. Hún
var sérlega lagin við saum og
prjónaskap og eiga öll barnabarna-
börnin útsaumaðar sængur og flík-
ur eftir hana en sjálfur gekk ég
meðal annars í lopapeysu eftir
hana þegar ég var strákur í Kefla-
vík. Hún sinnti matargerð, útbjó
sultu og saft á hverju ári, las um
fjallagrös og meðhöndlun þeirra,
tók slátur og undirbjó matarbirgð-
ir fyrir veturinn. Enda var það
þannig að í hvert sinn sem við
komum í heimsókn var bakað eða
eldað fyrir okkur og voru kleinur
og nýbakaðar pönnukökur uppá-
hald allra. Þá var setið við eldhús-
borðið eða fram í stofu og rætt um
landsmálin og fjölskylduna.
Synir mínir og dóttir fengu öll
að kynnast langömmu sinni og
munum við öll sakna hennar og
varðveita vel allar þær góðu minn-
ingar sem við eigum um hana.
Ágúst Sverrir Egilsson.
Minningar um hana ömmu mína
fara með mig til Vesturbrautar
þar sem húsið ilmar af nýbökuðum
pönnukökum sem hún bakar af
mikilli snilld. Eftir að hafa hámað í
mig þessar ljúffengu pönnukökur
erum við komin með spil í hend-
urnar og spilum olsen olsen. Þetta
gátum við gert tímunum saman.
Jón afi var hins vegar ófáanlegur
til að spila með okkur, heldur
vaggaði um gólfið með hendur fyr-
ir aftan bak og leysti heimsins gát-
ur. Amma reyndi að fá hann til að
spila með okkur, en heimsins gát-
ur þoldu enga bið. Ef fleiri gesti
bar að garði var amma fljót að
draga fram dýrindis kræsingar inn
í stofu þannig að borðið svignaði
undan öllum veitingunum. Amma
mátti hins vegar sjaldan vera að
því að setjast með okkur við borð-
ið, enda fullt verk að galdra fram
allar þessar kræsingar.
Elsku amma mín, alltaf leið
manni vel í kringum þig og á þess-
ari stundu er ég þakklátur fyrir
allar þær góðu stundir sem ég átti
með þér og þeirra á ég eftir að
sakna. Það er sárt að hugsa til
þess að þetta séu minningar einar,
en ég veit að þér líður nú vel með
honum afa sem þú hefur saknað
mikið.
Við Jóhanna og strákarnir eig-
um eftir að sakna þín,
Sigurður Kristinn.
Helga amma er nú fallin frá.
Síðast þegar við kvöddumst sagði
ég: „Já, svo hittumst við í skírn-
inni á miðvikudaginn í næstu
viku,“ amma, sem síðustu ár vildi
ekki lofa morgundeginum, tók
undir það og var svo komin út í bíl,
heimleiðis. Heimleiðis segi ég
þrátt fyrir að í mínum huga hafi
heima hjá ömmu verið á Vestur-
brautinni og ekki á Hlévangi þar
sem hún dvaldi hin síðari ár.
Amma var framúrskarandi hús-
móðir. Heimili þeirra afa var alltaf
óaðfinnanlegt, hreint og fínt, hún
bakaði heimsins bestu pönnsur,
jólakökur og kleinur. Hún prjónaði
hosur og peysur og heklaði dúllur
af mikilli snilld. Hún barðist hetju-
lega við saltrokið fyrir garðinn,
kom upp afleggjurum og sáði fyrir
morgunfrúm, riddarasporum og
stjúpum. Allt þetta og miklu meira
gerði hana í mínum huga að feiki-
lega duglegri konu. Allt þetta og
deila því með öðrum gerði hana að
afar góðri konu. Ömmu sem mér
þótti ákaflega vænt um. Ömmu
sem þótti mikið vænt um fólkið
sitt, syni sína, barnabörnin og
barnabarnabörnin. Hún fylgdist
með ferðum okkar af áhuga og
fagnaði fólki sem tengdist okkur.
Hefði viljað hafa okkur sem búum
ekki í Keflavík, miklu nær sér.
Ég ætla að kveðja ömmu með
þessu broti úr kvæði eftir Þorstein
Erlingsson, í hjarta mínu er ég
viss um að hún var sátt við að fara.
