Morgunblaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
En við getum byrjað á að reyna að stilla okkur inn á sömu kaffitegundina, strákar.
VEÐUR
!"
#$%
& '
( &
) *
+
, $
-
.
)+
/0
/
1
2
0
+ 0
(+
3/
#
4
&56
7 2
"&
8
("9:;
!
!
"
#
$
!%
&
(
""
9 (
!"
"
#
$"
%$
<0
< <0
< <0
#"! &
'
()*$+
: " +
6
,$
! -
"$ ! $
" *
-
'
.
4
0
$*
$$
-/
0"(
.1 !
$2*
'
-
*"$ .
3 +
/
.
9
$
2"(
*
$ '$-
!*
.3
-
4*$
'
.
5/ $66
$"7
$
*$&
'
1%23=2
=(<3>?@
(A,-@<3>?@
*3B.A',@
2-
2-
. . . . . . . . -
-
-
-
2-
-
2-
-
-
-
-
-
-
-
Ákvörðun bæjarstjórnarmeiri-hlutans í Kópavogi um að
greiða 30 þúsund krónur á mánuði
vegna barna frá því að fæðingar-
orlofi lýkur og fram að tveggja ára
aldri og skapa þar með jafnræði á
milli þeirra foreldra, sem hafa börn
sín hjá dagmömmum og hinna, sem
vilja annast um þau heima við hefur
vakið mikla athygli.
Í samtali viðMorgunblaðið
í gær segir Jón-
mundur Guð-
marsson, bæj-
arstjóri á
Seltjarnarnesi,
að sér finnist um
áhugaverðan
kost að ræða en
bætir því við að
annar kostur sem
til umræðu hafi verið sé sá að lækka
inntökualdur barna á leikskólum
niður í 12 mánuði í stað 24 mánaða.
Sjálfsagt er að ræða alla kosti íþessum efnum og bjóða upp á
sem fjölbreyttast val. Og í því sam-
bandi er auðvitað rétt, sem Júlíus
Vífill Ingvarsson, formaður
menntaráðs Reykjavíkurborgar
segir í samtali við Morgunblaðið í
gær, að áherzlu beri að leggja á val
og frelsi í þessum efnum.
Hins vegar er ástæða til að undir-strika, að rannsóknir síðari
tíma undirstrika mikilvægi þess að
börn séu á fyrstu árum sínum í sem
mestum tengslum við foreldra sína.
Það hefur líka komið í ljós, aðrofni tengsl á milli barns og
foreldra á fyrstu mánuðum ævinn-
ar getur það haft margvíslegar af-
leiðingar fyrir barnið síðar á æv-
inni.
Aðferð Kópavogsbæjar kemurrækilega til móts við þau sjón-
armið og er ekki sízt áhugaverð af
þeim sökum. Vonandi fara fram
umræður innan sveitarstjórna bæði
á höfuðborgarsvæðinu og annars
staðar um þessi mál, sem hugs-
anlega geta leitt til frekari ný-
breytni á þessu sviði.
STAKSTEINAR
Jónmundur
Guðmarsson
Heimili og skóli
SIGMUND
Lagastofnun
Málstofa
Mánudaginn 11. september Lögberg, stofa 101
kl. 12:15
Dr. Viktoras Justickis
prófessor í refsirétti og afbrotafræði
við Mykolas Romeris háskóla og Kaunas
Vytautas háskóla í Litháen
Fjallað verður um það hvernig frjálst flæði á vörum, fjármagni
og vinnuafli innan Evrópusambandsins hefur leitt til þess
að skipulögð og alþjóðleg glæpastarfsemi hefur aukist
gríðarlega. Má þar t.d. nefna fíkniefnasmygl, mansal, vændi
o.fl. Af þessum sökum hefur verið talið nauðsynlegt að
Evrópusambandsríkin grípi til sameiginlegra samræmdra
aðgerða á alþjóðavettvangi.
Fundarstjóri
Ragnheiður Bragadóttir
prófessor við lagadeild HÍ
Allir velkomnir Nánari upplýsingar á
www.lagadeild.hi.is
Is the European integration
in criminal safety matters
really possible?
Málefni
Schengen
til umræðu
EVRÓPUNEFND forsætisráðherra
og Háskólinn á Bifröst stóðu í í síð-
ustu viku fyrir ráðstefnu um EES og
Schengen-samstarfið. Meðal ræðu-
manna voru Georgios Kritikos frá
skrifstofu ráðherraráðs ESB, Björn
Bjarnason, dómsmálaráðherra, Jean
Claude Piris, yfirmaður lagasviðs
ráðherraráðs ESB og Kristrún Krist-
insdóttir, skrifstofustjóri og fulltrúi
dómsmálaráðuneytis í fastanefndum
Schengen, sem hélt erindi um reynslu
Íslands af framkvæmd Schengen.
Kristrún segir afar mikilvægt fyrir
Íslendinga að eiga sæti í samsettu
nefndinni sem starfar í Brussel, en
henni var komið á fót árið 1999 þegar
Evrópusambandið tók yfir Schengen.
„Við höfum virkilega áhrif á það hvað
stendur í textanum á endanum en
þegar búið er að samþykkja textann
erum við líka bundinn af honum,“
sagði Kristrún og bætti við: „Niður-
staða mín var sú að Schengen sam-
starfið gengi mjög vel fyrir sig og
samsetta nefndin er lykillinn að því að
samstarfið getið gengið svo vel.“
Safnað fyrir
gervilunga
HUNDRAÐ krónur af hverjum að-
göngumiða að heilsusýningunni 3L-
expo, sem fram fer í Egilshöll um
helgina, renna til minningarsjóðsins Í
hjartastað sem safnar nú fyrir kaup-
um á gervilunga fyrir börn. Þá renna
100 kr. af hverjum seldum fermetra á
sýningarsvæðinu einnig til söfnunar-
innar.
Lungað mun koma í góðar þarfir á
hjartaskurðdeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss.
Í fréttatilkynningu frá Í hjartastað
kemur fram að 1% af öllum börnum á
Íslandi fæðist með hjartagalla. Hing-
að til hefur þurft að fara með börnin í
aðgerðir erlendis, en með tilkomu
gervilungans verður þess ekki þörf
lengur. Forsvarsmenn Í hjartastað
vonast til að safna um 4–5 milljónum á
sýningunni, m.a. með sölu blikkandi
hjarta í bás á sýningunni, en gervi-
hjartað kostar um 20 milljónir króna.
MJÓLKA mun á næstunni breyta merkingum á gler-
krukkum með fetaosti til að bregðast við óskum um að
aðgreina framleiðslu fyrirtækisins frá vörum annarra
framleiðenda.
Í tilkynningu frá Mjólku er haft eftir Ólafi M. Magn-
ússyni framkvæmdastjóra að það hafi verið talin
ákveðin hætta á ruglingi, og það sé í þágu neytenda að
ekki fari á milli mála hvenær þeir kaupa fetaost frá
Mjólku og hvenær þeir kaupa ost keppinautarins.
Segir þar ennfremur að viðtökur neytenda við feta-
ostinum hafi verið mjög góðar þá níu mánuði sem hann
hafi verið á markaðinum. Á fyrstu sex mánuðunum
hafi fyrirtækið náð tveggja ára sölumarkmiðum, og á
síðustu þremur mánuðum hafi salan haldið áfram að
aukast.
Fetaostur Nýjar umbúðir (t.v.) þykja ekki eins líkar umbúð-
um samkeppnisaðila Mjólku og gömlu umbúðirnar (t.h.).
Mjólka breytir umbúðum fyrir fetaost
♦♦♦