Morgunblaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 70
70 SUNNUDAGUR 10. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning Frönskunámskeið hefjast 18. september Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Taltímar og einkatímar. Viðskiptafranska og lagafranska. Námskeið fyrir börn. Kennum í fyrirtækjum. Tryggvagata 8, 101 Reykjavík, fax 562 3820. Veffang: www.af.is Netfang: alliance@af.is Innritun í síma 552 3870 til 16. sept.  © DARGAUD FRÁBÆRT GROIN! GROIN! OG SVO... ÞENNAN KANN ÉG EKKI GROIN ÉG VERÐ AÐ FARA GROIN HÚN ER HEIT !?! NÚ ER NÓG KOMIÐ ADDA! HANN ER ÁGÆTUR ÞESSI GUNNI EN EF ÞÚ SEGIR SVONA GRÓF ORÐ AFTUR ÞÁ.... ÞETTA GENGUR EKKI LENGUR AAAAHHHHHH!! HVAÐ ERTU AÐ GERA? HRINGJA Í PABBA HANS! GOTT KVÖLD HERRA. ÉG ER PABBI HENNAR ÖDDU. ÞAÐ ER KOMIÐ UPP SVOLÍTIÐ VANDAMÁL EFTIR AÐ GUNNI KOM Í HEIMSÓKN TIL OKKAR ÞETTA ER ALVEG ÓTRÚLEGT! ÉG ÆTLAÐI EINMITT AÐ HRINGJA Í ÞIG OG SEGJA ÞAÐ SAMA BORÐAÐU MATINN ÞINN NEI, ÉG ER HÆTTUR AÐ BORÐA SVÍNAKJÖT Kalvin & Hobbes MIG DREYMDI EKKERT SMÁ SKRÝTINN DRAUM Í NÓTT! ÉG VAR AÐ SLÁST VIÐ BLÓÐÞYRSTAN KÖTT HVAÐ HELDURÐU AÐ DRAUMURINN ÞÝÐI? HANN ÞÝÐIR AÐ ÞÚ KEMUR TIL MEÐ AÐ SOFA Á GÓLFINU Í FRAMTÍÐINNI, FÁVITI! Kalvin & Hobbes AF HVERJU MÁ ÉG EKKI VAKA LENGUR? ÞIÐ MEGIÐ ÞAÐ! ÞETTA ER EKKI SANNGJARNT! LÍFIÐ ER EKKI SANNGJARNT KALVIN ÉG VEIT. EN AF HVERJU ER ÞAÐ ALDREI ÓSANNGJARNT MÉR Í HAG? Kalvin & Hobbes GEIMKÖNNUÐURINN, SPIFF, ER Á FLÓTTA UNDAN RISAVAXINNI GEIMVERU... HANN SÉR GEIMSKIPIÐ SITT OG HRAÐAR SÉR Í ÁTTINA TIL FRELSIS EN ÞAÐ ER UM SEINAN. GEIMVERAN HEFUR NÁÐ HONUM. ÞETTA ER BÚIÐ! ALLT BÚIÐ! ÉG VAR BÚIN AÐ SEGJA ÞÉR ÞAÐ ÞRISVAR AÐ FRÍ- MÍNÚTURNAR ERU BÚNAR Svínið mitt Rannsóknastofa í vinnu-vernd (RIV) stendur fyr-ir fyrirlestraröð annanhvern mánudag í haust. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir er stjórnarformaður RIV: „Alls verða fluttir sex fyrirlestrar sem byggj- ast á margvíslegum íslenskum rannsóknarniðurstöðum sem tengj- ast vinnuumhverfis- og vinnumark- aðsmálum,“ segir Guðbjörg Linda. „Fyrirlestrarnir standa öllum opnir og kostar ekkert að sækja þá. Fyr- irlestrarnir verða haldnir í stofu 102 í Lögbergi, húsnæði Háskóla Íslands og hefjast kl. 12.20 og áætl- að að hver þeirra vari í klukku- stund.“ Næstkomandi mánudag mun Sig- urður Thorlacius, dósent í lækn- isfræði við Háskóla Íslands, halda fyrsta fyrirlestur haustsins, sem ber yfirskriftina Er ekki pláss fyrir fólk með skerta færni á íslenskum vinnumarkaði: „Í erindi sínu mun Sigurður einkum koma inn á þætti sem lúta að fjölgun öryrkja á Ís- landi undanfarin ár, orsakir þeirrar fjölgunar, tengsl atvinnuleysis ann- ars vegar og heilsubrests og örorku hins vegar. Hann mun einnig fjalla um helstu þröskulda í vegi auk- innar atvinnuþátttöku fólks með skerta færni á vinnumarkaði og hvað helst sé til ráða til að bæta þar úr,“ segir Guðbjörg Linda. „Undanfarin misseri hefur fjölg- un öryrkja á Íslandi verið í kast- ljósinu enda mikið hagsmunamál fyrir bæði einstaklinga og sam- félag. Í þessu sambandi er nauð- synlegt að huga að því hvort það vinnufyrirkomulag sem tíðkast víð- ast á Íslandi í dag henti ekki til- teknum hópi fólks á vinnufærum aldri,“ útskýrir Guðbjörg. 25. september verður annar fyr- irlestur vetrarins. Þá mun dr. Sig- rún Gunnarsdóttir rannsakandi og þróunarráðgjafi hjá LSH velta upp spurningunni Hafa stjórnendur áhrif á líðan starfsmanna á Land- spítala háskólasjúkrahúsi?, en fyr- irlestur sinn byggir Sigrún á rann- sóknargögnum sem hún aflaði í tengslum við doktorsverkefni sitt í heilbrigðisvísindum. Hjálmar G. Sigmarsson mann- fræðingur mun 9. október flytja fyrirlesturinn Ég hef áhyggjur af þessu þar sem hann ræðir um mik- ilvægi vinnu fyrir sjálfsmynd- arsköpun Íslendinga. Margrét Einarsdóttir mun 23. október velta fyrir sér spurning- unni Til hvers löggjöf um vinnu barna og unglinga? og dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor við viðskipta- og hagfræðideild HÍ, mun 6. nóvember halda fyrirlest- urinn Er góð stjórnun hluti af vinnuvernd starfsmanna? Síðasta fyrirlestur ársins flytur dr. Herdís Sveinsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði, 20. nóvember. Hún kallar erindi sitt Af konum í ís- lenskum raunveruleika: Heilsufar og vinnuaðstaða hjúkrunarfræð- inga, kennara og flugfreyja. Rannsóknastofa í vinnuvernd er þverfagleg rannsókna- og fræðslu- stofa sem starfrækt er af Vinnueft- irlitinu og Háskóla Íslands. Nánari upplýsingar um RIV og fyrirlestr- ana í haust má finna á slóðinni www.riv.hi.is. Atvinna | Fyrirlestrar annan hvern mánudag Öryrkjar og atvinna  Guðbjörg Linda Rafns- dóttir fæddist í Reykjavík 1957. Hún lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum við Sund, B.A.-prófi í félagsfræði frá Háskóla Íslands og mastersprófi og síðar doktorsprófi frá Háskól- anum í Lundi í Svíþjóð. Guðbjörg hefur starfað við fræðslu og rann- sóknir hjá Vinnueftirlitinu frá því 1994 og í Háskóla Íslands frá 1996, nú sem dósent. Guðbjörg Linda er stjórnarformaður Rann- sóknastofu í vinnuvernd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.