Þegar vetrar þokan grá
þig vill fjötra inni:
svífðu burt og sestu hjá
sumargleði þinni.
Þar var löngum lokið skjótt
lífsins öllum mæðum.
Manstu, hvað þær flýðu fljótt
fyrir hennar kvæðum.
Taktu öruggt hennar hönd
hún mun aftur finna
þau hin sælu sólskinslönd,
sumardrauma þinna.
Guð blessi minningu þína.
Svandís Egilsdóttir.
Í dag, 25. ágúst, er til grafar
borin elskuleg amma mín Helga
Egilsdóttir. Á þessari stundu
sækja að margar minningar enda
ófáar ljúfar heimsóknirnar í æsku
til ömmu og afa. Ofan af heiði í
Keflavík úr nýju byggðinni, gekk
lítill pjakkur gjarnan í gegnum
bæinn að heimili ömmu og afa á
Hafnargötunni, og síðan lá leið að
útstöðinni í Vestri, til ömmu og afa
á Vesturbrautinni, Helgu ömmu og
Jóns afa. Sjaldan brást að skellt
væri upp pönnukökuveislu sem
gladdi barnshjartað óspart sem og
þægilegheit Helgu ömmu, hins
ljúfa hlustanda, og afa sem ákafs
áhugamanns um menn og málefni.
Heimili ömmu og afa á Vestur-
brautinni var einn af vitum æsku
minnar, viti í skilningi þess að vísa
veginn og leiðbeina.
Frá því að ég man eftir mér var
amma alltaf í góðum félagsskap
með afa. Í minningunni voru
amma og afi þannig ætíð sem ein
samhent heild. Fyrir tæpri viku
heimsóttum við fjölskyldan ömmu.
Þegar ég kvaddi ömmu þann dag
þá reisti hún sig upp með herkjum
og kvaddi með því að hvísla því að
okkur að við skyldum taka hana
með sér. Á þeim tíma trúi ég því
að amma hafi vitað og viljað fara
til afa og ég tók með mér minn-
inguna um góða konu sem ég er
þakklátur fyrir að hafa átt sem
ömmu.
Jón Helgi Egilsson.
Helga Egilsdóttir
Elskulegur frændi,
HAFLIÐI ÞÓR OLSEN,
Hátúni 10,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 10. ágúst.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hulda Sigurðardóttir, Guðmundur Ágúst Pétursson
og fjölskylda.
Ástkær eiginmaður, sonur og bróðir,
PAUL NABIL BUSTANY,
andaðist í New York laugardaginn 19. ágúst.
Asu Okyay,
Laufey Vilhjálmsdóttir Bustany,
Samir Bustany,
Christine Bustany.
Frændi minn og vinur okkar,
JÓN SANDHOLT JÓNSSON,
Álfaskeiði 64,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 19. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Alda Jónsdóttir,
Ingibjörg Stefánsdóttir,
Sigurjón Stefánsson,
Guðbjörg Stefánsdóttir,
Guðný Stefánsdóttir.
Maðurinn minn og faðir okkar,
PÉTUR MAACK ÞORSTEINSSON,
Kópavogsbraut 1a,
áður Urðarbraut 5,
Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi miðviku-
daginn 23. ágúst.
Agla Bjarnadóttir,
Pétur Maack Pétursson, Bjarndís Markúsdóttir,
Bjarni Pétursson, Sólveig Valdimarsdóttir,
Þorsteinn Pétursson, Ingibjörg Hjaltadóttir,
Egill Pétursson, Guðbjörg Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS JÓNSSON
(Maggi frá Hólmi),
Jökulgrunni 6,
Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn
16. ágúst, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánu-
daginn 28. ágúst kl. 13.00.
Hrefna Magnúsdóttir, Jón Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BIRNA FJÓLA VALDIMARSDÓTTIR,
Rauðagerði 35,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn
28. ágúst og hefst athöfnin kl. 13.00.
Sigrún Halldórsdóttir, Jóhann Hjaltason,
Björn Davíð Kristjánsson,
Alfreð Halldórsson, Elín Sigurðardóttir,
Valdimar Halldórsson, Sigríður S. Heiðarsdóttir
og barnabörn.